Herra Róm leggur skóna á hilluna

Ferill Francesco Totti spannar ald­ar­fjórð­ung sem er með ólík­indum fyrir sókn­ar­mann í fót­bolta.

Totti, sem varð fer­tugur 27. sept­em­ber í fyrra, hefur átt ótrú­legan feril og er einn allra besti leik­maður sem Ítalir hafa átt, en hann hefur allan sinn feril leikið fyrir Roma. Margt má telja til, þegar kemur að merki­legum atriðum á ferli hans, en hér á eftir verða nefnd fimm merki­legar stað­reyndir um þennan magn­aða leik­mann, sem er bæði leikja- og marka­hæsti leik­maður í sögu Roma. Mörkin er 307 og leik­irnir 786.

1. Um ald­ar­fjórð­ungur, 25 ár, eru nú síðan Totti fékk fyrst tæki­færi til þess að æfa með aðal­liði Roma. Enginn leik­maður í sögu félags­ins hefur verið nándar nærri jafn lengi og Totti í aðal­lið­inu, en hann spil­aði sinn fyrsta leik árið 1993, þá 16 ára. Margt hefur breyst frá því þetta var, ekki síst þegar kemur að fjömiðlum og umfjöllun um fót­bolt­ann, enda var inter­netið ekki farið að hafa mikil áhrif á fót­bolt­ann á þeim tíma þegar Totti kom fram. Hann var búinn að spila í fimm ár með aðal­liði Roma áður en Google var stofnað (1998).

2. Totti seg­ist ekki sjá eftir miklu á ferli sínum, en hann seg­ist þó sjá eftir því að hafa aldrei átt mögu­leika á því að spila með hinum brasil­íska Ronaldo, sem var í þrí­gang kos­inn besti knatt­spyrnu­maður heims hjá FIFA, þrátt fyrir að missa úr heil þrjú keppn­is­tíma­bil, þegar hann var á besta aldri, vegna alvar­legra hné­meiðsla. Ronaldo var á hápunkti fer­ils­ins þegar hann lék með Barcelona, Inter og Real Madrid, á árunum 1996 til 2006. Totti segir Antonio Cassano, sem lék með honum hjá Roma og ítalska lands­lið­inu, á árunum 2001 til 2006, hafa verið besta leik­mann sem hann hafi leikið með á ferli sínum.

3. Hápunkt­ur­inn á ferli Totti var fyrir meira en ára­tug, þegar Ítalía varð heims­meist­ari, á HM í Þýska­landi árið 2006. Totti var stoðsend­inga­kóngur keppn­innar, og lék lyk­il­hlut­verk sem sókn­ar­tengiliður, með miðju­menn­ina Daniel De Rossi og Andrea Pirlo fyrir aftan sig. Totti var af mörgum tal­inn vera kom­inn á síð­ustu stig fer­ils­ins, tæp­lega þrí­tugur. Enginn gat séð það fyrir að hann yrði enn að ell­efu árum síðar!

4. Totti gift­ist eig­in­konu sinni Ilary Blasi 19. Júní 2005 og brúð­kaupið sýnt í beinni útsend­ingu í sjón­varpi. Blasi er vin­sæl sjón­varps­kona á Ítalíu, og hafði starfað við fyr­ir­sætu­störf þegar þau kynnt­ust. Totti var í fyrstu á móti því að sýna beint frá brúð­kaup­inu, en samdi um að fjömiðlar þyrftu að greiða veru­legar fjár­hæðir til að sýna frá þessum per­sónu­lega degi þeirra hjóna, og fóru allir pen­ing­arnir til góð­gerð­ar­mála. Totti og Blasi eru oft kölluð Beckham-hjón Ítala, með skírskotun í David og Victoriu Beckham.

5. Totti og bróðir hans Riccardo reka við­skipta­veldi þeirra. Það byggir á tveimur stoðum. Annars vegar rekstri fót­bolta­skóla undir merkjum félags sem heitir Number Ten. Þar á meðal er knatt­spyrnu­skóli Francesco Totti og einnig mót­or­hjóla­í­þrótta­fé­lag sem heitir Totti Top Sport.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár