„Fitty“ segist ekki hafa beðið tengdapabba um að redda Samherja kvóta í Namibíu

Tengda­sonur fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu mætti aftur fyrir dóm í Namibíu í dag og hafn­aði því þar að fjöl­skyldu­tengsl hans við ráð­herr­ann hefðu verið það sem réði því að hann var feng­inn til ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Samherja í land­inu.

Hér sjást Bernhard Esau (t.v.) og Tamson Hatuikulipi (t.h.) ráðfæra sig við lögmann sinn.
Hér sjást Bernhard Esau (t.v.) og Tamson Hatuikulipi (t.h.) ráð­færa sig við lög­mann sinn. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, einn sak­born­inga í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, vísar því á bug að hann hafi verið ráð­inn til þess að veita Samherja ráð­gjöf um kvóta­mál í land­inu sökum þess að hann er giftur dóttur Bern­hards Esau, sem áður var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins.

Þetta kom fram í máli Hatuikulipi fyrir dómi í Windhoek í Namibíu í gær, en þar héldu áfram rétt­ar­höld sem snú­ast um beiðni hans um að verða lát­inn laus úr fang­elsi gegn trygg­ingu, eftir um fimm vikna langt hlé.

Hatuikulipi hefur ásamt nokkrum öðrum sak­born­ingum í mál­inu setið í gæslu­varð­haldi allt frá því undir lok nóv­em­ber­mán­aðar árið 2019.

[adspot]

Samkvæmt frétt mið­ils­ins Namibian hafn­aði Hatuikulipi því að hafa fengið tengda­föður sinn Esau til þess að útvega Samherja afla­heim­ildum í land­inu og hafn­aði því sömu­leiðis að hafa rætt inn­reið Samherja í namibískan sjáv­ar­út­veg við tengda­móður sína eða eig­in­konu. Þær hefðu ekk­ert komið nálægt störfum hans.

Fulltrúi ákæru­valds­ins dró það hins vegar mjög í efa fyrir dómnum að nokkuð annað en fjöl­skyldu­tengsl við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann hefðu ráðið því að Hatuikulipi var feng­inn til ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Samherja.

Raunar sagði sak­sókn­ar­inn, sam­kvæmt end­ur­sögn mið­ils­ins New Era, að helsta teng­ing Hatuikulipi við sjáv­ar­út­veg­inn, áður en hann gift­ist dóttur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, hefði verið sú að borða fisk.

Sagði Jóhannes hafa spurt um brúðkaupið að fyrra bragði

Rétt eins og Hatuikulipi kom á fram­færi fyrir dómi í júlí­mán­uði sagð­ist hann í gær fyrst hafa kom­ist í kynni við full­trúa Samherja á fundi á Hilton-hót­el­inu í Windhoek í des­em­ber árið 2011 og það hefði verið Jóhannes Stef­áns­son.

Hatuikulipi sagði að á næsta fundi með full­trúum Samherja, þar sem þeir Aðal­steinn Helgason og Ingvar Júl­í­us­son hefðu einnig verið við­staddir, hefði Jóhannes svo komið sér á óvart og spurt út í brúð­kaup hans og dóttur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, sem fram hafði farið í októ­ber 2011.

Einnig sagði hann að Jóhannes hefði óskað eftir því að fá að sjá myndir úr brúð­kaup­inu og hafn­aði því alfarið að hann hefði að sínu eigin frum­kvæði kynnt sig sér­stak­lega fyrir Íslend­ing­unum þremur sem tengda­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, eins og sak­sókn­ari sagði að Ingvar Júl­í­us­son hefði borið við í skrif­legri yfir­lýs­ingu sinni til rétt­ar­ins vegna dóms­máls­ins.

Samkvæmt frétt New Era var gert hlé á þing­hald­inu í gær eftir að ákæru­valdið bað um heim­ild til þess að leggja gögn fyrir dóm­inn, en verj­endur Hatuikulipi ósk­uðu eftir því að fá tíma til þess að ráð­færa sig við skjól­stæð­ing sinn um gögnin. Dóm­þing­inu var því haldið áfram í dag, en frek­ari fréttir hafa ekki borist í helstu fjöl­miðlum Namibíu um fram­hald vitn­is­burð­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár