Er Adam Sandler að gera grín að okkur?

Í júlí var frum­sýnd gam­an­myndin Pixels, sem kemur úr smiðju fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Happy Madison. Það er svo sem ekki í frá­sögur fær­andi, enda gefur fyr­ir­tækið út margar myndir á hverju ári. Þær eiga það flestar sam­eig­in­legt að njóta tölu­verðra vin­sælda á meðal áhorf­enda en fá skelfi­lega dóma hjá gagn­rýnendum. Happy Madison er enda kallað drasl-fram­leiðslu­fyr­ir­tæki (e. slop-shop) í mörgum banda­rískum miðlum.

Í þetta skiptið var hins vegar eins og mörgum hafi hrein­lega ofboðið. Umsagn­irnar voru nán­ast allar á einn veg: þessi mynd er hræði­leg og eig­in­lega móðgun við viti borna áhorf­endur.

Föstu­dag­inn 11. des­em­ber var fyrsta myndin af fjórum sem Sandler og Happy Madison gerðu fyrir Netflix frum­sýnd á veit­unni. Hún heitir The Ridiculous 6 og hefur ekki síður fengið hræði­lega dóma og verið gagn­rýnd fyrir að vera rasísk. Í einum dómnum um hana á Rotten Tomatoes-síð­unni segir að myndin sé ekk­ert verri en aðrar Adam Sandler-myndir. Hún væri bara jafnslæm og allar hinar.

En er það eitt­hvað nýtt? Hefur þetta fram­leiðslu­fyr­ir­tæki Adam Sandler og vina hans ekki verið að bjóða upp á slíkar móðg­anir árum saman?

Ekki kvikmynd heldur vettvangur glæps

Pixels var leik­stýrt af Chris Columbus, sem hefur átt nokkuð far­sælan feril und­an­farin 30 ár. Hann skrif­aði hand­ritið af költ-mynd­unum The Goonies og Gremlins um miðjan níunda ára­tug­inn, leik­stýrði síðan Home Alone-mynd­unum, skelfi­legu pen­inga­vél­inni Mrs. Doubtfire og tveimur af Harry Potter-mynd­unum. Pixels var fyrsta myndin sem hann vann með Happy Madison-geng­inu og því áttu sumir von á bæt­ingu frá þeim myndum sem fyr­ir­tækið hafði sent frá sér árin á undan. Þá þótti hug­myndin sem myndin hverf­ist um, bar­átta tölvu­leikja­hetja frá níunda ára­tugnum við geim­verur sem mistúlka mynd­bands­upp­tökur úr spila­kössum sem stríðs­yf­ir­lýs­ingu, þess eðlis að hún gæti vakið for­tíð­ar­þrá hjá þeirri kyn­slóð sem spil­aði Packman og Space Invaders til við­bótar við að höfða til ung­menna nútím­ans sem sækja í áreynslu­lausa afþr­ey­ingu.

Þær vonir hurfu fljótt þegar dómar gagn­rýnenda um mynd­ina hófu að birt­ast eftir að hún var frum­sýnd fyrir um viku síðan. Vox-vef­ur­inn segir í fyr­ir­sögn að myndin sé ein­fald­lega algjört drasl. Dómurinn hefst síðan á eft­ir­far­andi orðum: „Pixels er kvik­mynd. Það er það besta sem ég get sagt um hana.“

MovieBob gekk lengra og sagði Pixels vera svo vonda að myndin láti áhorf­endur hata hluti sem þeir áður elsk­uðu. Pixels væri ekki kvik­mynd, hún væri vett­vangur glæps.

Sýn gagn­rýnenda virð­ist vera að end­ur­spegla skoðun áhorf­enda. Á Rotten Tomatoes-vefnum mælist Pixels ein­ungis með 18 pró­sent í ein­kunn.

Þrjú orð: Adam F#%&ing Sandler

Það er margt sem truflar gagn­rýnend­urna. Það truflar þá að Kevin James (sem varð frægur fyrir að leika feita og óþol­andi sendil­inn sem átti fal­legu kon­una í upp­runa­legu útgáfu þeirrar síðan marg­fram­leiddu mýtu, þátt­unum King of Queens) leiki for­seta Banda­ríkj­anna. Það sé ein­fald­lega aldrei trú­verð­ugt að nokkur muni nokkru sinni kjósa hann í nokk­urt emb­ætti né fela honum ábyrgð. Karllægnin, sem birt­ist meðal ann­ars í því að allar kon­urnar sem leika í mynd­inni hafa aðal­lega það hlut­verk að vera verð­launa­gripir sem karl­hetj­urnar vinna eða sem inni­hald blautra drauma þeirra, fer líka mjög fyrir brjóstið á mörgum. Svo er hand­ritið nátt­úru­lega algjör þvæla og leik­ar­arnir standa sig flestir illa, þótt þeir hafi ekki haft úr miklu að moða.

En flestir eru sam­mála um hver stærsti vandi mynd­ar­innar er. Gagn­rýn­andi Mars­hable-vefs­ins náði að fanga það vanda­mál ágæt­lega með upp­hafs­orðum sinnar rýni. Hún hefst á eft­ir­far­andi orðum: „Pixels er for­múla sem á ekki að geta klikkað. Takið grund­vallar for­sendur Galaxy Quest en skiptið út Star Trek fyrir retro-tölvu­leiki, hendið inn nokkrum skemmti­legum tækni­brellum og hvað gæti mögu­lega klikkað? Þrjú orð: Adam F#%&ing Sandler“.

The Verge gengur skref­inu lengra og segir í fyr­ir­sögn á rýni sinni: „Það þarf að stöðva Adam Sandler“.

En Las Vegas Weekly gengur lík­lega lengst allra. Í dómi blaðs­ins segir að það að kalla Pixels eina af verri myndum Adam Sandler sé „eins og að segja einn stofn ebólu minna þján­ing­ar­fullan en annan; hvernig sem er þá er upp­lifunin ekki not­ar­leg“.

Lítilmennið sem stendur uppi sem sigurvegari

Hvað er svona hræði­legt við Adam Sandler? Hann hefur, með örfáum und­an­tekn­ingum, gert fremur ein­faldar og heimsku­legar myndir alla tíð. Eftir að hafa orðið þekktur í Saturday Night Live-þátt­unum snemma á tíunda ára­tugnum lék hann aðal­hlut­verk í tveimur költ-myndum, Billy Madison og Happy Gilmore, og þótti leið­andi fyrir ferska teg­und gam­an­leiks sem ein­kennd­ist af ofsa og óvið­eig­andi aðstæðum. Leiðandi þema, sem hefur verið end­ur­tekið ítrekað í síð­ari myndum, var að lít­il­mennið geti kom­ist yfir stór­kost­legar hindr­anir og staðið uppi sem ólík­legur sig­ur­veg­ari. Það lætur áhorf­endum líða vel í lok myndar.

Árið 1998 breytt­ist allt hjá Sandler og félögum hans. Þá leik­stýrði Frank Coraci, sem ásamt Dennis Dugan hefur leik­stýrt flestum myndum Happy Madison, honum í tveimur myndum sem slógu báðar ævin­týra­lega í gegn.

Önnur hét The Wedding Singer. Þar lék Sandler brúð­kaups­söngv­ara á níunda ára­tugnum sem þráði að finna ást­ina. Hún er að mörgum talin á meðal skárstu myndum sem Sandler hefur komið að í gegnum tíð­ina. Hagnaður mynd­ar­innar reynd­ist á end­anum vera meira en 100 millj­ónir dala, eða um 13,4 millj­arðar króna.

Hin hét The Waterboy og fjall­aði um greind­ar­skertan vatns­bera sem gat nýtt ofsareiði sína til að verða yfir­burð­ar­leik­maður í amer­ískum fót­bolta.Myndin skil­aði fram­leið­endum hennar alls um 163 millj­ónum dala, um 22 millj­örðum króna, í hagnað.

Það fé sem féll Sandler og félögum hans í skaut var notað til að setja á fót hið nú alræmda fram­leiðslu­fyr­ir­tæki Happy Madison, nefnt eftir Billy Madison og Happy Gilmore, sem hefur fram­leitt allar kvik­myndir sem Sandler hefur leikið í síðan utan tveggja.

Draslframleiðsla á sterum

Frá árinu 1999 hefur Happy Madison fram­leitt 36 kvik­myndir. Þær fá, nán­ast án und­an­tekn­inga, hræði­lega dóma. Á meðal mynda fyr­ir­tæk­is­ins eru Deuce Bigalow: Male Gigalo, Paul Blart: Mall Cop, Joe Dirt og Bucky Larson: Born to Be a Star.

Þá eru auð­vitað ótaldar allar þær myndir sem Adam Sandler leikur sjálfur í. Listinn yfir þær er langur. Til að nefna fáeinar er vert að minn­ast á Little Nicky, Anger Mana­gement, The Longest Yard, I Now Pronounce You Chuck and Larry, You Don´t Mess with the Zohan, Funny People og Grown Ups.

Líkast til hefur engin verið til­nefndur jafn oft til Gullna hind­bers­ins, verð­launa sem veitt eru fyrir verstu kvik­mynd hvers ár, og aðstand­endur Happy Madison. Alls hafa fimm myndir fyr­ir­tæk­is­ins (Big Daddy, Little Nicky, Deuce Bigalow: European Gigalo, Bucky Larson: Born to Be a Star og Grown Ups 2) verið til­nefndar sem versta kvik­mynd árs­ins. Enginn þeirra hefur reyndar unnið en stöð­ug­leik­inn í til­nefn­ingum er aðdá­un­ar­verður.

Þá eru ótaldar þær tvær myndir Sandler sem hafa fengið versta útreið gagn­rýnenda: Grown Ups 2 (er með sjö pró­sent á Rotten Tomatoes) og hin súr­eall­íska Jack and Jill (með þrjú pró­sent á Rotten Tomatoes) þar sem Sandler leikur tví­bura af sitt­hvoru kyn­inu. Í alvöru.

Í þessum tveimur myndum krist­all­ast hins vegar „vanda­málið“ við þær myndir sem Happy Madison fram­leiðir og Adam Sandler leikur í. Sama hversu vonda dóma þær fá þá græða þær pen­inga. Fullt af pen­ingum.

Adam Sandler hlær að okkur

Þannig skil­aði Grown Ups 2 hagn­aði upp á 167 millj­ónir dali, um 22,4 millj­arða króna. Jack and Jill, ein versta mynd heims­sög­unnar að mati áhorf­enda og gagn­rýnenda, skil­aði tæp­lega helm­ingi meiru í kass­ann en fram­leiðsla hennar kost­aði, alls um 71 millj­óna dala, eða 9,5 millj­örðum króna.

Alls hafa þær 35 myndir sem Happy Madison fram­leiddi áður en kom að Pixels skilað tæp­lega fjórum millj­örðum dala í tekjur, eða um 536 millj­arða króna. Það er ekki fjarri öllum útgjöldum íslenska rík­is­ins á einu ári. Flestar mynd­irnar eiga það sam­eig­in­legt að vera frekar ódýrar í fram­leiðslu og heild­ar­fram­leiðslu­kostn­aður mynd­anna 35 er áætl­aður um 1,7 millj­arður dala. Ávöxtun Happy Madison frá árinu 1999 og fram til dags­ins í dag er því um 135 pró­sent. Það sleppur.

Fyrir vikið er Adam Sandler orð­inn svíns­lega ríkur og hefur verið einn hæst­laun­að­asti leik­ari í Hollywood árum saman. Auður hans er met­inn á um 350 millj­ónir dala, um 47 millj­arða króna.

Það er því ljóst að þótt gagn­rýnendur, og jafn­vel grun­lausir áhorf­endur, séu ekki að hlægja mikið af steyp­unni sem Sandler og sam­starfs­menn hans bera reglu­lega á borð fyrir þá, og láta metn­aðar- og takt­leysið sem ein­kennir mynd­irnar fara mjög í taug­arnar á sér, að Sandler sjálfur getur hlegið alla leið­ina í bank­ann. Fólk flykk­ist áfram á mynd­irnar hans. Hann er að mok­græða á þessu öllu saman og er þar með nokk­urs konar raun­veru­leg útgáfa af upp­á­halds­sögu­þræð­inum hans, um lít­il­mennið sem sigr­ast á hindr­un­unum og stendur uppi sem algjör sig­ur­veg­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár