Krefjast þess að „klausturs-þingmenn“ segi af sér

Í dag var fjöl­mennt á mót­mælum á Aust­ur­velli vegna „Klaust­urs­máls­ins“. Krafist er að þing­menn­irnir sex segi af sér taf­ar­laust, einnig er kraf­ist þess að rann­sókn verði hafin á brotum þing­mann­anna og að alþing­is­menn verði end­ur­mennt­aðir í jafn­rétt­is­fræðslu

Í dag var boðað til mótmælafundar á Austurvelli í tilefni þeirra „yfirgengilegu fordóma og mannfyrirlitningu“ sem sex þingmenn höfðu frammi á fundi sínum á Klaustur bar. Í yfirlýsingu frá skipuleggjendum mótmælanna segir að þingmennirnir sex hafi ekki aðeins ráðist með orðum á þá einstaklinga sem þeir nefndu í samræðum sínum, heldur á alla hópa sem barist hafa fyrir jöfnuði í marga áratugi. Á mótmælafundinum héldu m.a. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins og Sanna Magdalena Mörtudóttur borgarfulltrúi ræður.

Krefjast tafarlausra afsagna, lögreglurannsóknar, upptöku nýrrar stjórnarskrár og endurmenntun alþingismanna

Skipuleggjendur mótmælanna við Austurvöll í dag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau krefjast þess að allir þingmennirnir í hinu svokallaðu „klausturs-máli“, þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason, Anna Kolbrún Árnadóttir, Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, segi af sér tafarlaust, ekki einungis úr flokkum sínum heldur frá störfum sínum á Alþingi. Í yfirlýsingunni segir „Þessar kröfur eru ekki kurteisislegar beiðnir, þetta eru kröfur um tafarlausar breytingar.“

Ásamt afsögn þingmannanna er krafist þess að tafarlaus rannsókn verði hafin á lögbrotum og brotum á siðareglum Alþingis sem „komst upp um“ í upptökunum. Meðal brotanna sem nefnd eru í yfirlýsingunni er drykkja á vinnutíma, sem varðar þingskapalög, hrossakaup Bjarna Benediktssonar við Gunnar Braga og Sigmund Davíð varðandi Geir H. Haarde og sendiherrastöður, sem varða við almenn hegningarlög og skýrt brot á fjölda liða í siðareglum alþingismanna. [adspot]

Jafnframt er krafist þess í yfirlýsingunni að breytingar verði gerðar á málum þannig að reka megi þingmenn af Alþingi gerist þeir brotlegir við lög eða siðareglur alþingismanna. Auk þess krefjast þau tafarlausar endurmenntar allra starfsmanna Alþingis í jafnréttisfræðslu og eineltismálum.

Í yfirlýsingunni er einnig krafist þess að frumvarp stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá verði tekið upp án tafar og að í kjölfarið verði farið í það að taka upp nýja stjórnarskrá sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu. Undir þessar kröfur rita þau Andri Sigurðsson, Alexandra Kristjana Ægisdóttir , Arndís Jónasdóttir og Júlía Sveinsdóttir.

Kröfur hagsmunasamtaka

Kröfur hagsmunasamtaka eru einnig settar fram í yfirlýsingunni. Þar á meðal er krafa um tafarlausa afsögn þingmannanna sett fram af Öryrkjabandalaginu, Kvennahreyfingunni og Femínistafélagi Háskóla Íslands. „Sú fyrirlitning á fólki sem hefur komið fram í orðum tíunda hluta þingheims, sýnir að þingmennirnir eru með öllu ófærir um að gegna trúnaðarstörfum fyrir almenning. Þeir verða að taka pokann sinn. Flóknara er það ekki.“ segir í yfirlýsingu Öryrkjabandalagsins.

Ásamt afsögn þingmanna krefst Kvennahreyfingin þess að allir þingmenn sitji í gegnum tíu klukkustunda jafnréttisfræðslu sem verður sameiginlega unnin af þeim félagssamtökum sem best þekkja til. Ásamt því skora Samtökin'78 á þingmenn og alla stjórnmálaflokka að samþykkja aldrei kvenfyrirlitningu, hinseginfóbíu eða fötlunarfordóma, „Eitruð orðræða grefur undan öryggi jaðarsettra hópa og við minnum ykkur á að ábyrgð ykkar er gífurleg.“ segir í yfirlýsingu samtakanna. NPA miðstöðin krefst þess að „alþingisfólk hafi þekkingu á mannréttindasamningum og lögum og temji sér að virða kjósendur sína alla, minnihlutahópa sem aðra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár