Blaðamannafélag Íslands fordæmir aðferðir Samherja

„Hefð­bundnir fjöl­miðlar eru hryggjar­stykkið í lýð­ræð­is­legri umræðu og þegar vegið er að þeim með órök­studdum dylgjum er vegið að tján­ing­ar­frels­inu sjálfu,“ segir í ályktun BÍ hvar félagið for­dæmir aðferðir Samherja.

Hjálmar Jónsson er formaður Blaðamannafélags Íslands
Hjálmar Jónsson er for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands Mynd: BÍ

Blaða­manna­fé­lag Íslands for­dæmir þær aðferðir sem Samherji hefur beitt til þess að gera frétta­flutn­ing af mál­efnum fyr­ir­tæk­is­ins tor­tryggi­legan. Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins sam­þykkti ályktun þess efnis á fundi sínum í dag. Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, skrifar undir álykt­un­ina fyrir hönd stjórnar.

„Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands lýsir furðu sinni á til­raunum útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja til þess að gera frétta­flutn­ing af mál­efnum fyr­ir­tæk­is­ins tor­tryggi­legan og for­dæmir þær aðferðir sem beitt er til þess. Þær aðferðir eru ekki sæm­andi fyr­ir­tæk­inu og því mik­il­væga hlut­verki sem það gegnir í íslensku atvinnu­lífi, hlut­verk sem því hefur verið falið af lýð­ræð­is­legum stofn­unum sam­fé­lags­ins. Það er einmitt það hlut­verk sem gerir ítar­lega og gagn­rýna umfjöllun um starf­semi þess alger­lega nauð­syn­lega,“ segir í álykt­un­inni.

Fyrirtækið þurfi að sætta sig við gagnrýna umræðu

Þar segir einnig að fyr­ir­tækið ætti að fagna allri umfjöllun um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og þeim tæki­færum sem það gefur til að útskýra þau sjón­ar­mið sem liggja starf­sem­inni til grund­vallar, „en ekki að bregð­ast við með aðferðum sem ekki er hægt að lýsa öðru vísi en sem lág­kúru, þar sem vegið er að trú­verð­ug­leika íslenskra fjöl­miðla og fjöl­miðla­manna.“

Líkt og önnur stór­fyr­ir­tæki þurfi Samherji að sætta sig við gagn­rýna umræðu og það aðhald sem fjöl­miðlum er skylt að veita í mál­efnum sem varða allan almenn­ing að mati Blaða­manna­fé­lags­ins. Í álykt­un­inni er einnig bent á að stjórn­valds­stofn­anir töldu til­efni til að taka fyr­ir­tækið til rann­sóknar vegna máls­ins sem um ræðir.

Fordæmalausar aðferðir

„Fjöl­miðlum er að sjálf­sögðu skylt að fjalla um það og á þeim tíma sem lið­inn er síðan hefur fyr­ir­tækið og for­svars­menn þess haft ótelj­andi mögu­leika á að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi eða grípa til ann­arra ráða sem þeim eru til­tæk að lögum. Það hefur ekki verið gert þar til nú og þá er það gert með aðferðum sem eru, illu heilli, for­dæma­lausar í íslensku sam­fé­lagi og miða að því að fæla fjöl­miðla frá því að fjalla um mál sem aug­ljóst erindi eiga til almenn­ings,“ segir í álykt­un­inni.

Undir lok álykt­un­ar­innar segir að það sé ekki nýtt að fjár­sterkir ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki kveikni sér undan fjöl­miðlaum­fjöllun og telji sig ekki þurfa að búa við það aðhald sem frjáls og opin umræða veitir. Þá er bent á að hefð­bundnir fjöl­miðlar séu hryggjar­stykkið í lýð­ræð­is­legri umræðu og „þegar vegið er að þeim með órök­studdum dylgjum er vegið að tján­ing­ar­frels­inu sjálfu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár