Kónga­dans á vöku SD í gær­kvöldi. Mynd: EPA

Åkesson dansar kónga: Útlit fyrir umpólun í Svíþjóð

Þegar búið er að telja 95 prósent atkvæða er útlit fyrir að hægt verði að mynda ríkis­stjórn til hægri í Svíþjóð. Svíþjóðar­demókratar ætla að reyna að fá ráðherra­embætti, í krafti þess að vera stærsti flokkurinn á hægri vængnum.

Eftir að Jimmie Åkesson leiðtogi Svíþjóðar­demókrata flutti sigur­reifur ræðu á kosninga­vöku flokksins á sunnudags­kvöld birti sænska ríkis­sjónvarpið, SVT, myndir af taum­lausri gleði stuðnings­manna flokksins, sem gripu formanninn er hann steig af sviði og hófu að dansa kónga í halarófu á eftir Åkesson.

Gleðin var mikil á kosninga­vöku Svíþjóðar­demókrata. Mögulega ögn of mikil, en Rebecka Fallenkvist, sem sinnir kynningar­starfi fyrir flokkinn og var í framboði til héraðs­þings í Stokk­hólmi, fór í viðtal seint í gærkvöldi og virtist þar næstum því missa út úr sér nasista­kveðjuna hell seger - sænska þýðingu af hinum þýska frasa sieg heil sem náði nokkurri útbreiðslu á fjórða áratug síðustu aldar.

Hel…g seger sagði Fallenkvist og notaði svo orðið segerhelg í næstu setningu, eins og til að leiðrétta sig, en orðið segerhelg þýðir sigur­helgi. Sigur­helgi var þetta vissulega, fyrir Svíþjóðar­demókrata.

Ætla að gera ólíklega kröfu um ráðherrastóla

Á þessu hafa sænskir fjöl­miðlar margir hverjir kjamsað nokkuð í dag, en hvað sem því líður er ljóst að Svíþjóðar­demókratar, þjóðernis­flokkur með rætur í nýnasisma sem enginn hefur fram til þessa viljað vinna með í sænska þinginu, náði stórgóðum árangri í kosningunum.

Flokkurinn bætir við sig rúmum þremur prósentu­stigum frá kosningunum árið 2018 miðað við stöðu mála og á nú í fyrsta sinn möguleika á að hafa áhrif á ríkis­stjórnar­samstarf, með því að styðja minnihluta­stjórn undir forsæti Hægri­flokksins (Moderatarna) eða þá með beinni aðkomu að ríkis­stjórn hægra megin við miðju.

Ritari flokksins sagði við SVT að það væri öruggt að flokkurinn myndi efna til samtals um ráðherra­stóla. Frjáls­lyndi flokkurinn (Liberalarna) hefur þó útilokað þátttöku í stjórn þar sem Svíþjóðar­demókratar eiga sæti við ríkis­stjórnar­borðið.

Leið­togarnir Jimmie Åkesson frá Svíþjóðar­demókrötum, Johan Pehrson frá Frjáls­lynda flokknum og Ebba Busch frá Kristilegum demó­krötum hafa öll mætt á fundi með Ulf Kristersson formanni Hægri­flokksins í dag og virðist ljóst að óformlegar þreifingar um ríkis­stjórn til hægri eru hafnar.

Aðspurður um mögu­leikann á beinni þátttöku Svíþjóðar­demókrata í stjórnar­samstarfi sagði Gunnar Strömmer, ritari Hægri­flokksins, að flokkurinn hefði boðið fram undir því yfirskyni að ef umboð fengist frá kjósendum yrði látið reyna á myndun ríkis­stjórnar með hinum borgara­legu flokkunum.

Dagens Nyheter hafði það eftir sínum heimildar­mönnum í dag að Hægri­flokkurinn vildi helst mynda ríkis­stjórn með einungis Kristilegum demó­krötum, en slík stjórn hefðu um 25 prósenta stuðning á þingi. Hægri­flokkurinn sendi frá sér yfir­lýsingu þar sem þessum tíðindum var hafnað.

Minnsti mögulegi munur

Þrátt fyrir að lokatölur liggi ekki fyrir á þessari stundu, og verði ekki endanlega ljósar fyrr en á miðvikudag, er líklegra en ekki að borgara­lega hægri­blokkin, auk Svíþjóðar­demó­kratanna, verði með tæpan þing­meirihluta, 175 þingmenn gegn 174 þing­mönnum flokkanna sem liggja frá miðjunni og til vinstri. Um 47 þúsund atkvæðum munar á blokkunum tveimur eins og sakir standa.

Þetta þýðir að líklega er valdatíð Sósíal­demókrata í Svíþjóð á enda, en flokkurinn hefur verið við stjórn, ásamt fleirum eða einn, undan­farin tvö kjör­tímabil. Magdalena Andersson forsætis­ráðherra og flokks­formaður játaði ekki ósigur í ræðu sinni á sunnudags­kvöld en sagði að hvernig sem færi væri ljóst að flokkur hennar hefði fengið frábæra kosningu, en þegar búið var að telja 95 prósent akvæða voru Sósíal­demókratar með 30,5 prósent þeirra og myndu þar með bæta við sig átta þing­mönnum frá fyrra kjör­tímabili.

Magdalena Andersson forsætisráðherra og formaður Sósíaldemókrata.
Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sós­í­alde­mókrata.

Hún hélt í vonina – sagði að telja þyrfti hvert einasta atkvæði áður en næstu skref yrðu ákveðin. Sem áður segir mun það ekki koma í ljós fyrr en á miðvikudag hvernig nákvæmlega úrslitin liggja, en ennþá á eftir að fara yfir þau atkvæði sem bárust frá sænskum kjósendum sem búsettir eru í öðrum ríkjum.

Þau atkvæði hafa þó í undan­gengnum kosningum dreifst til flokka hægra megin miðju fremur en atkvæðin sem greidd eru á kjördag og eru fyrirfram álitin ólíkleg til þess að snúa myndinni rauðgrænu blokkinni í vil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár