Í nótt náðist samkomulag um nýjan fríverslunarsamning Norður- Ameríkuríkja, NAFTA. Ríkin þrjú, Bandaríkin, Mexíkó og Kanada staðfesta þetta í sameiginlegri yfirlýsingu þar sem fram kemur að með nýja samningnum munu markaðir verða frjálsari, viðskipti sanngjarnari og hagkerfi ríkjanna þriggja muni dafna betur í kjölfarið. Í stað NAFTA mun nýi samningurinn heita USMCA eða Samningur Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada. Frá þessu er greint á vef BBC.
[adspot]Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lengi stefnt að því að breyta NAFTA en UMSCA hefur verið langan tíma í undirbúningi. Bandaríkin hafa háð nokkurs konar viðskiptastríð við þó nokkur ríki í ár og meðal annars sett tolla á innfluttning á stáli og áli frá Mexíkó og Kanada. Bandaríkin og Mexíkó náðu samkomulagi sín á milli í ágúst en erfiðara hefur gengið ná að ná samkomulagi við Kanada. Kanada var gert að semja fyrir miðnætti á staðartíma 30. september ef þeir vildu vera hluti af áframhaldandi fríverslunarsamningi ríkjanna.
Stærsta hindrunin í samningaviðræðum Bandaríkjanna og Kanada voru verndartollar Kanada á innfluttum mjólkurvörum. Í yfirlýsingunni kemur hins vegar ekki fram nákvæmlega hvað muni felast í nýja samningnum en samkvæmt heimildum BBC þá mun hann auka aðgang bandarískra bænda að mjólkurvörumarkaði Kanada um 3,5 prósent. Auk þess mun tollfrjáls útflutningur bíla til Bandaríkjanna frá Kanada aukast eða um 2,6 milljónir bíla. Bandaríkjastjórn lagði nýlega 25 prósent innflutningstolla á erlenda bíla á grundvelli þjóðaröryggishagsmuna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir