Kreml vill konu gegn Pútín 2018

Kvenkyns fram­bjóð­andi gegn Vladimír Pútín á að auka áhuga á rúss­nesku for­seta­kosn­ing­unum 2018. Pútín á samt sem áður að vinna.

Natalya Poklonskaya var saksóknari á Krímskaga áður en hún var kjörin á þing í Rússlandi. Hún hlaut internetfrægð eftir blaðamannafund sem hún hélt 2014 eftir að Rússland hafði innlimað Krímskaga. Á fundinum lýsti hún yfir hollustu sinni við Rússland.
Natalya Poklonskaya var sak­sókn­ari á Krím­skaga áður en hún var kjörin á þing í Rúss­landi. Hún hlaut inter­net­frægð eftir blaða­manna­fund sem hún hélt 2014 eftir að Rússland hafði inn­limað Krím­skaga. Á fund­inum lýsti hún yfir holl­ustu sinni við Rússland. Mynd: EPA

Vald­hafar í Moskvu eru sagðir íhuga að stilla kven­kyns fram­bjóð­anda upp gegn Vladimír Pútín, sitj­andi for­seta Rúss­lands, í for­seta­kosn­ing­unum á næsta ári. Þetta hafa rúss­neskir fjöl­miðlar eftir emb­ætt­is­mönnum á skrif­stofu for­set­ans.

Opinber afstaða Kremlar er hins vegar að þar hafi ekki verið rætt að kona taki þátt í kosn­ing­unum. Frá þessu er greint á vef The Moscow Times.

Und­ir­bún­ingur for­seta­kosn­ing­anna er nú í fullum gangi, jafn­vel þó Vladimír Pútín hafi ekki sagt af eða á um hvort hann ætli að gefa kost á sér á nýjan leik. Allir búast þó við að hann ákveði að fara í fram­boð og að hann vinni með miklum mun.

Kjarninn greindi frá því í sumar að Pútin hafi farið í veiði­ferð með félögum sínum til Síberíu og spókað sig um ber að ofan. Var það talið vera upp­haf kosn­inga­bar­átt­unnar og til þess að und­ir­strika krafta­kallaí­mynd Pútíns með rúss­nesku þjóð­ar­innar.

Ef Pútín ákveður að gefa kost á sér er talið lík­legt að fram­boð hans verði sjálf­stætt, þe. ekki undir merkjum Sam­ein­aðs Rúss­lands, stjórn­mála­flokks­ins sem stjórnar bæði fram­kvæmda­valdi og lög­gjaf­ar­valdi í Rúss­landi. Sjálf­stætt fram­boð muni hjálpa hinum vin­sæla leið­toga í for­seta­kjör­inu.

Kvenkyns frambjóðandi eykur áhuga

Stjórn­völd Moskvu eru sögð róa að því öllum árum að slá kosn­inga­þátt­töku­met í Rúss­landi í for­seta­kosn­ing­unum 2018. Búið er að ákveða hverjir fá að ekki að taka þátt í kjör­inu og verið að stilla upp fram­bjóð­endum. Ítök rúss­neskra stjórn­valda eru mikil.

Til þess að auka áhuga á kosn­ing­unum er ráð­gert að ein kona fái að bjóða sig fram. Kvenkyns fram­bjóð­andi mun hafa mikil áhrif á kosn­ing­arnar og hjálpa til við að gera umfjöll­un­ar­efni kosn­inga­bar­átt­unnar fjöl­breytt­ari. Nokkrar konur hafa verið nefndar sem fram­bæri­legir kostir í þessum efnum.

[adspot]

Natalya Poklonskaya er ein þeirra. Hún er þing­kona fyrir Krím­skaga í Dúmunni, þjóð­þingi Rúss­lands. Hún er talin geta leikið af fingrum fram í kosn­inga­bar­átt­unni og getur boðið fram óháð stjórn­mála­flokkum. Yelena Mizulina er önnur sem nefnd hefur verið. Mizulina situr í Sam­bands­rík­is­ráði Rúss­lands.

[links]Það er þó ekki hættu­laust fyrir Pútín að tefla fram kven­kyns mót­fram­bjóð­anda í kosn­ingum sem hann vill vinna með miklum mun. Kon­stantin Kalachyov, rúss­neskur stjórn­mála­fræð­ingur, sem rætt er við í The Moscow Times telur það hættu­legan draum enda eru konur helstu kjós­endur Pútíns. Aðrir stjórn­mála­fræð­ingar sem rætt er við segja kven­kyns fram­bjóð­anda geta sefað pirr­ing og þreytu gagn­vart sömu gömlu karl­kyns and­lit­unum í kosn­ing­unum.

Ein þeirra sem álitin er góður fram­bjóð­andi gegn Pútín er blaða­konan Ksenia Sobchak. Henni er lýst sem full­komnum mót­fram­bjóð­anda gegn Pútín. Hún er sögð vera rúss­nesk fyr­ir­mynd­ar­kona – snjöll, ung og áhuga­verð nútíma­kona. Þó er óvíst hvort hún vilji yfir höfuð taka þátt. Hún skrif­aði á Instagram-síðu sína á föstu­dag: Ég veit ekki hver talar um hvað í hærri stigum valds­ins, en ég hef fylgst með stjórn­mála­lands­lag­inu í langan tíma. Ég hef aðeins eina sjúk­dóms­grein­ingu: Stjórn­málin ykkar í dag, herra­menn, eru dap­ur­leg hrúga af rugli.“

Tvær konur hafa boðið sig fram til for­seta í Rúss­landi á síð­ustu 20 árum. Ella Pamfilova fékk eitt pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum árið 2000 þegar Pútín var kjör­inn í fyrsta sinn. Irina Khakamada fékk svo tæp­lega fjögur pró­sent í kosn­ing­unum 2004 þegar Pútín vann í annað sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár