Lagerbäck heldur með Íslandi gegn Nígeríu

Fyrrum lands­liðs­þjálf­ari Íslands og Nígeríu heldur með Íslandi í leik dags­ins á HM.

Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Lars Lagerbäck, fyrrum lands­liðs­þjálf­ari íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta. Mynd: Anton Brink

Lars Lagerbäck sagði Ísland vera í upp­á­haldi í leik liðs­ins gegn Nígeríu í við­tali við SVT fyrr í dag. Þjálf­ar­inn, sem sam­kvæmt miðl­inum er bæði kall­aður „Lasse Lagos“ og „Lassa Lava“, kom lands­liði Nígeríu á þar­síð­asta heims­meist­ara­mót í Suður-Afríku árið 2010.

SVT Sport tók við­tal við Lagerbäck og innti þjálf­ar­ann eftir svörum um hvort liðið hann myndi halda með í leik dags­ins og fékk afger­andi svar. „Það er ljóst að maður hefur til­finn­ingar til beggja liða þar sem maður hefur þjálfað hjá þeim, en ég var jú hjá Íslandi mun lengur og þekki starfs­menn­ina og leik­menn­ina þar mjög vel á meðan heilt yfir litið er eng­inn leik­maður eftir frá minni tíð í Nígeríu,“ segir þjálf­ar­inn.

Meiri liðsheild hjá Íslandi

Lagerbäck tók við þjálf­ara­hlut­verki níger­íska lands­liðs­ins árið 2010, rétt fyrir HM í Suður-Afríku, en fór með þá beint í umspil fyrir mótið. Stuttu síðar lét svo Lagerbäck af störfum og byrj­aði sem lands­liðs­þjálf­ari Íslands.

Lagerbäck bætir við að leikstíll íslenska lands­liðs­ins beri enn keim af þjálf­ara­tíð hans, á meðan leikstíll níger­íska liðs­ins hafi gjör­breyst frá árinu 2010: „Níger­íska liðið byggir meir á færni ein­stak­linga, en Ísland býr yfir meiri liðs­heild, jafn­vel þótt ég hafi ekki 100% hug­mynd um hvernig Nígería spilar nú til dags.“

Jafn leikur

Þrátt fyrir ólíkan stíl lið­anna heldur Lagerbäck að leik­ur­inn verði mjög jafn. „Þetta eru tvö lið sem spila með ólíkum hætti, en leik­ur­inn kemur örugg­lega til með að verða nokkuð jafn þrátt fyrir það,“ segir þjálf­ar­inn. Þegar blaða­maður spyr hvort liðið hann haldi að muni vinna ítrekar Lars: „Ísland er í svolitlu upp­á­haldi, jafn­vel þótt ég haldi að þetta muni verða jafn leikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár