Gervigreind í stað mannlegra sálfræðinga

Fjóla Dögg Helga­dóttir hefur skrifað tölvu­for­rit sem hjálpar fólki við að greina og vinna úr sál­rænum vanda­málum. Fjóla rann­sak­aði klíníska sál­fræði við Oxford-háskóla í Bret­landi og hún segir tölvur geta verið gagn­lega sál­fræð­inga. „Ég held að í ein­hverjum til­vikum þá geti tölvu­með­ferð gengið vel án þess að mennskur sál­fræð­ingur taki þátt. Fólk er á margan hátt ekki góðir sál­fræð­ingar.“

Önnur íslensk kona hefur und­an­farin ár notað gervi­greind­ar­for­rit Fjólu til með­ferðar á sjálfri sér. Saga hennar er rakin í sér­stakri gervi­greind­ar­út­gáfu vís­inda­tíma­rits­ins Science. Eftir að hafa flutt til Bret­lands fór [íslenska konan] skyndi­lega að líða illa meðal fólks. Það hafði aldrei verið vanda­mál áður. „Mér leið eins og ég væri að missa tökin,“ segir hún.

[Íslenska konan] kynnt­ist svo Fjólu í Oxford árið 2012 og próf­aði for­ritið sem kall­ast AI ther­apy. Fyrstu dag­ana spyr for­ritið spurn­inga áður en grein­ing fannst á vanda­mál­inu og með­ferð gat haf­ist. Forritið greindi [íslensku kon­una] með félags­kvíða og þving­aði hana til að glíma við líðan sína og hugs­anir.

Forrit Fjólu er hins vegar ekki eina tölvu­með­ferð­ar­for­ritið sem til er. Fyrsta slíka for­ritið var raunar skrifað á sjö­unda ára­tugnum og notað til að rann­saka sam­skipti milli manns og tölvu. Síðan þá hafa orðið miklar fram­farir í þessum efnum og full­komin for­rit geta nú greint og lagt til með­ferð við and­legum kvillum.

Vís­inda­menn telja þessi tæki vera gagn­leg fyrir sál­fræð­inga. Fjóla segir í sam­tali við Science að tölvur geti verið betri ranna­k­andi og hlut­læg­ari í grein­ingu sinni. Reynsla [íslensku kon­unnar] bendir til að tæki eins og AI ther­apy geti, án þess að mann­eskja komi við sögu, skipt sköpum. „Ég gat breytt þessu sjálf,“ segir [íslenska konan] en hún telur mann­legan sál­fræð­ing alveg hafa getað hjálpað sér líka.

Ferlið sem [íslenska konan] fór í gegnum er rang­lega nefnt CBTpsych í grein Science. Rétt er að það heitir AI ther­apy. Það hefur verið leið­rétt hér.

Uppfært 20. júlí, kl. 12:40 - Að ósk við­mæl­enda Science hefur nafn íslensku kon­unnar sem próf­aði bún­að­inn verið tekið út og í stað­inn sett [íslenska konan] þar sem við á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár