Sonur mannsins með leppinn: „Svona flúði ég vígasamtök föður míns“

Dakota Adams, sonur leiðtoga víga­samtakanna the Oath Keepers, ólst upp við að heims­endir væri í nánd og að öruggast væri að klæðast herklæðum og eiga sem flestar byssur. Dakota tókst að frelsa móður sína og yngri systkini frá heimilis­föðurnum.

Hann var búinn að hugsa um flóttann árum saman. Heraginn sem hann ólst upp við kom sér kannski vel við skipulagninuna. En það var það sem hann var að flýja.

Svo rann dagurinn upp. Kaldur og drunga­legur dagur í febrúar 2018. Hann ætlaði að hjálpa móður sinni og fimm yngri systkinum að komast undan ofríki föðurins á heimilinu.

Og það tókst.

„Ég lifði algjör­lega undir ógnar­stjórn andlegs hryðju­verkamanns,“ segir Dakota Adams, áður Dakota Stewart Rhodes, sem vill ekki lengur kenna sig við föður sinn á nokkurn hátt. Hann og móðir hans, Tasha Adams, segja frá hvernig þau, ásamt fimm yngri systkinum Dakota, flúðu Rhodes og víga­sveitina sem hann leiddi, í ítarlegu viðtali við BBC.

Faðirinn, Elmer Stewart Rhodes, er stofnandi og leiðtogi öfga- og víga­sveitarinnar the Oath Keepers. Í síðustu viku var Rhodes sakfelldur fyrir uppreisnar­áróður gegn bandaríska ríkinu fyrir aðild sína að árásinni á bandaríska þinghúsið í janúar 2021. Hann á yfir höfði sér 20 ára fangelsisdóm. Fjöl­skyldan sér loks fram á að geta endur­byggt líf sitt.

Uppgangur vopnaðra sveita borgara með aukinni skautun

Elmer Stewart Rhodes er 57 ára fyrr­ver­andi fall­hlífa­her­maður með lög­fræði­gráðu frá Yale-há­skóla. Kleinu­hringja­skegg og leppur fyrir vinstra auganu gera það að verkum að hann er auðþekkjanlegur og varð hann fljótlega með þekktari leiðtogum vopnaðra sveita borgara (e. militias) í Banda­ríkjunum.

Með aukinni skautun eða pólariseringu í bandarískum stjórn­málum hefur uppgangur vopnaðra sveita borgara ágerst og er the Oath Keepers gott dæmi um slíka sveit. Víga­sveitir þessar hafa margar orðið upp­vísar að því að hóta, hvetja til og beita ofbeldi í mót­mæla­að­gerðum sem breyt­ast þá enn frekar í ofbeld­is­fullar óeirð­ir.

Víga­veitum sem þessum hefur fjölgað í forsetatíð Donalds Trump og enn frekar eftir að hann lét af embætti í ársbyrjun í fyrra. 92 vopnaðar sveitir borgara voru starfandi í Banda­ríkjunum á síðasta ári í 30 ríkjum samkvæmt úttekt frjálsu félaga­samtakanna Southern Poverty Law Center.

Víga­sveitin the Oath Keepers eru öfga­hægri-­sam­tök þar sem her­þjálfun er grunn­þátt­ur. Starf­semi slíkra vopn­aðra sveita er form­lega ólög­leg í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna en þær hafa fengið að starfa að mestu óáreitt­ar. Rhodes stofn­aði sam­tökin eftir að Barack Obama var kjör­inn for­seti árið 2008. Rhodes sagði skoð­anir Obama stang­ast á við banda­rísku stjórn­ar­skrána og vildi grípa til sinna ráða.

Fyrrverandi fallhlífarhermaður sem skaut sjálfan sig í augað

Mik­ill fjöldi víga­manna í sveitum sem þessum eru fyrrum eða núver­andi her- og lög­reglu­menn. Rhodes er einmitt fyrr­verandi hermaður. Fallhlífar­hermaður.

Rhodes hætti í hernum eftir að hann bakbrotnaði við æfingar og hóf nám í stjórn­mála­fræði og starf­aði sem aðstoð­ar­maður Ron Paul, þing­manns Repúblikana, árið 2001. Hann útskrif­að­ist sem lög­fræð­ingur frá Yale-há­skóla árið 2004 og starf­aði sem lög­maður til árs­ins 2015 þegar hann var sviptur lög­manns­rétt­indum fyrir að brjóta gegn siða­reglum Hæsta­réttar í Mont­ana. Frá 2015 hefur hann því alfarið ein­beitt sér að the Oath Keepers.

Rhodes hefur verið áhuga­maður um byssur frá unga aldri. Árið 1993 varð hann fyrir því óhappi að skjóta sjálfan sig í augað með 22 kali­bera skamm­byssu sem hann átti. Rhodes er með gervi­auga en kýs oft­ast að nota lepp sem hefur orðið að eins konar ein­kenn­is­tákni og er hann orð­inn þekktur sem „mað­ur­inn með lepp­inn“.

„Viljið þið koma heim með steik?“

Dakota flúði ásamt móður sinni, Tasha Adams, og fimm yngri systkinum hans frá heimili fjöl­skyldunnar í smábænum Kalispell í Montana.

Aðdragandi flóttans var langur en þegar þau létu til skarar skríða gekk allt upp. Systkini Dakota földu sig undir teppum í bílnum og Dakota og móðir hans sögðu við Rhodes að þau ætluðu að skjótast á rusla­haugana með gamalt drasl sem stóð til að henda fyrir löngu.

Rhodes kallaði á eftir þeim þegar þau voru í þann mund að leggja af stað og mæðginin voru sannfærð um að hann vissi hvað stóð til og óttuðust hið versta. „Viljið þið koma heim með steik?“

Það var allt og sumt. Þau keyrðu í burtu og komu aldrei heim aftur.

Heimsendirinn sem var yfirvofandi

Fjöl­skyldan flutti til Kalispell skömmu eftir stofnun the Oath Keepers árið 2009. Fljótlega varð til smátt samfélag liðsmanna víga­sveitarinnar sem áttu það sameiginlegt að vilja helst vera látnir í friði og fá að undirbúa yfir­vofandi árás frá bandarískum stjórn­völdum, hvort sem það yrði í formi heimsendis eða annars konar hamfara eða árásar.

Dakota ólst upp við að heims­endir væri yfir­vofandi og á margar myrkar minningar um föður sinn. Eitt sinn þegar Dakota vakti föður sinn af blundi um miðjan dag spratt hann á fætur og ógnaði Dakota með hníf. Hann var fjögurra ára. „Hann grínaðist með að þetta væru hans karl­mannlegu, dýrslegu, hellisbúa viðbrögð sem heilinn virkjaði áður en hann vaknaði,“ segir Dakota. „Ég hef aldrei heyrt talað um slík viðbrögð annars staðar.“

Dakota lýsir því hvernig hann eyddi heilu sumri í að grafa göng í garði fjöl­skyldunnar sem hugsuð voru sem flótta­leið þegar stjórn­völd myndu ráðast inn á landsvæði þeirra. Því það er það sem átti eftir að gerast.

Tasha og Rhodes höfðu verið gift í nærri 25 ár. Þegar þau kynntust var hann ekki sérstak­lega pólitískur en var samt sem áður alltaf að leiða hugann að því hvernig hann myndi flýja ímyndaða óvini. Tasha nefnir sem dæmi að þegar Rhodes þurfti að athuga olíuna á bíl þeirra bað hann hana um að standa vörð og tryggja að enginn gæti „skellt húddinu á höfuð hans“.

„Yfirlýsing um fyrirmæli sem við munum ekki hlýða“

Eftir stofnun the Oath Keepers sat Rhodes við kvöld og nætur og skrifaði.

Eitt kvöldið ákvað hann að birta nokkurs konar lífs­reglur, eða stefnu­yfirlýsingu, víga­sveitarinnar, sem felst á einn eða annan hátt í því hvað liðsmenn sveitarinnar ætla ekki að gera til að fram­fylgja vilja stjórn­valda.

„Tíu fyrirmæli sem við munum ekki gegna“ var yfir­skrift blogg­færslu sem hann birti sem komst á flug og varla var að finna fréttastöð þar sem Rhodes var ekki til viðtals dagana á eftir.

Tasha segir Rhodes ítrekað hafa beitt ofbeldi og misst stjórn á skapi sínu. Hann baðst alltaf afsökunar og sagði hegðun sína orsakast af því að hann væri ekki búinn að finna tilgang sinn í lífinu. „Hluti af mér trúði því að þetta myndi hjálpa til við að laga það sem væri að hjá honum,“ segir Tasha.

Með „þetta“ á hún við andvöku­nætur Stewarts þar sem hann hamraði lífs­reglur the Oath Keepers á lykla­borðið. Lífs­reglur um allt það sem stjórn­völd vilja að almennir borgarar geri og liðsmenn the Oath Keepers ætluðu alls ekki að fara eftir.

Leiðtoginn sem ætlaði að bjarga Bandaríkjunum

Í fyrstu virtst Rhodes hafa fundið köllun sína. Fjöl­skyldan var öll hluti af the Oath Keepers. Dakota segir að þegar hann lítur til baka var fjöl­skyldan ekkert annað en „auka­hlutur við vöru­merkið Stewart Rhodes“.

Faðir hans hafði „gert fjöl­skylduna að miðpunkti persónunnar sem hann vildi sjálfur verða“. „Og í þessum raun­veruleika er hann mesti bjarg­vætturinn í sögu Banda­ríkjanna,“ segir Dakota.

Faðir Dakota tók þátt í árásinni á þinghúsið í Washington DC í janúar 2021. Árásin markaði nokkurs konar hápunkt starfsemi The Oath Keepers, vígasamtakanna sem Stewart Rhodes stofnaði árið 2009.
Faðir Dakota tók þátt í árásinni á þing­húsið í Washington DC í jan­úar 2021. Árásin mark­aði nokk­urs konar hápunkt starf­semi The Oath Keepers, víga­sam­tak­anna sem Stewart Rhodes stofn­aði árið 2009.

Herklæðnaður var eitt af einkennis­merkjum liðsmanna the Oath Keepers og Dakota leið alltaf jafn fáránlega þegar faðir hans skipaði honum að fara í herklæðnað frá toppi til táar. „Ég hef ekki hugmynd um hvort að mér finnst gaman að skjóta úr byssu eða hvort mér finnst gaman að vera „byssunörd“ af því að öll nýleg reynsla af byssum og notkun þeirra tengist Stewart eða Oath Keepers og það hefur verið mjög óþægileg reynsla,“ segir Dakota, sem ávarpar föður sinn með nafni en kallar hann ekki lengur pabba.

Fór að trúa að heimsendir væri ekki í nánd

Eftir að hafa þvælst um Banda­ríkin með the Oath Keepers, þar sem Rhodes lofaði fjöl­skyldunni vellystingum, fór Dakota að sjá föður sinn í réttu ljósi.

Liðsmenn the Oath Keepers greiða árgjald. Í fyrstu var það 30 dollarar en hækkaði síðar í 50 dollara, eða sem nemur rúmum sjö þúsund krónum. Liðsmenn the Oath Keepers voru 38 þúsund í fyrra. Rhodes hefur ekki skilað skatta­skýrslu frá stofnun samtak­anna og óljóst er því í hvað fjár­munirnir hafa farið. Tasha segir að eigin­maður hennar hafi farið illa með allt fjármagn sem hann komst yfir og varið því í það sem hanna kallaði „útbúnað til að lifa af“, skotfæri og ferða­kostnað.

„Ég fór að sjá Stewart eins og hann er í raun og veru og ég trúði ekki lengur á endalokin. Ég trúði ekki að heims­endir væri yfir­vofandi,“ segir Dakota.

Þegar það rann upp fyrir honum fór hann að sjá fram­tíðina í nýju ljósi. „Ég áttaði mig á að það eru hlutir í minni framtíð sem ég gat enn bjargað. En til þess þurfti ég að bjarga fjöl­skyldu minni frá Stewart.“

En hvernig?

Dakota átti enga peninga, hafði ekki fengið neina menntun, að undan­skilinni heima­kennslu frá föður sínum um frelsis­stríð Banda­ríkjanna, og félagslegt net hans var lítið sem ekkert. Hann byrjaði á því að taka bílpróf og lauk prófi sem samsvarar stúdents­prófi (e. GED).

Sjálfboðaliðastarf í slökkviliði leiðin út

Eftir að hann fékk bílpróf keyrði hann föður sinn af og til á fundi víga­samtakanna. Í einni slíkri ferð stoppaði hann á bensínstöð þar sem afgreiðslu­maðurinn kynnti hann fyrir slökkvistarfi bæjarins og að þar væri hægt að gerast sjálfboða­liði. Mikil þörf væri á slíkum til að kljást við skógar­elda.

Dakota sló til og kynntist þar nýju lífi og gildum. Í slökkviliðinu var ekki talað um aldagamla bardaga, mikilvægi þess að birgja sig upp af mat og skotfærum fyrir yfir­vofandi heimsendi og að búa sig undir að takast á við stjórn­völd. Tilgangurinn var að fara út í samfélagið og hjálpa fólki.

Með því að ganga til liðs við slökkviliðið kynntist Dakota nýju fólki, ferðaðist um Banda­ríkin og fékk greitt fyrir að berjast við skógar­elda. Faðir hans gaf honum leyfi til að sinna starfinu þar sem það passaði vel við þau karl­mannlegu gildi sem hann vildi að elsti sonur hans tileinkaði sér.

„Allt landið er öruggara með hann í fangelsi“

Allt var til reiðu í febrúar 2018 og flóttinn gekk eftir. Rhodes hefur einbeitt sér að the Oath Keepers. Án fjöl­skyldunnar.

Lífið eftir flóttann hefur reynst fjöl­skyldunni erfitt á ýmsa vegu þó léttirinn sé mikill.

„Þegar eitthvað slæmt kemur fyrir Stewart kemur eitthvað slæmt fyrir mig,“ segir Tasha. Hún sótti um skilnað kvöldið áður en þau flúðu en skilnaðurinn hefur enn ekki gengið í gegn og hefur hún áhyggjur af því að dómsmál Rhodes muni hafa bein áhrif á hana, til að mynda þegar kemur að greiðslu skaða- eða miskabóta.

Tasha Adams sótti um skilnaði kvöldið áður en hún flúði eiginmann sinn. Hann hefur ekki enn gengið í gegn.
Tasha Adams sótti um skiln­aði kvöldið áður en hún flúði eig­in­mann sinn. Hann hefur ekki enn gengið í gegn.

„En ég vil að hann fari í fangelsi því það er eina leiðin til að tryggja öryggi okkar,“ segir Tasha. Ekki liggur fyrir hvenær dómur verður kveðinn upp yfir Rhodes, en hann á yfir höfði sér 20 ára fangelsidóm.

„Ég er öruggari. Börnin eru öruggari. Og allt landið er öruggara með hann í fangelsi,“ segir Tasha. Fjöl­skyldan býr enn í Montana og verkefnið þeirra nú snýst um að aðlagast lífinu utan víga­sveitarinnar.

Dakota er 25 ára ára í dag og býr í lítilli íbúð við sveitaveg skammt fyrir utan smábæinn Kalispell í Montana, ekki langt frá heimili fjöl­skyldunnar sem hann flúði. Hann sinnir sjálfboða­liðastörfum í slökkviliði bæjarins sem honum líkar vel ásamt því að stunda háskólanám.

Vissu strax að þetta væri hann fyrir utan þinghúsið

Tasha býr sig undir að draugur Rhodes, þó hann sé enn sprellifandi, og the Oath Keepers muni ásækja hana og fjöl­skylduna alla tíð.

Það var einmitt tilfellið 6. janúar í fyrra þegar hópur fólks réðst á bandaríska þinghúsið. Tasha og Dakota fylgdust með í sjón­varpinu og á samfélags­miðlum og þurftu ekki að sjá andlit Rhodes til að vera fullviss um að hann væri þarna.

Þau þekktu liðsmenn the Oath Keepers strax. Þeir röðuðu sér upp í einfalda röð og lögðu hendur á axlir mannsins fyrir framan sig og marseruðu þannig inn í þinghúsið.

Dakota og systkini hans hafa nokkrum sinn hitt föður sinn eftir flóttann. En eftir að kórónu­veiru­faraldurinn braust út hafa þau ekki hitt hann en hann sendir Dakota SMS-skilaboð endrum og eins. Hann hefur ekki svarað neinu þeirra.

Tæp fimm ár eru liðin frá því að Dakota sagði skilið við föður sinn en reiði í hans garð er enn áþreifanleg. En það er léttirinn líka.

„Ég get andað rólegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár