Velvilji gagnvart gölluðum frumvörpum

Nefnd­ar­menn vel­ferð­ar­nefndar eru allir á einu máli um að frum­vörp félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra fari aldrei óbreytt í gegn um þingið þó að þau séu þeim vel­viljuð. Annar full­trúi Fram­sóknar gagn­rýnir sjálf­stæð­is­menn harð­lega í mál­inu.

Frumvörp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um almennar íbúðir og hús­næð­is­bætur hafa verið lengi í smíðum. Þau eru nú á borði vel­ferð­ar­nefndar Alþingis sem hefur tekið á móti fjölda gesta og umsagna frá hags­muna­að­ilum, sem margir hverjir hafa gert alvar­legar athuga­semdir við frum­vörpin.

Nefnd­ar­menn vel­ferð­ar­nefndar eru allir á einu máli um að nauð­syn­legt sé að gera breyt­ingar á frum­vörp­unum til að þau nái í gegn um þingið. Annar full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í nefnd­inni gagn­rýnir sjálf­stæð­is­menn harð­lega fyrir að hafa sett sig upp á móti frum­vörp­unum og segir rök þeirra ekki halda vatni. Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna segja að til að þau styðji málin verði að hnýta fjöl­marga lausa enda og end­ur­skoða og skýra ákveðin atriði. Í næstu viku vinnur vel­ferð­ar­nefnd svo nefnd­ar­á­lit vegna frum­varpanna.

Kjarninn tók alla nefnd­ar­menn vel­ferð­ar­nefndar tali og spurði þau álits á frum­vörp­unum Eyglóar.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks

Tæknilegir gallar sem þarf að laga

„Ég held að það muni skap­ast ágæt­is­sátt um þetta en það eru ýmsar breyt­ingar sem við viljum gera,” segir Ásmundur. „Þetta er unnið í mjög góðu sam­starfi og það er eng­inn að berja í borðið eða neitt svo­leiðis.” 

Hann segir ákveðna tækni­lega galla vera á frum­vörp­unum sem sér­fræð­ingar þurfi að skoða betur, en er full­viss um að þeim verði landað í góðri sátt.

„Við erum fyrst og fremst að skoða verk­efni til góða, sem snýst ekk­ert um rétt­inda­mál, heldur tækni­leg atriði eins og til dæmis tíma­lengd lána og rekstr­ar­form,” segir hann. „Frum­vörpin eru að stórum hluta sam­komu­lag þar sem það fá ekki allir allt sitt. Þannig er það.”

Elsa Lára Arnardóttir, 1. varaformaður velferðarnefndar og þingmaður Framsóknarflokks

Kjarasamningar veita ekki mikið svigrúm til breytinga

„Mér líst mjög vel á frum­vörpin og tel að þau muni, eins og margir hafa bent á, skila þeim lang­tíma­mark­miðum sem þeim er ætlað. Þau munu bæta stöðu fólks veru­lega, meðal ann­ars þeirra sem eru á leigu­mark­aði,” segir Elsa Lára. „Auðvitað eru atriði í báðum frum­vörp­unum sem þarf að skoða betur, en svig­rúmið sem við höfum til breyt­inga er ekki mikið þar sem stórir hlutar frum­varpanna eru bundnir kjara­samn­ingum, bæði fjár­hæð­ar­mörk í hús­næð­is­bótum, íbúða­fjöldi og tekju­við­mið.”

Þá sé nefndin meðal ann­ars að bíða breyt­ing­ar­til­lagna frá ráðu­neyt­inu vegna ábend­inga rík­is­skatt­stjóra og Per­sónu­verndar, skoða hvort hægt sé að skýra línur á milli við­ræðna ríkis og sveit­ar­fé­laga og fá skýr­ari svör frá Seðla­bank­anum og fjár­mála­ráðu­neyt­inu þar sem mikið mis­ræmi sé í þeirra umsögnum varð­andi kostn­að­ar­mat. 

Páll Valur Björnsson, 2. varaformaður velferðarnefndar og þingmaður Bjartrar framtíðar

Ótrúlega flókin mál en vonar að þau fari í gegn

Páll Valur segir frum­vörp vel­ferð­ar­ráð­herra ótrú­lega flókin. Mikið sé af umsögnum og mikið af gestum, sem sitt sýn­ist hverjum.

„Fyrir leik­mann eins og mig er þetta gríð­ar­lega flókið og erfitt að sjá hvort hlutir séu til bóta eða ekki,” segir hann. „Gagnrýni í umsögn­unum kemur mér reyndar mest á óvart því skrif­stofu­stjóri vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sagði að sjaldan eða aldrei hafi verið haft jafn mikið sam­ráð haft um nokkur frum­vörp og þessi. Enda voru þau lengi í vinnslu.”

Páll Valur segir frum­vörpin vissu­lega ekki galla­laus, en þau séu nið­ur­staðan sem menn ættu að fara í núna. Hann er jákvæður gagn­vart frum­vörp­unum. 

„Ég hef hlustað á gagn­rýn­ina og það þarf að vera sátt til að allt gangi vel,” segir hann. „Auðvitað kostar þetta pen­inga en ég er félags­hyggju­maður í hjarta mínu og veit að hús­næð­is­málin eru mjög erfið. En eftir að hafa hlustað á fólk sem hefur meira vit á þessu en ég, þá vona ég að þetta nái fram­gangi og verði sam­þykkt.” 

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar

Styður frumvörpin með breytingum

Nauð­syn­legt er að laga ákveðna ágalla í frum­varp­inu til að þau verði sam­þykkt, að mati Ólínu. Hún segir mik­il­vægt að tryggt sé að þau þjóni yfir­lýstu mark­miðið sínu; að koma efna­m­inna fólki til góða og hafa áhrif á mark­að­inn þannig að ungt fólk geti komið sér þaki yfir höf­uðið án þess að lenda í ævi­löngu skulda­fang­elsi.

„Þetta eru auð­vitað ekki okkar frum­vörp og við hefðum ekki lagt þau fram nákvæm­lega svona,” segir hún. „En í ljósi þess að það er brýn þörf fyrir úrbætur ætlum við að vinna með í mál­inu eins og okkur sé unnt. En það eru skiptar skoð­anir inni í nefnd­inni og það getur reynst þungt að koma fram nauð­syn­legum breyt­ingum. Við erum ekki í and­stöðu við frum­varpið, en viljum að þau taki far­sælum breyt­ingum.” 

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks

Vonbrigði að bótakerfin séu ekki sameinuð í eitt

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn afgreiðir frum­vörpin með almennum fyr­ir­vörum, að sögn Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur. 

„Við viljum sjá sam­hliða að til verði frum­varp um hús­næð­is­sparnað og sér­eigna­sparn­aður styrktur í sessi til að hjálpa fólki að kaupa sér eigin íbúð,” segir hún. „Svo eru von­brigði að vaxta- og hús­næð­is­bóta­kerfið skuli ekki vera sam­einað í eitt. En við erum von­góð að svo geti orðið.”

Ragn­heiður segir sam­flokks­menn hennar skilja að verið sé að kalla eftir auknu hús­næði á leigu­mark­aði og sam­staða sé um að auð­velda ungu og efna­m­inna fólki að finna sér heim­ili. Frum­vörpin séu sam­þykkt af rík­is­stjórn en þurfa að taka breyt­ingum.

„Það eru of margir lausir endar. Það er til dæmis ekki búið að ganga frá kostn­að­ar­skipt­ingu á milli sveit­ar­fé­lags og rík­is­stjórnar og svo vantar fram­kvæmda­að­ila,” segir hún. Spurn­ingum sé enn ósvarað varð­andi hver eigi að halda utan um fram­kvæmd­inna. Ljóst er að Trygg­inga­stofnun muni ekki taka það að sér og sér­kenni­legt væri að búa til nýja stofnun í kring um kerfið sem kostar hátt í 100 millj­ónir á ári.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar og þingmaður Samfylkingar

Áhyggjur af afturhvarfi frá félagslegri blöndun

Nauð­syn­legt er að skýra hvort hús­næð­is­bæt­urnar séu í raun að gagn­ast þeim sem helst þurfa á að halda og fá á hreint hver fram­kvæmda­að­il­inn í því frum­varpi verði. Þetta er mat Sigríðar Ingi­bjargar.

„Varðandi frum­varpið um almennu íbúð­irnar hefur maður áhyggjur af því að það verði að veita 3,5 pró­senta lán núna á árinu til að það komi ekki dautt tíma­bil í eitt og hálft ár þar sem ekk­ert ger­ist,” segir hún. „Það tekur tíma að koma þessu í gegn og það er veru­leg hætta á að það verði bara engin fjölgun íbúða mán­uðum saman.” 

Sigríður Ingi­björg tekur undir með fleiri nefnd­ar­mönnum með að umgjörðin sé mjög flókin. Þá sé það veru­legt áhyggju­efni hvort lausnin vinni gegn blöndun í félags­legu hús­næði, sem sé afar nauð­syn­legt að halda áfram með. Það er að byggja ekki allar félags­legu íbúð­irnar á sama stað. 

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks

Gagnrýnir ummæli sjálfstæðismanna

„Það eru ákveðin praktísk atriði sem þarf að fara yfir en fyrir mitt leyti þá snúa frum­vörpin að mjög nauð­syn­legum breyt­ingum í sam­fé­lag­inu,” segir Silja Dögg Gunn­ars­dóttir. „Við höfum verið að mæta íbúð­ar­eig­endum, eins og með leið­rétt­ing­unni og fleiri aðgerðum, en það þarf líka að mæta þeim sem eru á leigu­mark­aði. Ég er ekki að hafna sér­eigna­stefnu, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með það á stefnu­skrá sinni að kerfið sé þannig að fólk eigi að geta keypt sitt eigið hús­næði, en það má ekki skilja fólkið á leigu­mark­aðnum eftir.”

Silja Dögg furðar sig á fram­gangi sumra sjálf­stæð­is­manna, eins og Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar og Vil­hjálms Árna­sonar, í mál­inu.

„Það er und­ar­legt hvernig þeir sem tala hæst í fjöl­miðlum eru að bregð­ast við,” segir hún og bendir á að Guð­laugur Þór hafi mætt á tvo nefnd­ar­fundi til að ræða frum­vörpin og Vil­hjálmur hafi litið við í hálf­tíma. Hún bendir einnig á ákvæði í aðgerð­ar­átlun rík­is­stjórn­ar­innar í hús­næð­is­málum frá 2013, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sam­þykkti, og snýr að sömu málum.

„Það er skrýtið að sjálf­stæð­is­menn séu að hafna því sem þeir leggja sjálfir fram í þing­inu,” segir hún. „Þeir eru ekki með nein hald­bær rök. Það virð­ast allir flokkar, nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, vera sam­mála um hug­mynda­fræð­ina á bak við frum­vörpin, að hjálpa fólki í hús­næð­is­vanda,” segir hún. „Mér finnst óábyrgt hvernig þeir eru búnir að koma fram í þessu máli.”

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna

Umhugsunarefni hversu alvarlegar athugasemdirnar eru

„Það var mjög baga­legt hversu seint þetta kom fram sem setur þing­inu allt of þröngar skorður,” segir Stein­grímur J. Sig­fús­son. „Í ljós kemur að gríð­ar­lega mörg álita­mál koma fram sam­an­ber umsagn­irnar sem þarf að fara í gegn um. Vel­vilj­aður sem ég er frum­vörp­unum er ekki hægt að horfa fram­hjá því að það eru ótal margir lausir endar í þeim. Um það eru flestir sam­mála.” 

Stein­grímur tekur sem dæmi að alvar­legar athuga­semdir hafi borist frá sveit­ar­fé­lögum og sjálfs­eigna­stofn­unum, sem séu í grunn­inn vel­vilj­aðar frum­vörp­unum, og það sé veru­legt umhugs­un­ar­efni. Vaxandi efa­semdir séu nú uppi að frum­vörpin muni ganga upp fyrir lyk­il­að­ila eins og Félags­bú­staði og stúd­enta.

„Ef þeir verða ekki með í þessu þá missir þetta algjör­lega marks,” segir hann. „Þingið verður að gefa sér góðan tíma í þetta, enda erum við búin að funda mjög stíft.”

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks

Frumvörpin verði aldrei samþykkt óbreytt

Gesta­komur hjá vel­ferð­ar­nefnd eru að klár­ast vegna frum­varpanna og segir Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir þær hafa skilað miklu. 

„Það er ljóst að það þarf að gera umtals­verðar breyt­ingar á mál­unum. Bæði tækni­legar og svo dýpri og efn­is­legri breyt­ingar,” segir hún. „Frum­vörpin verða aldrei sam­þykkt óbreytt. Ekki miðað við þær athuga­semdir sem hafa komið fram.” 

Unnur Brá segir málin stór og flókin og ljóst sé að þau hafi verið lögð fram í mik­illi tíma­pressu. 

„Þetta ger­ist oft. En þá er það bara þings­ins að bregð­ast við því.” 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár