Annarri stúlkunni vísað úr landi á fimmtudag

Haniye Maleki og föður hennar verður vísað úr landi á fimmtu­dag. Í und­ir­bún­ingi er frum­varp sem fer fram á að þeim verði veittur rík­is­borg­ar­ar­réttur. Ekki mun takast að afgreiða það frum­varp áður en þeim verður vísað úr landi.

Hinni ell­efu ára gömlu Haniye Maleki verður vísað úr landi á fimmtu­dag ásamt föður sínum. Þeim var til­kynnt um þetta á fundi með stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra í húskynnum Útlend­inga­stofn­unar í morgun. Þau verða send til Þýska­lands. RÚV greinir frá.

Kjarninn greindi frá því í morgun að Sam­fylk­ingin ætli að leggja fram frum­varp í vik­unni um að veita tveimur stúlkum úr hópi hæl­is­leit­enda, Haniye og Mary, og fjöl­skyldum þeirra íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Logi Ein­ars­son, for­maður flokks­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að flokk­ur­inn hafi þegar óskað eftir með­flutn­ingi allra þing­manna þegar málið verði lagt fram og hafi nokkrir þegar svarað ját­andi. Þeir komi úr ýmsum flokk­um. Ekki mun hins vegar takast að afgreiða það frum­varp áður en Haniye Maleki og föður hennar verður vísað úr landi.

Þing­menn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Vinstri grænna, sendu til að mynda sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu frá sér um helg­ina þar sem þeir mót­mæltu brott­vísun stúlkn­anna og tveir stjórn­ar­þing­menn hafa gagn­rýnt ákvörð­un­ina opin­ber­lega. Því virð­ist sem dóms­mála­ráð­herra muni ekki geta treyst á stjórn­ar­meiri­hlut­ann til að fella frum­varpið komi það til atkvæða­greiðslu.

Sig­ríður Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði um helg­ina að ákvörðun um brott­vísun stúlkn­anna yrði ekki end­ur­skoð­uð. Það kæmi ekki til greina. Í sam­tali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að end­ur­skoða mál sem dúkka hérna til­vilj­ana­kennt upp í umræð­unni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráð­herra að taka fram fyrir hend­urnar á sjálf­stæðri stjórn­sýslu­stofnun eins og kæru­nefnd í málum sem hafa fengið tvö­falda máls­með­ferð hér á land­i.“

Að minnsta kosti tveir stjórn­ar­þing­menn hafa lýst því yfir að þeir mót­mæli brott­vísun stúlkn­anna. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrir helgi að hún væri þeirrar skoð­unar „að sein með­ferð mála varpi enn rík­ari ábyrgð á okkur varð­andi það að láta mannúð ráða för frekar en ítr­ustu laga- og reglu­gerð­ar­túlk­an­ir. Hin níger­ísku Sunday Iserien og Joy Lucky og dóttir þeirra Mary sem og afgönsku feðginin Hanyie og Abrahim Maleki eiga það t.d. skilið af okkar hálfu.

Ég styð heils­hugar að þessar tvær fjöl­skyldur fái að halda áfram að byggja upp nýtt líf hér á landi. Að baki þeim stuðn­ingi mínum liggja mann­úð­ar­á­stæð­ur. Stundum er það ein­fald­lega nóg.“

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisn­ar, sagði á sama vett­vangi á laug­ar­dag að það mætti alltaf taka „lög eru lög“ afstöðu en þá væri „bara spurn­ing hvernig lögin eigi að vera og ég get ekki sagt að mér finnst lögin og fram­kvæmd þeirra vera í lagi ef þetta er hægt. Það á að slá á frest fram­kvæmd þess­ara brott­vís­ana og skoða í kjöl­farið hvernig við tryggjum að það sem við gerum stenst Barna­sátt­mála SÞ.“

Ljóst er því að dóms­mála­ráð­herra getur því ekki treyst á stjórn­ar­meiri­hlut­ann til að koma í veg fyrir að frum­varpið verði að lög­um, komi það til atkvæða­greiðslu. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa sem stendur eins manns meiri­hluta á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár