Norðurkóreskar skotflaugar draga til Bandaríkjanna eftir uppfærslur, segir rússneskur fulltrúi.

Norður-Kórea þarf að upp­færa skot­flaug sína til þess að geta hitt skot­mark á land­svæði Banda­ríkj­anna. Ekki er ljóst hvenær upp­færslan verður til­búin.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, skoðar kort með hershöfðingjum sínum.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, skoðar kort með hers­höfð­ingjum sínum. Mynd: EPA

Norð­ur­kóresk stjórn­völd hafa sagt rúss­neskum full­trúum að þeir búi yfir lang­drægum skot­flaugum sem drífa 3.000 kíló­metra. Þessar skot­flaugar muni geta hitt skot­mark á land­svæði Banda­ríkj­anna eftir upp­færslur.

Þetta er haft eftir þing­mann­inum Anton Morozov í rúss­nesku frétta­veit­unni Interfax. Morozov var staddur í Pjongj­ang, höf­uð­borg Norður-Kóreu, dag­ana 2. til 6. októ­ber síð­ast­lið­inn í opin­berum erinda­gjörðum.

Norður-Kórea hefur gert margar til­raunir með eld­flaugar og kjarn­orku­sprengjur á und­an­förnum miss­erum. Leyni­þjón­ustur vest­rænna ríkja telja að þessi vopn geti hugs­an­lega dregið alla leið til Banda­ríkj­anna, eða muni geta gert það þegar þróun þeirra lýkur. Enn er hins vegar óvíst hver raun­veru­leg geta stjórn­valda í Pjongj­ang er.

Það hefur þó ekki komið í veg fyrir dig­ur­barka­legar yfir­lýs­ingar Kim Jong-un, leið­toga Norður-Kóreu, í garð Banda­ríkj­anna og helstu banda­manna í Asíu.

Haft var eftir Morozov að Norður-Kórea hygg­ist reyna að auka drægni skot­flauga sinna þrefalt, eða í 9.000 kíló­metra rad­íus. „Það var ekk­ert rætt um tíma­mörk á því verk­efni,“ sagði hann.

Ítarlega var fjallað um kjarn­orku­á­ætlun og óvild Norður-Kóreu í garð hins vest­ræna heims í þrí­skiptri frétta­skýr­ingu í sumar.

Kóreska vandamálið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár