Tíu staðreyndir um trúmál Íslendinga

Þrátt fyrir að á Íslandi sé stjórn­ar­skrár­bundin þjóð­kirkja hefur mikil hreyf­ing verið á skrán­ingum lands­manna í trú­fé­lög á und­an­förnum árum. Og fátt bendir til ann­ars en að sú þróun muni halda áfram um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.

Þjóðkirkjan er hluti af íslenska ríkinu. Þess vegna ganga Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hlið við hlið.
Þjóð­kirkjan er hluti af íslenska rík­inu. Þess vegna ganga Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, og Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, hlið við hlið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1. Þjóðkirkja

Í stjórn­ar­skrá Íslands segir að hin evang­eliska lút­erska kirkja skuli vera þjóð­kirkja á Íslandi og að rík­is­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Auk þess er í gildi hið svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag frá árinu 1997, sem í felst að þjóð­kirkjan afhenti rík­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu.

2. Á fjárlögum

Í krafti þessa fær þjóð­kirkja umtals­verða fjár­muni úr rík­is­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Biskups Íslands, í Kirkju­mála­sjóð og Jöfn­un­ar­sjóð sókna. Samtals er áætlað að þessi upp­hæð verði 2.830 millj­ónir króna í ár. Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­hæð verði um 1.750 millj­ónir króna í ár. Samtals mun rekstur þjóð­kirkj­unnar því kosta tæp­lega 4,6 millj­arða króna í ár. Þá er ekki með­talið rúm­lega 1,1 millj­arðs króna fram­lag til kirkju­garða.

3. Börn fylgdu lengi móður

Ára­tugum saman var skipu­lag mála hér­lendis þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­­fé­lag móð­­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­­stak­­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­­heyra sama trú- og lífs­­­skoð­un­­­ar­­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvers kyns félög mættu skrá sig sem trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lög og þiggja sókn­ar­gjöld rýmk­að­ur.

4. Nánast öll þjóðin var lengi vel í þjóðkirkjunni

Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­­sent lands­­­­­manna skráðir í þjóð­kirkj­una. Á árunum fyrir hrun fjölg­aði alltaf lít­il­­­lega í hópi þeirra sem skráðir voru í þjóð­­­kirkj­una á milli ára þótt þeim Íslend­ingum sem fylgdu rík­­­is­­­trúnni fækk­­­aði alltaf hlut­­­falls­­­lega.

5. Undir 70 prósent í fyrsta sinn

Frá árinu 2009 hefur með­­­limum þjóð­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Þeir voru 236.260 í byrjun árs 2017, eða 69,9 pró­­­sent mann­­­fjöld­ans. Það var í fyrsta sinn síðan að mæl­ingar hófust sem að fjöldi með­­­lima hennar fer undir 70 pró­­­sent mann­­­fjöld­ans.

6. 111 þúsund utan þjóðkirkju

Þeir íslensku rík­­­­­is­­­­­borg­­­­­arar sem kusu að standa utan þjóð­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­ustu ald­­­­­ar­­­­­mót. Í dag eru 111.042 íbúar utan hennar, eða 32 pró­­sent allra lands­­manna. Fjöldi þeirra hefur því rúm­­lega þre­fald­­ast á þess­ari öld. Á síð­asta ári einu saman sögðu 3.738 manns sig úr þjóð­kirkj­unni, þar af 60 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Það er næst­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­anir um þöggun þjóð­kirkj­unnar yfir meintum kyn­ferð­is­glæpum Ólafs Skúla­son­ar, fyrr­ver­andi bisk­ups, voru settar fram. Þá fækk­aði um 4.242 í þjóð­kirkj­unni á einu ári.

7. Fjórfalt fleiri kaþólikkar

Á sama tíma hefur með­limum ann­arra trú­fé­laga fjölgað mikið, en slík fá greidd sókn­ar­gjöld í sam­ræmi við með­lima­fjölda. Fjöldi þeirra sem skráðir eru í Kaþ­ólsku kirkj­una á Íslandi hefur næstum fjór­fald­ast frá ald­ar­mót­um. Þá voru 3.857 manns skráðir í kirkj­una en í byrjun árs 2017 voru þeir orðnir 12.901. Frá byrjun árs 2010 hefur kaþ­ólikkum á Íslandi fjölgað um yfir þrjú þús­und.

8. Miklu fleiri múslimar

Þeim sem skráðir eru í trú­fé­lög múslima á Íslandi hefur einnig fjölgað mjög á und­an­förnum árum. Árið 1998 voru 78 manns skráðir í Félag múslima á Íslandi. Árið 2017 voru þeir orðnir 542 tals­ins en frá 2010 hafa verið tvö trú­fé­lög múslima hér­lend­is. Hitt, Menn­ing­ar­setur múslima, var með 406 með­limi skráða í byrjun árs í fyrra. Fjöldi múslima sem skráðir eru í trú­fé­lög hér­lendis hefur því rúm­lega tólf­fald­ast á 19 árum.

9. Siðmennt og zúistar trekkja að

Siðmennt verið skráð lífs­skoð­un­ar­fé­lag frá árinu 2013. Félagið er það eina sem berst bein­línis gegn sókn­ar­gjöldum og fyrir algjöru trú­frelsi. Með­limir í Sið­mennt voru í upp­hafi árs 2017 1.789 tals­ins. Zúistum hefur líka fjölgað mikið á örfáum árum. Þeir voru tveir árið 2014 en fjöldi þeirra rauk upp í rúm­lega þrjú þús­und í byrjun árs 2016, eftir að hópur manna taldi sig hafa tekið yfir félagið og ætl­aði að end­ur­greiða fólki þau sókn­ar­gjöld sem inn­heimt yrði vegna þeirra. Síðan stóð yfir ára­löng bar­átta milli þess hóps og þeirra aðila sem áður höfðu farið með yfir­ráð í félags­skapn­um. Sú bar­átta end­aði með sigri hinna síð­ar­nefndu. Zúistar fengu 32 millj­ónir króna greiddar úr rík­is­sjóð vega sókn­ar­gjalda á árinu 2016.

10. 22 þúsund utan trúfélaga

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­laga hefur rúm­­lega tvö­­fald­­ast frá því í byrjun árs 2010. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 10.336 tals­ins. Heild­­ar­­fjöldi þeirra í dag er yfir 22 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár