Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný ríkisstjórn að fæðast

Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð hafa náð saman um meg­in­at­riði í myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Þegar hefur náðst mála­miðlun í sjáv­ar­út­vegs­málum. Vinstri græn vilja ekki vera fjórða hjólið þótt það standi til boða.

Ný rík­is­stjórn virð­ist vera að mynd­ast. Hún mun sam­an­standa af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð og for­sæt­is­ráð­herra verður Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ólíklegt virð­ist sem stendur að til tak­ist að bæta fjórða hjól­inu undir þennan rík­is­stjórn­ar­vagn. Ef af verður mun hin nýja rík­is­stjórn því vera með minnsta mögu­lega þing­meiri­hluta. Og miklir umróta­tímar eru fram undan þar sem veru­lega mun reyna á sam­stöðu innan rík­is­stjórnar.

Flokk­arnir þrír fóru í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður fyrr í þessum mán­uði eftir að Bjarna hafði verið fært stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af for­seta Íslands. Hann stöðv­aði þær við­ræður 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn vegna þess að flokkur hans gat ekki sætt sig við að hluti afla­heim­ilda, 3-4 pró­sent, yrði boð­inn upp á mark­aði til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóðs. Auk þess var and­staða við mála­miðlun í Evr­ópu­sam­bands­málum innan flokks­ins, en Viðreisn og Björt fram­tíð vilja láta kjósa um áfram­hald­andi við­ræður við sam­bandið.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að við­ræður milli flokk­anna þriggja hafi farið á fullt aftur um helg­ina og fyrir liggja mála­miðl­un­ar­til­lögur í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum sem allir virð­ast geta sætt sig við. Lítið fæst upp­gefið um útfærslur þeirra mála­miðl­ana utan þess að í þeim muni fel­ast að minnsta kosti tákn­rænar aðgerðir í átt að meira frelsi í verslun með land­bún­að­ar­vörur og að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki muni þurfa að greiða hærri gjöld fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni.

Skattkerfisbreytingar í farvatninu

Auk þess er vilji til að hrinda í fram­kvæmd ein­földun á skatta­kerf­inu. Þær til­lögur byggja á vinnu Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld, sem birti skýrslu í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­inn með 27 til­lögum um breyt­ingar á skatt­kerf­inu. Því til við­bótar má búast við að ýmis frjáls­lynd mál á borð við frjáls­ari sala á áfengi í versl­unum muni fá braut­ar­gengi hjá þess­ari rík­is­stjórn.

Verk­efna­stjórnin sem vann skatta­til­lög­urnar var skipuð sex sér­fræð­ingum í skatta­málum. Á meðal þess sem hún lagði til var að sam­sköttun verði hætt, að tveimur skatt­þrepum – 25 og 43 pró­sent – verði komið á, að per­sónu­af­sláttur byrji í 0 og hækki krónu fyrir krónu upp í 970 þús­und krónur, vaxta­bóta­kerfið verði fellt niður og sparn­aði þess í stað beint til lág­tekju­hópa með útborg­an­legum per­sónu­af­slætti, barna­bætur verði réttur barns og verði hækk­aðar umtals­vert. Þessar breyt­ingar eiga að flytja ábata frá efstu lög­unum, þeim sem þéna mest, yfir til lág- og milli­tekju­hópa. Því felur kerfið í sér jöfnun.

Þá var lagt til að tekið yrði upp eitt virð­is­auka­skatts­þrep, fjár­magnstekjur verði mið­aðar við raun­á­vöxtun í stað nafn­á­vöxt­unar og fjöld­inn allur af auð­linda­gjöldum fyrir nýt­ingu á nátt­úru­auð­lindum. Meðal þess sem var lagt til var að bíla­stæða­gjald yrði tekið upp fyrir að leggja við helstu ferða­manna­staði, að gistin­átta­gjald yrði hækkað, að sam­ræmd yrði auð­lind­arenta fyrir nýt­ingu í sjáv­ar­út­vegi og orku­fram­leiðslu til að Ísland fái hærri skatt­greiðslur fyrir nýt­ingu á auð­lindum þjóð­ar­innar.

Hægrisinnaðasta ríkisstjórn lýðveldissögunnar?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gafst loks upp á því að reyna að mynda rík­is­stjórn sem inni­heldur Fram­sókn­ar­flokk­inn undir lok síð­ustu viku. Ljóst var að hvor­ugur þeirra mögu­leika sem flokk­ur­inn átti í myndun rík­is­stjórnar, Vinstri græn eða miðju­banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, tók slíkt sam­starf í mál.

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins var einnig búið að úti­loka að mynda rík­is­stjórn með Framsókn og Sam­fylk­ingu, bæði vegna þess að mikil andúð ríkir gagn­vart Sam­fylk­ing­unni hjá ákveðnum kreðsum innan flokks­ins og slík rík­is­stjórn væri bara með 32 þing­menn. Einn þeirra yrði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem hefur verið ein­angr­aður af for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins í við­leitni hennar til að kom­ast í rík­is­stjórn.

Óttarr Proppé, Benedikt Jóhannesson og Bjarni Benediktsson hafa reynt einu sinni áður að mynda ríkisstjórn. Þeim viðræðum var slitið 15. nóvember síðastliðinn.
Óttarr Proppé, Benedikt Jóhann­es­son og Bjarni Bene­dikts­son hafa reynt einu sinni áður að mynda rík­is­stjórn. Þeim við­ræðum var slitið 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Eftir að óform­legar við­ræður um myndun þess sem kallað hefur verið hægri­s­inn­að­asta rík­is­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar hófust aftur um liðna helgi hafa sum þeirra ágrein­ings­mála sem gerðu það að verkum að upp úr slitn­aði milli Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar/Bjartrar fram­tíðar um miðjan nóv­em­ber verið afgreidd. Formenn flokk­anna þriggja, Bjarni Bene­dikts­son, Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé, hitt­ust á laug­ar­dag og sam­töl milli lyk­il­fólks í flokk­unum héldu svo áfram um helg­ina.

Á sunnu­dags­kvöld stóð til að for­menn­irnir hitt­ust aftur en því var frestað, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, vegna þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi gera loka­til­raun til að fá Vinstri græn um borð í rík­is­stjórn­ina. Bjarni Bene­dikts­son til­tók það enda sér­stak­lega, í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér þegar við­ræðum flokk­anna þriggja var slitið síð­ast, að aðstæður á Íslandi „kalli á rík­is­stjórn með breið­ari skírskotun og sterk­ari meiri­hluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið.“

Vinstri græn föst á afstöðu sinni

Það mun hins vegar, að öllum lík­indum, ekki ganga eftir. Vinstri græn eru mjög stað­föst í þeirri afstöðu sinni að taka ein­ungis þátt í rík­is­stjórn sem eykur sjálf­bærar tekjur rík­is­sjóðs veru­lega til að hægt verði að ráð­ast stór­tæka sókn í heil­brigðis-, vel­ferðar- og mennta­málum. Það ger­ist ekki nema með hærri sköttum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og Björt fram­tíð séu ekki að fara að fall­ast á slíkar breyt­ingar.

Bent er á að um 20 millj­arða króna gatsé á rekstri rík­is­sjóðs án ein­skipt­isliða og stöð­ug­leika­fram­laga á þessu ári og að halla­leysi síð­ustu ára hafi ætið verið brúað með tíma­bundnum sér­tekjum á borð við sér­tæka banka­skatta, bók­halds­æf­ingum á borð við þær að breyta skuld við Seðla­bankaog bók­færa hana sem arð eða ein­skipt­isliðum á borð við arð­greiðslur úr fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Katrín Jakobsdóttir og flokksfólk hennar virðist ekki vilja verða fjórða hjólið undir þeirri ríkisstjórn sem er í mótun.
Katrín Jak­obs­dóttir og flokks­fólk hennar virð­ist ekki vilja verða fjórða hjólið undir þeirri rík­is­stjórn sem er í mótun.

Til að ráð­ast í þá sókn sem Vinstri græn setja sem for­sendu þess að taka þátt í rík­is­stjórn þurfi að hækka fram­lög til mála­flokk­anna veru­lega og það sé ekki hægt að nota stöð­ug­leika­fram­lög til þess, enda séu það pen­ingar sem ein­ungis sé hægt að nota einu sinni. Auk þess liggur fyrir skuld­bind­ing um að nota stöð­ug­leika­eign­irnar til að greiða niður skuldir hins opin­bera.

Þá er sú skoðun ríkj­andi innan Vinstri grænna að flokk­arnir þrír: Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð, séu allir með ríkar hægri áherslur. Í ljósi þess að þeir þrír eru með meiri­hluta þing­manna á Alþingi þá hræð­ast Vinstri græn að hægri hlið rík­is­stjórn­ar­innar myndi keyra yfir vinstri hlið­ina ef á reyndi.

Ekki slæmt hlutskipti að sitja í stjórnarandstöðu

Auk þess eru mörg átaka­mál fram undan í íslensku sam­fé­lagi. Í ljósi þess að vinstri flokkum gekk ekki sér­stak­lega vel heilt yfir í síð­ustu kosn­ingum þá telja þeir ekki svo slæman kost að vera í sterkri stjórn­ar­and­stöðu gegn mjög veikri rík­is­stjórn miðju- og hægri­flokk­anna sem hefur ein­ungis eins manns meiri­hluta.

Sér­stak­lega er horft til þeirra deilna sem fram undan eru á vinnu­mark­aði vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og við­haldi SALEK-sam­komu­lags­ins. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar verður alltaf álitin rík­is­stjórn atvinnu­lífs­ins, m.a. í ljósi þess að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Þor­steinn Víglunds­son, verður að öllum lík­indum ráð­herra í rík­is­stjórn­inni, verði hún að veru­leika.

Vinstri­vængur stjórn­mál­anna telur nær öruggt að vinnu­mark­aðs­deil­urnar sem fram undan eru, meðal ann­ars vegna þess að kenn­arar virð­ast ekki ætla að beygja sig undir SALEK-sam­komu­lagið og stefna í verk­fall, muni reyna mjög á rík­is­stjórn­ina og hversu sam­heldin hún verði. Á móti verði mjög sterk stjórn­ar­and­staða Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks og Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið undanfarið ár