Sigmundur Davíð: Bar hvorki formleg né siðferðisleg skylda til að segja frá

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að honum hafi ekki borið nein skylda, hvorki form­leg né sið­ferð­is­leg, til að greina frá því að eig­in­kona hans ætti kröfur í slitabú föllnu bank­anna. Hann íhug­aði aldrei að segja af sér vegna máls­ins og telur afskap­lega und­ar­legt að fara í slíkar vanga­veltur.

For­sæt­is­ráð­herra telur heldur ekki að hags­muna­skrán­ing þing­manna hafi ekki kraf­ist þess af honum að upp­lýsa um afland­seigu­fé­lag eig­in­konu sinnar né að ákvörðun hans um að upp­lýsa ekki um það sé ekki í and­stöðu við siða­reglur rík­is­stjórn­ar­innar, sem settar hafi verið af síð­ustu rík­is­stjórn og eru enn ekki stað­festar af þeirri sem nú situr. Sig­mundur Davíð seg­ist byggja sið­ferði sitt á lögum og reglum og á því að gera sam­fé­lag­inu sem mest gagn. Þegar hann hafi verið ásak­aður um að vera lýð­skrum­ari fyrir síð­ustu kosn­ingar fyrir að hafa talað dig­ur­bark­lega um að ganga hart fram gegn kröfu­höfum föllnu bank­anna hafi verið freist­andi að greina frá því að hann væri til­bý­inn að ganga á hags­muni eig­in­konu sinnar. „Mér fannst ekki sið­ferð­is­lega rétt að blanda henni í þessa umræðu til að upp­hefja sjálfan mig.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali við Sigmund Davíð í Frétta­blað­inu í dag. Þar svarar hann í fyrsta sinn spurn­ingum um aflands­fé­lag í eigu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu sinnar, og eign hennar á kröfum í slitabú föllnu bank­anna. Sig­mundur Davíð hefur ekki viljað svara spurn­ingum ann­arra fjöl­miðla um málið.

Í Frétta­blað­inu er Sig­mundur Davíð spurður hvað hafi ráðið því að eig­in­kona hans hafi til­kynnt um aflands­fé­lagið á þeim tíma sem hún gerði það, á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Hvort að það hafi verið vegna þess að fjöl­miðlar hefðu verið að graf­ast fyrir um málið eða hvort það hafi tengst því að siða­reglur þing­manna voru sam­þykktar í þing­inu dag­inn eftir. Hann svarar því ekki beint hvort þessi atriði hafi ráðið úrslitum, en stað­festir að „ein­hver fjöl­mið­ill­inn hafði verið að spyrj­ast fyrir um þetta, en það var bara fram­hald af þess­ari löngu sögu.“ For­sæt­is­ráð­herra segir að hann hafi verið við­staddur þegar eig­in­kona hans skrif­aði stöðu­upp­færsl­una á Facebook þar sem hún greindi frá eign­ar­hald­inu – það hafi gerst í eld­hús­inu heima hjá þeim – en segir hana hafa skrifað yfir­lýs­ing­una eina.

[adspot]

Sig­mundur Davíð seg­ist alltaf hafa litið svo á að allir Íslend­ingar séu kröfu­hafar, meðal ann­ars vegna þess að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins áttu miklar kröfur auk Seðla­banka Íslands. „Í þessu máli hefur eng­inn talið ástæðu til að gera sér­stak­lega grein fyrir hags­munum sínum. Þó voru þing­menn og fyrr­ver­andi ráð­herrar sem eiga gríð­ar­legan upp­safn­aðan líf­eyri sem eru líka hags­munir í þessu máli. Þú ræðir um siða­reglur, það er alveg ljóst að frá því að menn fóru að takast á við þessi stóru efna­hags­mál í tengslum við hrunið að menn hafa verið að taka ákvarð­anir sem hafa gíf­ur­leg áhrif. Ekki bara á hags­muni tengdra heldur þeirra sjálfra líka. Neyð­ar­lögin t.d. tryggðu eignir í bönkum, inni­stæður og pen­inga­mark­aðs­sjóði. Þær eignir voru tryggðar á kostnað ann­arra eigna, t.d. skulda­bréfa. Þeir breyttu lög­unum til að for­gangs­raða í þágu slíkra eigna. Samt sá eng­inn ráð­herra eða þing­maður ástæðu til þess að gera grein fyrir því hversu miklar eignir hann væri að verja fyrir sig eða sína.“

Hann segir frá­leitt að halda því fram að eignir eig­in­konu hans hafi haft eitt­hvað um fram­göngu hans í málum gegn kröfu­höfum föllnu bank­anna að segja. Hann hafi leitt þá umræðu um að ganga hart fram gegn þeim.

For­sæt­is­ráð­herra segir enn fremur að hann hafi ekki hugsað það sér­stak­lega að segja Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá eignum eig­in­konu sinnar. „Ég hugsa að mér hefði þótt ankanna­legt að fara að ræða fjár­mál eig­in­konu minnar við hann. Hann hefur verið með­vit­aður um það frá upp­hafi hvar ég stend í þessu máli. Hversu ákafur ég hef verið í að ná þessum árangri og hefur verið góður sam­starfs­maður. Það hefði kannski frekar verið freist­ingin að nota þetta í póli­tísku umræð­unni þegar sótt var að manni. Með því að segja sjá­iði, hérna. Þetta er svo mik­il­vægt að hugs­an­legir pen­ingar sem konan mín fengi með því að fara aðrar leiðir skipta engu máli. En þá hefði ég með því verið að sveifla henni fyrir framan mig þegar öll spjót stóðu á mér fyrir að vera með óraun­hæfar til­lögur.“ Sig­mundur Davíð segir að Bjarni hafi ekki tekið því illa þegar hann greindi honum frá aflands­fé­lagi og kröfu­eign eig­in­konu sinnar. Þá hafi heldur engin við­brögð komið frá Seðla­banka Íslands vegna þess.

Sig­mundur Davíð segir aðra stjórn­mála­menn ekki hafa greint frá hags­munum sínum eftir hrun þegar þeir tóku ákvarð­anir. Þá sem áttu pen­inga í bönkum, inn á inn­láns­reikn­ingum, í pen­inga­mark­aðs­sjóðum eða áttu mikil líf­eyr­is­rétt­indi. „Í öllum þeim ákvörð­unum hafa menn verið að fást við mikla hags­muni. Í flestum til­vika hefur þetta snú­ist um að þeir væru að verja hags­muni sína og fjöl­skyldna sinna án þess að þeir teldu ástæðu til að gera grein fyrir því. Að mínu mati var það bara eðli­legt því um leið voru þeir að verja hags­muni sam­fé­lags­ins. Hér er frekar um það að ræða að ég er að fórna hags­munum fjöl­skyld­unnar til þess að verja hags­muni sam­fé­lags­ins. Þessi efna­hags­lega end­ur­reisn hefur verið slagur og stríð þar sem ég hugs­aði allan tím­ann fyrst og fremst um mark­miðið. Ef maður hefur tæki­færi til að fara yfir allt sem maður hefur gert getur maður eflaust fundið atriði sem maður myndi breyta, en égmyndi veigra mér við því að breyta ein­hverju í þess­ari bar­áttu í því ljósi að það hafð­ist sigur. Farsæl nið­ur­staða náð­ist.“

Sig­mundur Davíð segir eig­in­konu sína hafa tapað á þátt­töku hans í stjórn­málum, ekki grætt. Hún hafi t.d. valið að fjár­festa ekki á Íslandi fyrir auð sinn í aflands­fé­lag­inu vegna þeirrar þátt­töku og ekki farið fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem auð­ugum Íslend­ingum hafi staðið til boða. For­sæt­is­ráð­herra seg­ist undr­andi á því hvernig sumir hafi gengið fram gagn­vart honum í þessu máli og nefnir þar sér­stak­lega Björn Val Gíslason, þing­mann Vinstri grænna. Hann hafi ekki fundið jafn þéttan stuðn­ing og í þessu máli. „Ég held að það sé vegna þess að þetta fólk sem hefur unnið með mér veit að ég hef verið vak­inn og sof­inn í þess­ari bar­áttu og hef ekk­ert látið stoppa mig í henni. Mér finnst mjög ósann­gjarnt að fjár­hagur eig­in­konu minnar sé not­aður til þess að höggva í mig.“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist þó skilja að almenn­ingur vilji svör og við­ur­kennir að hann hafi ekki verið nægi­lega skýr. „Ég reyndi að halda mig við prinsippið með það að tjá mig ekki um kon­una mína. Spurn­ingin mín var, ef ég vík frá þessu prinsippi og fer að tjá mig um þetta, hvar endar það? Það er enda­laust hægt að gera það tor­tryggi­legt að fólk eigi pen­inga, til dæmis barst fyr­ir­spurn, eða krafa, um að konan mín birti sund­ur­liðað yfir­lit yfir eignir sínar. Maður spyr sig, hvar á þetta að enda? Ég held að flestir sem á annað borð vilja gefa manni ein­hvern séns, hljóti að sjá að það sem er aðal­málið er að konan mín hefur staðið skil á öllu sínu, sýnt í mál­inu frekar fórn­fýsi en hitt, og það að þeir þing­menn og fleiri sem stóðu helst í vegi fyrir því að þessi árangur næð­ist, að þeir stökkvi fram. Ég held að flestir sjái í gegnum það. En svo áttar maður sig á því, að fólk er að velta alls konar hlutum fyrir sér, og þá komst ég að þeirri nið­ur­stöðu að það væri betra að fara í þetta við­tal og gera grein fyrir þessum hlutum öllum. Eins og þessu grund­vall­ar­at­riði að konan mín er ekki að hagn­ast á því að geyma eignir sínar áfram erlendis.“

Sig­mundur Davíð seg­ist ekki efast um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi styðja hann ef van­traust­til­laga yrði lögð fram á hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár