Að hægja á útbreiðslu veirunnar „mun bjarga mannslífum“

Ætti ekki bara að leyfa nýju kór­ónu­veirunni að hafa sinn gang, að smit­ast milli sem flestra svo að far­ald­ur­inn fjari sem fyrst út? Stutta svarið er: Nei. Langa svarið er: Nei, alls ekki.

Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til að hefta og hægja á útbreiðslu COVID-19 hér á landi eru bráð­nauð­syn­legar og lyk­il­at­riði til að tryggja að heil­brigð­is­kerfið geti tek­ist á við verk­efnið. Þetta sagði í til­kynn­ingu frá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra í gær.

Það er ástæða fyrir því að þessi skila­boð voru gefin út. Ein­hverjir hafa verið að spyrja sig hvort allar þær var­úð­ar­ráð­staf­anir sem gripið hefur verið til séu að gera eitt­hvað gagn, skipta ein­hverju máli. Er ekki alveg eins gott að leyfa þess­ari blessuðu veiru að gera sitt og fara svo sem fyrst?

Helsta mark­miðið í bar­áttu gegn far­sóttum og far­öldrum er að koma í veg fyrir útbreiðslu. Það er hins vegar ekki alltaf ger­legt eins og dæmin sýna. En þá er bráð­nauð­syn­legt að hægja á útbreiðslu með ýmsum aðgerðum. Þetta er ekki síst lyk­il­at­riði til að tryggja að heil­brigð­is­kerfi landa geti tek­ist á við verk­efnið.

„Það skiptir ekki máli hversu margir fá þessa veiru, það skiptir máli hverjir fá hana,“ sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi í dag.

Með því að hægja á útbreiðslu er hægt að koma í veg fyrir að margir veik­ist í einu og þannig er lík­legra að inn­viðir sam­fé­laga stand­ist álag. Einnig gefur það fram­leið­endum bólu­efna lengri tíma til rann­sókna og við­bragða. Flest sjúkra­hús eru starf­hæf ef 10% starfs­manna eru fjar­ver­andi en það eru þau mörg hver ekki þegar um helm­ingur starfs­fólks kemst ekki til vinnu á sama tíma.

Í umræðu síð­ustu vikna hafa heyrst þær spurn­ingar hvort best væri að leyfa COVID-19 að breið­ast út hratt því þá muni far­aldr­inum ljúka hratt. „Það er upp­skrift að skelf­ing­ar­á­standi, óþarfa þján­ingum og dauðs­föllum,“ hefur New York Times eftir Drew Harris, lýð­heilsu­fræð­ingi við Thomas Jeffer­son-háskóla í Banda­ríkj­unum. „Það að hægja á útbreiðslu og dreifa yfir lengri tíma mun bjarga manns­lífum.“

Að „fletja út kúr­f­una“ heldur sam­fé­lögum gang­andi, segir Harris.

Hann grípur til sam­lík­ingar: Hugsið um heil­brigð­is­kerfið eins og lest­ar­vagn. Í vagn­inum er aðeins pláss fyrir ákveðið margt fólk á hverjum tíma. Á háanna­tíma þá er plássið ekki nóg til að svara eft­ir­spurn svo að fólk þarf að bíða eftir að röðin komi að sér. Að kvöldi stytt­ist röðin í vagn­inn og líkur á því að þú fáir jafn­vel sæti í honum aukast.

Sem sagt: Með því að hægja á útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar og þar með draga úr álagi á heil­brigð­is­kerfið á hverjum tíma aukast líkur á því að þeir sem þurfa að leita lækn­is­að­stoðar fái hana.

Á þessu grafi má sjá hverjar afleiðingarnar af útbreiðslu veirunnar yrðu ef ekkert yrði gert og ef gripið er til aðgerða.
Á þessu grafi má sjá hverjar afleið­ing­arnar af útbreiðslu veirunnar yrðu ef ekk­ert yrði gert og ef gripið er til aðgerða.

„Það sem er alveg ljóst er að án þess að draga mjög úr hraða útbreiðsl­unnar þá munu heil­brigð­is­kerfi ekki ráða við ástandið,“ segir Richard Neher, sem starfar við Basel-háskóla í við­tali við VOX. Hann hefur verið að kort­leggja getu sjúkra­húsa í Evrópu til að takast á við COVID-19.

Ljóst er að staðan er þegar orðin slæm á Ítalíu þar sem lang­flest til­felli veirunnar hafa greinst utan Kína. Ekki er að fullu útskýrt af hverju veiran breidd­ist svo hratt út þar. Kenn­ingar eru uppi um að hún hafi komið þangað jafn­vel um miðjan jan­úar en ekki greinst fyrr en mörgum vikum síðar. Fólk með sýk­ing­una hafi jafn­vel leitað til sjúkra­húsa í miklum mæli án þess að vita að það var með COVID-19. Það aftur varð til þess að um 10% alls heil­brigð­is­starfs­fólks í ákveðnum hér­uðum í norð­ur­hluta lands­ins eru nú smituð.

Enn ein kenn­ingin teng­ist svo háum með­al­aldri ítölsku þjóð­ar­innar. Sýkingin leggst einna þyngst á eldra fólk og af því er fleira á Ítalíu en í flestum löndum Evrópu.

Hver svo sem skýr­ingin er þá er gríð­ar­legt álag á ítalska heil­brigð­is­kerf­inu þessa dag­ana. Reynslan sýnir að í slíku ástandi fjölgar ótíma­bærum dauðs­föllum, þ.e.a.s. hættan á því að fólk sem þarf á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda, vegna lang­vinnra sjúk­dóma til dæmis, fær hana jafn­vel ekki. „Það sem er hættu­legt í far­öldrum er að allir smit­ist á sama tíma og að heil­brigð­is­kerfin geti ekki brugð­ist við,“ segir Steven Hoffman sem starfar við York-háskóla. Aðgerðir sem bein­ist að því að minnka náin sam­skipti milli fólks hafa það helst að mark­miði að minnka álag á heil­brigð­is­kerfið.

Milljónir manna um allan heim vinna nú að heiman til að draga úr útbreiðslu nýju kórónuveirunnar.
Millj­ónir manna um allan heim vinna nú að heiman til að draga úr útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar.

Sjúk­dómar smit­ast frá einum manni til ann­ars. Margir þættir hafa hins vegar áhrif á hversu hratt þetta ger­ist. Það fer til dæmis eftir því hversu smit­andi bakt­er­ían eða veiran er, hversu margir eru sér­lega við­kvæmir fyrir henni og hversu fljótt þeir veikj­ast.

Munurinn á hinni árs­tíða­bundnu inflú­ensu og nýju kór­ónu­veirunni er meðal ann­ars sá að margir hafa að ein­hverju leyti myndað ónæmi fyrir þeirri veiru sem veldur flensu ár hvert og einnig standa bólu­efni við henni til boða. Mun fleiri eru við­kvæmir fyrir nýju kór­ónu­veirunni og þess vegna er hún mun meira smit­andi og getur breiðst hratt út. Því virka þær aðgerðir sem stjórn­völd margra landa hafa nú gripið til; að ráð­leggja fólki að forð­ast fjöl­farna staði og jafn­vel aflýsa manna­mótum og marg­vís­legum við­burðum þar sem margir koma saman . Sóttkví og ein­angrun hefur einnig áhrif á það hversu hratt veiran getur breiðst út.

Margir vinna heima

Aftur er lík­ingin við lest­ar­vagn­inn góð: Þétt­set­inn lest­ar­vagn og marg­menni á lest­ar­stöð eru dæmi um staði þar sem fólk er í miklu návígi hvert við annað og þar með eiga veirur og bakt­er­íur auð­veld­ara með að dreifa sér. En með því að fækka fólki í hverjum vagni og á hverri lest­ar­stöð er hægt að koma í veg fyrir smit margra í einu.

Í Banda­ríkj­unum, svo dæmi sé tekið, hafa mörg fyr­ir­tæki í Seattle, þar sem útbreiðslan er hvað mest, gripið til þess ráðs að biðja starfs­fólk að vinna heima. Um 50 þús­und starfs­menn Microsoft eru til dæmis heima­vinn­andi þessa dag­ana.

Með aðgerðum sem þessum er þeim tæki­færum þar sem smit getur átt sér stað fækkað. Og þetta hægir á útbreiðsl­unni.

Að halda sig fjarri stöðum þar sem margir koma saman er eitt þeirra ráða sem gefið er svo forðast megi smit.
Að halda sig fjarri stöðum þar sem margir koma saman er eitt þeirra ráða sem gefið er svo forð­ast megi smit.

Mik­il­vægt er að þeir sem eru við­kvæm­astir, t.d. fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og aldr­aðir, gæti sér­stakrar var­úðar og hafa almanna­varnir hér á landi beint þeim til­mælum til áhættu­hópa halda sig heima við sé þess kostur og hafa bein sam­skipti við sem fæst fólk. Hér er að finna frek­ari leið­bein­ingar til áhættu­hópa.

Gamla, góða tuggan um mik­il­vægi hand­þvottar er aldrei of oft sögð. Að þvo sér reglu­lega um hend­urnar með sápu og heitu vatni í 20-30 sek­úndur í hvert skipti dregur úr líkum á smiti. Rétt er að forð­ast náið sam­neyti við fólk sem er með almenn kve­fein­kenni, hnerra eða hósta, eins og raun­hæft er. Fleiri góð ráð má finna hér.

Ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta

Til­fellum nýju kór­óna­veirunnar hefur fjölgað hratt hér á landi und­an­farna daga og vikur. Líkur eru á að hún haldi áfram útbreiðslu sinni í Evrópu næstu vikur og mán­uði. Nú þegar hafa tugir til­fella komið upp hér á landi og hund­ruð eru í sótt­kví eftir að hafa orðið útsett fyrir smiti.

Ekki er sam­komu­bann í gildi á Íslandi en ekki er úti­lokað að gripið verði til slíkra aðgerða meðan unnið er að því að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar hér á landi. Því er eðli­legt að skipu­leggj­endur fjöl­mennra við­burða séu ugg­andi yfir stöð­unni. Meðan far­aldur geisar þarf ávallt að meta hvort rétt sé að halda við­burð eða hvort betra sé að fresta til­teknum við­burði þar til far­aldur er geng­inn yfir.

Fyrir skipuleggjendur

Meðan ekk­ert sam­komu­bann er í gildi er mik­il­vægt fyrir skipu­leggj­endur að gæta vel að smit­vörnum á við­burðum, segir í leið­bein­ingum land­læknis. Nauð­syn­legt er að gestir hafi greiðan aðgang að heitu vatni og sápu, hand­spritti og einnota þurrkum.

Einnig er brýnt að skipu­leggj­endur taki mið af þeim hópi sem mun sækja við­burð­inn. Vitað er að eldri borg­arar og þeir sem glíma við und­ir­liggj­andi sjúk­dóma (t.d. syk­ur­sýki, hjarta- og æða­sjúk­dóma, lang­vinna lungna­teppu, lang­vinna nýrna­bilun og krabba­mein) eru í mestri hættu með að fá alvar­leg ein­kenni COVID-19.

Skipu­leggj­endur verða jafn­framt að brýna fyrir þátt­tak­endum að þeir sem eiga að vera í sótt­kví eftir að hafa orðið útsettir fyrir smit eiga ekki að mæta á við­burð­inn.

Þar sem ekki hefur verið sett á sam­komu­bann þá er það á ábyrgð skipu­leggj­enda við­burða að taka upp­lýsta ákvörðun um fram­haldið. Ef grunur leikur á að ekki verði hægt að tryggja öryggi ein­stak­linga sem eru í áhættu­hópi eða að erfitt verði að tryggja gott aðgengi að hrein­læt­is­að­stöðu, hand­spritti o.þ.h. er ráð­lagt að taka til skoð­unar hvort halda skuli við­burð­inn.

Fyrir þátttakendur

Áður en ákveðið er að halda við­burð þarf hver og einn að meta stöðu sína vel. Almennt eigum við ekki að vera í mik­illi nálægð við aðra þegar við finnum fyrir flensu­líkum ein­kennum. Sér­stak­lega er þetta mik­il­vægt fyrir þá sem annað hvort hafa verið á skil­greindum hættu­svæðum eða verið í tengslum við ein­stak­linga með stað­fest eða grunað smit. Þessir aðilar ættu að forð­ast sam­neyti við aðra ein­stak­linga og vera í sótt­kví.

Á fjöl­mennum við­burði er einkar mik­il­vægt að huga vel að per­sónu­legu hrein­læti; þvo hendur reglu­lega, nota hand­spritt þegar þörf krefur og hnerra eða hósta í einn­nota þurrku eða í oln­boga­bót­ina, segir í nýjum leið­bein­ingum frá land­lækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónaveiran

Mest lesið undanfarið ár