Veiðigjöld lækka um milljarða þrátt fyrir fordæmalausan hagnað

Eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja jókst um 265 millj­arða króna frá lokum 2008 og út 2014. Hagn­að­ur­inn var 242 millj­arðar og arð­greiðsl­urnar tæp­lega 50 millj­arðar. Samt hafa veiði­gjöld lækkað úr 12,8 millj­örðum í 4,8 millj­arða.

Þann 7. júní 2012 var boðað til mik­illa mót­mæla á Aust­ur­velli. Mótmælin voru skipu­lögð af Lands­sam­bandi íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) og sjó­menn og útgerð­ar­menn fjöl­menntu til að taka þátt í þeim. Skipum íslenskra útgerða var siglt í land til að áhafnir þeirra gætu verið með og blásið var í þokulúðra skip­anna þegar inn í höfn­ina var komið. Ástæða mót­mæl­anna voru fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar þáver­andi rík­is­stjórnar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Í breyt­ing­unum fólst að útgerðir sem nýttu fisk­veiði­auð­lind­ina ættu að borga veiði­gjöld. Mótmælin báru ekki til­ætl­aðan árangur og lögin voru sam­þykkt. Vegna fisk­veiði­árs­ins 2012/2013 greiddi útgerðin 12,8 millj­arða króna í rík­is­sjóð vegna veiði­gjalda.

Vorið 2013 tók ný rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar við völdum á Íslandi og í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hennar kom fram að lög um veiði­gjöld yrðu end­ur­skoðuð. Það varð eitt af fyrstu verkum þeirrar rík­is­stjórnar að sam­þykkja lög sem lækk­uðu veiði­gjöld, og voru þau sam­þykkt 5. júlí 2013. Samhliða var boðað að til stæði að leggja fram frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun laga um veiði­gjöld. Sú heild­ar­end­ur­skoðun hefur enn ekki átt sér stað.

Vegna þeirra breyt­inga sem ráð­ist hefur verið í hafa verða veiði­gjöld sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs lækkað mikið. Á næsta fisk­veiði­ári verða þau 4,8 millj­arðar króna, eða átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013.

265 milljarða viðsnúningur

Í árs­lok 2008 var staða íslenska sjáv­ar­út­vegs­ins ekk­ert sér­lega beysin. Efna­hags­hrunið hafði leikið geir­ann, sem var mjög skuld­settur í erlendum gjald­eyri, illa og eigið fé hans var nei­kvætt um 80 millj­arða króna. Síðustu tæpu átta árin hafa hins vegar verið lang­bestu rekstr­arár útveg­ar­ins. Veltan hefur farið úr 150 millj­örðum króna í 277 millj­arða króna árið 2013. Hagnaður sjáv­ar­út­vegs­ins frá árs­lokum 2008 og út árið 2014 var 242 millj­arðar króna. Þar spilar einkum tvennt inn í. Í fyrsta lagi geng­is­fall íslensku krón­unnar og í öðru lagi mak­ríl­veiðar.

Geng­is­fallið, og still­ing gengis eftir hafta­setn­ingu með hags­muni útflutn­ings­greina (aðal­lega sjáv­ar­út­vegs) að leið­ar­ljósi hefur aukið tekjur útgerð­ar­innar í krónum talið mjög mikið, enda fisk­ur­inn nær allur seldur fyrir erlendan gjald­eyri. Mak­ríl­veið­arnar hafa síðan verið eins og lot­tí­vinn­ingur. Heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæti hans hefur verið um 20 millj­arðar króna á ári og fram­legðin af veið­unum án for­dæma í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Þessar breytur hafa gert það að verkum að algjör við­snún­ingur varð á stöðu íslenska sjáv­ar­út­vegs­ins. Í árs­lok 2014 var eigið fé grein­ar­innar orðið jákvætt um 185 millj­arða króna og við­snún­ing­ur­inn því 265 millj­arðar króna á sjö árum.

Arðgreiðslur: 49 milljarðar

Þá eru ekki talin með þau verð­mæti sem stærstu eig­endur íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa greitt sér út í arð. Það eru verð­mæti sem renna að mestu til mjög fámenns hóps sem hefur komið sér upp sjálf­bæru ríki­dæmi sem er án for­dæma á Íslandi. Alls hafa arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja numið 49 millj­örðum króna á tíma­bil­inu 2008-2014. Lang­hæstu arð­greiðsl­urnar, ann­ars vegar 11,8 millj­arðar króna og hins vegar 13,5 millj­arðar króna, hafa átt sér stað á árunum 2013 og 2014.

Á árunum eftir hrun hefur skulda­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja líka batnað mikið. Afborg­anir umfram nýjar lang­tíma­skuldir á árunum 2008-2014 voru 129 millj­arðar króna og frá því að skuld­ar­staða geirans náði hámarki hafa skuldir hans lækkað um rúm 30 pró­sent. Auk þess hefur fjár­fest­ing tekið við sér á fullu. Alls hefur verið fjár­fest í nýjum skipum og öðrum til­heyr­andi fyrir 70 millj­arða króna frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2014. Langmest var fjár­fest­ingin á árinu 2014, þegar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin fjár­festu fyrir 27 millj­arða króna.

Sam­an­dregið hafa eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja því greitt sér 49 millj­arða króna í arð á árunum eftir hrun, borgað niður skuldir fyrir 129 millj­arða króna og fjár­fest fyrir 70 millj­arða króna.

Þrátt fyrir þessa for­dæma­lausu vel­gengni greiða þau sífellt minna fyrir afnot sitt af auð­lind­inni. Eftir að veiði­leyfagjöldin voru lögð á sum­arið 2012 þurftu útgerð­ar­fyr­ir­tækin að greiða 12,8 millj­arða króna í veiði­gjald, bæði almenn og sér­stakt. Síðan þá hafa laga­breyt­ingar séð til þess að gjöldin lækka ár frá ári. Fisk­veiði­árið 2013/2014 greiddu þau 9,2 millj­arða króna, árið eftir voru þau 7,7 millj­arðar króna og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári eru þau áætluð 7,4 millj­arðar króna. Á næsta fisk­veiði­ári, sem hefst í ágúst næst­kom­andi og stendur í eitt ár, er hins vegar áætlað að heild­ar­veiði­gjöld drag­ist saman um 40 pró­sent og verði 4,8 millj­arðar króna.

Reyndu að gefa makrílkvótann

Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu snemma árs 2015. Ljóst var frá fyrstu mín­útu að engin sátt yrði um frum­varp milli stjórn­ar­flokk­anna og snér­ust deilur þeirra fyrst og síð­ast um hver ætti að fara með for­ræði yfir fisk­veiði­kvót­anum, ríkið eða útgerðin. Á end­anum var frum­varpið ekki lagt fram.

Frumvarp um úthlutun mak­ríl­kvóta var ekki síður umdeilt. Upp­haf­lega stóð til að kvóta­setja mak­ríl og gefa útgerð­unum sem veitt höfðu mak­ríl­inn heim­ildir til að veiða hann. Í stað þess að úthluta kvót­anum var­an­lega til útgerð­anna, líkt og áður hafði verið gert, þá átti að fara ákveðna milli­leið og úthluta honum til sex ára með fram­leng­ing­ar­á­kvæði. Miðað við hefð­bundna reikni­reglu var heild­ar­verð­mæti mak­ríl­kvót­ans á bil­inu 150 til 170 millj­arðar króna. Því stóð til að gefa völdum útgerðum þau verð­mæti án end­ur­gjalds.

Sigurður Ingi Jóhannsson reyndi að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og kvótasetja makríl. Hvorugt tókst. Hann er í dag forsætisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son reyndi að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og kvóta­setja mak­ríl. Hvorugt tókst. Hann er í dag for­sæt­is­ráð­herra.

Í stuttu máli varð allt vit­laust. Ríf­lega 51 þús­und manns skrif­uðu undir áskorun á for­seta Ís­lands að vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hverjum þeim lög­um ­sem Alþingi sam­þykkir þar sem fisk­veiði­auð­lindum væri ráð­stafað til lengri tíma en eins árs, á meðan ekk­ert ákvæði um ­þjóð­ar­eign á auð­lindum er í stjórn­ar­skrá.

Á end­anum komst mak­ríl­frum­varpið ekki út úr atvinnu­vega­nefnd og hefur ekki verið lagt fram á ný.

Píratar vilja sækja 30 milljarða á ári

Sögulega hafa núver­andi stjórn­ar­flokkar, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur, staðið varð­stöðu um það fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi sem er við lýði og hvernig arð­semi af nýt­ingu fisk­veiði­auð­lind­ar­innar skipt­ist á milli útgerð­ar­manna og rík­is­kass­ans. Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði til að mynda á Alþingi í maí að honum þótt ekki sann­gjart að taka sér­stakt gjald af sjáv­ar­út­veg­in­um um­fram aðrar at­vinnu­grein­ar sem nýta auð­lind­ir lands­ins með ein­hverj­um hætti.Þau séu í raun auka­skatt­ur á hluta lands­byggðar­inn­ar. Best væri að nýta skatt­kerfið til að inn­heimta arð af auð­lind­um og setja all­ar at­vinnu­grein­ar und­ir sama hátt.

Fátt bendir til þess að stjórn­ar­flokk­arnir sitji áfram við völd að loknum kosn­ingum, fari þær fram í haust líkt og boðað hefur verið. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar er sam­an­lagt fylgi þeirra 32,7 pró­sent og þeir því langt frá þeim meiri­hluta sem flokk­arnir tveir hafa í dag.

Miðað við stöð­una í íslenskum stjórn­málum í dag verður að telj­ast ólík­legt að ein­hver hinna flokk­anna sem bjóða fram í haust muni vilja mynda rík­is­stjórn með öðrum hvorum stjórn­ar­flokknum. Þvert á móti hefur mikið verið rætt í þeirra röðum að mynda kosn­inga­banda­lag stjórn­ar­and­stöðu­flokka og mögu­lega nýrra fram­boða fyrir kosn­ingar. Hversu djúp­stætt það banda­lag yrði liggur ekki fyrir, og lík­ast myndi það ekki snú­ast um annað en að sam­ein­ast um valin mál og heita því að vinna saman eftir kosn­ingar.

Eitt þeirra mála sem mik­ill sam­hljómur er á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna er einmitt breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu.

Píratar, sem hafa mælst stærsti flokkur lands­ins um margra mán­aða skeið, hafa til að mynda sam­þykkt sjáv­ar­út­vegs­stefnu sem felur í sér að afla­heim­ildir verði boðnar upp. Samkvæmt stefn­unni er gert ráð fyrir að þriðj­ungur upp­boðs­tekna renni til sveit­ar­fé­laga i gegn­um ­jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga eða sam­bæri­legan sjóð. Árlegar við­bóta­tekj­ur ­rík­is­sjóðs af þess­ari aðgerð eiga að vera 20 millj­arðar króna á ári en sveit­ar­fé­laga um tíu millj­arðar króna.

Sam­fylk­ingin hefur sömu­leiðis lengi haft þá stefnu að arð­ur­inn af nýt­inga auð­linda fari til þjóð­ar­innar og í stefnu Vinstri-grænna er talað um inn­köllun afla­heim­ilda og sann­gjarn­ari úthlutun þeirra sem tryggi aðra skipt­ingu á arð­semi en nú er við lýði. Í ályktun Bjartrar fram­tíðar segir að auð­lindir „til lands og sjávar skili þjóð­inni mun meira fé í sam­eig­in­lega sjóði, sem síðan nýt­ist til þess að bæta almenn skil­yrði fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki af öllu tagi um allt land.“

Eini flokk­ur­inn utan stjórnar sem mælist með nægj­an­legt fylgi til að kom­ast inn á þing í síð­ustu könn­unum en er ekki með stefnu sem felur í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu er hin nýstofn­aða Viðreisn. Í var­lega orð­aðri mál­efna­yf­ir­lýs­ingu á vef flokks­ins segir að Viðreisn vilji að Ísland verði áfram í for­ystu um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda hafs­ins og að sett verði fram nýt­ing­ar­stefna um auð­lindir sem bygg­ist á vís­inda­legum grunni. Í grunn­stefnu flokks­ins stendur þar að auki að hann vilji að nátt­úru­auð­lindir lands­ins sé sam­eign þjóð­ar­innar, þær beri að nýta skyn­sam­lega og greiða mark­aðs­verð fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár