Tíu staðreyndir um íbúðalánamarkaðinn

Íslenska ríkið er lang­sam­lega umsvifa­mest á íbúða­lána­mark­aði eftir að það tók yfir Íslands­banka að fullu sem eig­andi. Mis­mun­andi kjör eru í boði á mark­aðnum fyrir neyt­endur, og þurfa þeir að skoða vel mark­að­inn áður en tekin er ákvörðun um lán­töku.

1. Við­skipta­bank­arnir þrír, Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, eru lang­sam­lega umfangs­mestir í veit­ingu nýrra hús­næð­is­lána, með yfir 90 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Íbúða­lána­sjóður kemur þar á eftir, en líf­eyr­is­sjóðir hafa einnig verið að sækja í sig veðrið. Kvika, sam­ein­aður banki MP banka og Straums, er með litla hlut­deild hús­næð­is­lána, enda með sér­hæfðar áherslur gagnar eigna­meiri við­skipta­vinum og síðan fjár­fest­inga­banka­starf­semi.

2. Hvernig þjón­ustu veita lána­stofn­anir þeim sem eru að kaupa eignir í fyrsta sinn? Láns­hlut­fall íbúða­lána Lands­bank­ans er allt að 85% af mark­aðsvirði eða verð­mati eignar, 70% íbúða­lán til allt að 40 ára og 15% við­bót­ar­lán til allt að 15 ára . Þá er lán­töku­gjald, sem er ofta 1 pró­sent af verð­mæti eigna, fellt niður. Við fyrstu fast­eigna­kaup er lán­töku­gjald fellt niður hjá Arion banka. Þar að auki hækkar hámarks­láns­hlut­fall úr 80% í 85% fyrir þann hluta af mark­aðsvirði eignar sem er undir 30 millj­ónum króna, á lánum sem eru óverð­tryggð að a.m.k. 25% hluta. Íslands­banki veitir 50 pró­sent afslátt af lán­töku­gjaldi, en lánar tvær millj­ónir króna til við­bótar, með 10 ára jafn­greiðslu­láni, en þó ekki meira en sem nemur 90 pró­sent af mark­aðsvirði. Íbúða­lána­sjóður lánar að hámarki 80 pró­sent lán, verð­tryggt, en hámarks­lán er 24 millj­ónir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir lána flestir að hámarki 75 pró­sent lán.

3. Íslenska ríkið á Lands­bank­ann, Íslands­banka og Íbúða­lána­sjóð nán­ast að fullu. Eign­ar­hlut­ur­inn í Lands­bank­anum er 98 pró­sent, Íslands­banka 100 pró­sent og Íbúða­lána­sjóði 100 pró­sent. Við­skipta­kjör eru þó breyti­leg, eins og sést meðal ann­ars á þjón­ust­unni sem í boði er fyrir þá sem eru að kaupa eign í fyrsta sinn.

4. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi og LSR, hafa breytt lána­skil­yrðum sínum á und­an­förnum mán­uðum, með það fyrir augum að bjóða sjóðs­fé­lögum hag­stæð kjör á lánum til íbúða­kaupa. Sjóð­irnir bjóða 75 pró­sent veð­hlut­fall, en vaxta­kjörin sem í boði eru hjá þeim eru betri en hjá við­skipta­bönk­unum og Íbúða­lána­sjóði. Til sam­an­burðar eru vextir á verð­tryggðum lánum að með­al­tali um 3,7 pró­sent hjá við­skipta­bönk­unum, og frá rúm­lega 7 pró­sentum á óverð­tryggðum lánum. Bestu kjör líf­eyr­is­sjóða eru 3,6 pró­sent á verð­tryggðum lánum, og frá 6,49 pró­sent á óverð­tryggðum lánum, og það fast í þrjú ár. Munurinn er umtals­verður, einkum þegar kemur að óverð­tryggðum lánum. Fyrir þá sem geta tekið 75 pró­sent lán, og fjár­magnað þá með eigið fé 25 pró­sent af kaupum, eru lána­kjör líf­eyr­is­sjóða hag­stæð­ust, en þau eru í boði fyrir sjóð­fé­laga, eins og áður sagði.

5. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna býður þó bestu kjör líf­eyr­is­sjóða, sé miðað við fasta vexti, en vaxta­töflur líf­eyr­is­sjóða taka breyt­ingum eftir því sem þurfa þykir, að mati stjórn­enda sjóð­anna. Hjá Gildi eru hag­stæð­ustu kjörin veitt til þeirra sem taka 65 pró­sent lán eða lægra. LSR býður bestu vexti á breyti­legum vöxtum, eða 3,13 pró­sent.

6. Hversu stór er fast­eigna­mark­að­ur­inn og hvert er heild­ar­virði fast­eigna á land­inu? Heild­ar­mat fast­eigna, miðað við fast­eigna­mat árið 2016, nam 5.755 millj­örðum króna og hækk­aði um 5,8 pró­sent milli ára. Sé miðað við árlega lands­fram­leiðslu er heild­ar­mat fast­eigna 2,8 föld árleg lands­fram­leiðsla.

7. Stærstur hluti fast­eigna er í fjöl­býli en heild­ar­mat íbúða í fjöl­býli á Íslandi er 3.844 millj­arðar króna, sam­kvæmt fast­eigna­mati fyrir 2016.

8. Fastir vextir verð­tryggðum lánum rík­is­fjár­mál­stofn­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Íbúða­lána­sjóðs, eru breyti­legir. Hjá Íbúða­lána­sjóði eru þeir 4,2 pró­sent, hjá Lands­bank­anum 3,85 pró­sent og Íslands­banka 3,95 pró­sent.

9. Ekki eru gerðar sömu kröfur til líf­eyr­is­sjóða og banka, þegar kemur að gjöldum og sköttum á starf­sem­ina. Það er ein ástæða þess að líf­eyr­is­sjóðir geta boðið betri kjör. Bank­arnir hafa vakið athygli á þess­ari stöðu, og talað um sam­keppn­is­lega mis­munun.

10. Hjá spari­sjóðum sem starf­andi eru í land­inu, er í gildi var­færin útlána­stefna. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vefnum spari­sjod­ur­inn.is, er lánað til íbúða­kaupa allt að 60 pró­sent af fast­eigna­mati, og síðan við­bót­ar­lán upp í 80 pró­sent, þar sem miðað er við mark­aðsvirði/kaup­verð. Vaxta­tafla er sam­bæri­leg við Íbúða­lána­sjóð. „Við ákvarð­anir á vöxtum vegna verð­tryggðra íbúð­ar­lána er horft á ávöxt­un­ar­kröfu verð­tryggðra skulda­bréfa útgef­inna m.a. af Íbúð­ar­lána­sjóði, bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum á Íslandi, fjár­mögn­un­ar­kostnað spari­sjóðs­ins, eig­in­fjár- og lausa­fjár­bind­ingu vegna íbúð­ar­lána, rekstr­ar­kostn­aðar, smá­sölu­á­lagn­ingu, álagn­ingu vegna útlána­á­hættu og stjórn­valds­fyr­ir­mæla,“ segir á vef spari­sjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár