Brynjar og og Guðlaugur Þór leiða hjá Sjálfstæðisflokki í Reykjavík

Ef ekki verða gerðar breyt­ingar á listum Sjálf­stæð­is­flokks á lands­byggð­inni frá því í síð­ustu kosn­ingum munu sex karlar sitja í sex odd­vita­sætum á fram­boðs­listum flokks­ins í kom­andi kosn­ingum.

Guðlaugur Þór Þórðarson mun leiða annað höfuðborgarkjördæmið og Brynjar Níelsson hitt.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son mun leiða annað höf­uð­borg­ar­kjör­dæmið og Brynjar Níelsson hitt. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Stillt verður upp á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Þetta var ákveðið á full­trúa­ráðs­fundi í gær­kvöldi og greint er frá mál­inu á mbl.is. Þar segir að upp­still­ingin verði sú sama og hún var í þing­kosn­ing­unum í fyrra utan þess að allir fær­ast upp um eitt sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík suður, þar sem Ólöf Nordal, fyrr­ver­andi odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu, er látin.

Það þýðir að Brynjar Níelsson mun leiða flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son mun leiða í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Kjör­dæma­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi mun funda í kvöld um aðferð við val á fram­boðs­lista en fyrir liggur að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins og starf­andi for­sæt­is­ráð­herra, mun leiða þann lista.

Enn á eftir að afgreiða það hvernig listar Sjálf­stæð­is­flokks­ins verða mann­aðir í lands­byggð­ar­kjör­dæm­unum þremur. Það verður gert um kom­andi helgi. Í kosn­ing­unum í fyrra leiddi Haraldur Bene­dikts­son lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Kristján Þór Júl­í­us­son var í fyrsta sæti í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þá var Páll Magn­ús­son í fyrsta sæti í Suð­ur­kjör­dæmi. Verði ekki breyt­ingar þar á munu því sex karlar verða í odd­vita­sæt­unum sex hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í kom­andi kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár