Hætta að krjúpa niður á hné fyrir alla leiki

Leikmenn í ensku úrvals­deild­inni hafa ákveðið að hætta að krjúpa niður á hné fyrir alla leiki, eins og gert hefur verið und­an­farin tvö tíma­bil. Samkvæmt fram­kvæmda­stjóra deild­ar­innar ótt­ast leik­menn að slag­kraftur skila­boð­anna fari þverr­andi.

Enski knattspyrnumaðurinn Dele Alli sem leikur með Everton er hér á hnjánum ásamt þremur leikmönnum Arsenal.
Enski knatt­spyrnu­mað­ur­inn Dele Alli sem leikur með Everton er hér á hnjánum ásamt þremur leik­mönnum Arsenal. Mynd: EPA

Leikmenn í ensku úrvals­deild­inni, sem hefst á föstu­dag, munu ekki tylla einu hné til jarðar fyrir alla leiki tíma­bils­ins eins og þeir hafa almennt und­an­farin tvö tíma­bil. Þetta var ákveðið í sam­ráði stjórn­enda deild­ar­innar við fyr­ir­liða lið­anna tutt­ugu, en ákveðið hefur verið að fara ein­ungis niður á hné í ákveðnum umferðum deild­ar­innar.

Að fara niður á hnén hefur verið fastur liður fyrir flesta kapp­leiki í enska bolt­anum og raunar víðar í fót­bolta­heim­inum frá því árið 2020, í kjöl­far þess að George Floyd var drep­inn af lög­reglu­manni í Banda­ríkj­unum.

Um er að ræða tákn­ræna mót­mæla­að­gerð gegn kyn­þátta­for­dómum og til stuðn­ings við mál­stað hreyf­ing­ar­innar Black Lives Matter.

Að fara niður á hné var inn­blásið af gjörðum banda­ríska NFL-leik­stjórn­and­ans Colin Kaepernick, sem ákvað að mót­mæla mis­munun á grund­velli kyn­þáttar með því að krjúpa og þeyta krepptum hnefa til him­ins er banda­ríski þjóð­söng­ur­inn var leik­inn.

En af hverju að hætta núna?

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­liðum lið­anna í ensku deild­inni segir að þeir hafi ákveðið að velja ákveðin augna­blik til þess að krjúpa niður á hné yfir tíma­bilið, til þess að halda á lofti tákn­rænni sam­stöðu leik­manna gegn öllum kyn­þátta­for­dómum.

Samkvæmt því sem breska rík­is­út­varpið BBC hefur eftir Richard Masters, fram­kvæmda­stjóra ensku úrvals­deild­ar­innar, hefur komið fram í sam­tölum deild­ar­innar við fyr­ir­liða lið­anna að leik­menn í deild­inni ótt­ist að slag­kraftur skila­boð­anna sem send eru með því að krjúpa niður á hné hafi farið þverr­andi.

[adspot]

Nokkrir leik­menn, sem og heilu liðin í enska bolt­anum, hafa raunar þegar hætt að fara niður á hné fyrir leiki, einmitt af þeim ástæðum.

Wilfried Zaha, leik­maður Crystal Palace, hætti að fara niður á hné í febr­úar árið 2021 og sagði á þeim tíma að það skipti engu máli hvort menn færu niður á hné eða ekki, sumir leik­menn yrðu áfram fyrir kyn­þátt­a­níði.

Á þeim tíma höfðu nokkur lið sem leika í næstefstu deild ensku knatt­spyrn­unnar þegar hætt að krjúpa fyrir leiki.

Lið Derby County gerði það í kjöl­far þess að einn leik­manna liðs­ins mátti þola kyn­þátt­a­níð á sam­fé­lags­miðlum. „Að krjúpa á hné er ekki nóg“, sögðu leik­menn liðs­ins og starfs­menn í yfir­lýs­ingu.

Strax í sept­em­ber 2020 hafði lið Queen Park Rangers einnig gefið það út að liðið myndi hætta að fara niður á hné, þar sem skila­boðin sem sýnd væri með þeirri gjörð væru orðin „útþynnt“ og „lítið annað en gott PR“ eins og Les Ferdin­and, yfir­maður knatt­spyrnu­mála hjá félag­inu og fyrr­ver­andi enskur lands­liðs­maður sagði í yfir­lýs­ingu á þeim tíma.

Farið niður á hnén í fimm umferðum

En lang­flestir leik­menn í efstu deild­inni hafa kropið á hné fyrir hvern ein­asta leik allt frá því árið 2020. Leikmenn í enska úrvals­deild­inni munu, sam­kvæmt því sem fram kemur í frétt BBC, fara niður á hnén fyrir leiki í fimm umferðum af þeim 38 sem framundan eru á keppn­is­tíma­bil­inu.

Liðin munu krjúpa á hné í fyrstu umferð­inni, þeirri síð­ustu, í leikjum sem leiknir verða á annan í jólum og svo einnig í umferðum í októ­ber og mars, sem til­eink­aðar verða sér­stöku átaki ensku deild­ar­innar gegn kyn­þátta­for­dómum. Einnig munu leik­menn fara niður á hné í bik­ar­úr­slita­leikjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár