Hvorki Miðflokkurinn né Flokkur fólksins næði manni inn á þing

Fylgi Mið­flokks­ins ásamt fylgi Flokks fólks­ins mælist nú undir fimm pró­sent. Innan við helm­ingur þeirra sem kusu Mið­flokk­inn síð­ast myndi kjósa hann núna. Sam­fylk­ingin mælist með mesta fylgið og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þar rétt á eftir.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Inga Sæland.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Inga Sæland.

Hvorki Mið­flokk­ur­inn né Flokkur fólks­ins næði fram­bjóð­endum sínum inn á þing sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi beggja flokk­anna mælist nú undir fimm pró­sentum, fylgi Mið­flokks­ins mælist 4,6 pró­sentum og fylgi Flokks fólks­ins 4,4 pró­sent. Könnun fór fram dag­ana 30. nóv­em­ber til 3. des­em­ber 2018. 

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins og tveir þing­menn Flokks fólks­ins tóku þátt í sam­ræðum á Klaust­ur­bar þar sem þing­menn­irnir urðu upp­vísir að því að sví­virða aðra þing­menn, einkum konur, og minni­hluta­hópa á barnum Klaustur, þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið hefur verið áber­andi í fjöl­miðlum að und­an­förnu.

Samfylkingin stærst

Sam­fylk­ingin mælist með mesta fylgið, eða 19,7 pró­sent. Píratar mæl­ast með 15 pró­sent og Viðreisn með 13,4 pró­sent.

Af rík­is­stjórn­ar­flokk­unum mælist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með minnst eða tæp 9 pró­sent, Vinstri græn með 15 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 19,3 pró­sent. [adspot]

Innan við helmingur þeirra sem kaus Miðflokkinn í síðustu kosningum myndi kjósa hann aftur

Maskína spurði hvaða flokk fólk myndi kjósa í dag og hvaða flokk það kaus í síðustu kosn­ingum. Innan við helm­ingur þeirra sem segj­ast hafa kosið Mið­flokk­inn í síðustu kosn­ingum ætlar að kjósa hann aftur nú, eða tæp­lega 49 pró­sent. Rúmlega 59 pró­sent þeirra sem kusu Flokk fólks­ins í síðustu kosn­ingum myndu kjósa hann aftur nú.

Aðeins tæp­lega 61 pró­sent þeirra sem kusu Vinstri­hreyf­ing­una – grænt fram­boð síðast myndu kjósa flokk­inn aftur nú.

Hæsta hlut­fall þeirra kjósenda sem myndu kjósa sama flokk­inn aftur eru kjós­endur Við­reisnar eða rúmlega 92 pró­sent. Hátt hlut­fall kjós­enda Framsóknar­flokks, Sam­fylk­ingar, Pírata og Sjálfstæð­is­flokks­ins myndu kjósa þá aftur eða um 82 til 85 pró­sent kjósenda.

Fyrrverandi kjósendur Flokks fólksins myndu helst kjósa Pírata

Samkvæmt könnun Maskínu eru þeir kjósendur sem ekki ætla kjósa sama flokk og síð­ast frekar ráð­villtir en 19 til 25 pró­sent þeirra segj­ast ekki vita hvaða flokk þeir myndu kjósa nú. En af þeim sem vita hvað þeir ætla kjósa í stað­inn þá ætla fyrr­ver­andi kjós­endur Flokks fólks­ins helst að kjósa Pírata, tæp 15 pró­sent, síðan Viðreisn, 11 pró­sent eða Fram­sókn­ar­flokk­inn 7,4 pró­sent.

Fyrr­ver­andi kjós­endur Mið­flokks­ins myndu helst kjósa Flokk fólks­ins eða Fram­sókn­ar­flokk­inn, bæði 16, 3 pró­sent. Síðan myndu 11,6 pró­sent kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Fyrr­ver­andi kjósendur Vinstri grænna hyggj­ast, að langstærstum hluta, kjósa Sam­fylk­ing­una eða 21, 5 pró­sent en rúm­lega 10 pró­sent myndu kjósa Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár