Björn Leví boðar vantrauststillögu

Þing­maður Pírata segir að van­traust­s­til­laga á rík­is­stjórn­ina komi inn í þingið. Fyrst þurfi for­sæt­is­ráð­herra að svara spurn­ingum um skil sín á skýrslum.

„For­sæt­is­ráð­herra manar upp van­traust­s­til­lögu. Hún kemur,“ sagði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, á Alþingi í morgun.

Björn Leví hélt ræðu undir liðnum störf þings­ins við upp­haf þing­fundar. Hann sagði þrjá ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar vera í vanda eftir þrjár þing­vikur. „Hæst­virtur umhverf­is­ráð­herra sem á eftir að mæta hér í ræðu­stól Alþingis og útskýra vill­andi svar sitt við fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns Oddnýjar Harð­ar­dóttur um til­mæli til nefndar sem heyrir undir ráð­herra.“ Þá þyrfti sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra að útskýra af hverju hún hafi hótað sjó­mönnum lögum á verk­fall þeirra. Að lokum hafi for­sæt­is­ráð­herra orðið upp­vís að því að leyna almenn­ing upp­lýs­ingum.

„Í sér­stökum umræðum um málið hér á mið­viku­dag bauð ég for­sæt­is­ráð­herra að svara spurn­ingum um hvort upp­lýs­ing­arnar vörð­uðu almanna­hag og hvort ráð­herra hafi brotið siða­reglur. Ráðherra skaut­aði fram hjá þessum spurn­ingum þrátt fyrir ítrek­anir um að svara þeim. Þó við­ur­kenndi ráð­herra, með leyfi for­seta: „Ég hef aldrei í tengslum við þessa skýrslu lagt mat á hvort ein­hver efn­is­at­riði umfram önnur vörð­uðu almanna­hag. Það stóð aldrei neitt annað til en að hún kæmi fyrir almenn­ings­sjónir.“. Til­vitnun lýkur. Ráðherra við­ur­kenndi að hafa ekki athugað hvort efni skýrsl­unnar varð­aði almanna­hag mtt frum­kvæð­is­skyldu sinnar til birt­ingu slíkra upp­lýs­inga.“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi manað upp van­traust­s­til­lögu, og hún muni koma. „Fyrst þarf for­sæt­is­ráð­herra að svara þessum spurn­ingum í ræðu­stól Alþingis, varða upp­lýs­ing­arnar í skýrsl­unni sem hann faldi almanna­hag og braut ráð­herra siða­reglur - ellegar er það van­trausts­vert í sjálfu sér að ráð­herra víki sér ítrekað undan því að svara spurn­ingum sem að honum er beint á Alþingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár