Bala orðinn íslenskur ríkisborgari

„Það tók sinn tíma, en hafð­ist að lokum,“ segir Bala á Facebook síðu sinni.

Útlend­inga­stofnun hefur veitt Bala Kam­allakharan, ind­verskum nýsköp­un­ar­fjár­festi sem hefur verið búsettur hér á landi í rúman ára­tug, íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Í lok síð­asta mán­aðar greindi hann frá því á Facebook síðu sinni að honum hefði verið synjað um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt vegna hraða­sektar. Þá hefði það tekið hann hálft ár að fá skýr svör. „Ég er orð­inn íslenskur rík­is­borg­ari. Tók tíma en hafð­ist að lokum,“ sagði hann á Facebook síðu sinni.

Einn af þeim sem var ánægður að heyra af því, að fyrri afstaða Útlend­inga­stofn­unar yrði end­ur­skoðuð, var Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra vel­ferð­ar­mála, en hann sagði Bala dæmi um mann sem ætti að fá rík­is­borg­ara­rétt þar sem hann hefði lagt gott eitt til íslensks sam­fé­lags.

Í til­kynn­ingu sem Útlend­inga­stofnun sendi frá sér, í kjöl­far umræðu um synj­un­ina, kom fram að fólki væri ekki synjað hefði það fengið eina hraða­sekt að lægri upp­hæð en 50 þús­und krónur.

Stofn­unin ákvað að end­ur­skoða ákvörðun sína enda kom í ljós að Bala hafði aðeins fengið þessa einu sekt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár