Norður-Kórea „tilbúin í stríð“

Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast tilbúin í stríð við Banda­ríkin. Þau gagnrýna harðlega aukin umsvif Bandaríkja­hers í nágrenni Norður-Kóreu.

Kim Jong-un er æðsti ráðamaður í Norður-Kóreu. Hann hefur reynst enn óþægari ljár í þúfu en faðir hans.
Kim Jong-un er æðsti ráða­maður í Norður-Kóreu. Hann hefur reynst enn óþæg­ari ljár í þúfu en faðir hans. Mynd: EPA

Norður-Kórea, með ólíkinda­tólið Kim Jong-Un í broddi fylkingar, segist „tilbúin í stríð“ við Banda­ríkin og allar þær þjóðir sem beita landið órétti.

Í yfir­lýsingu frá stjórn­völdum, sem vitnað er til í umfjöllun ríkis­fréttastofu Norður-Kóreu, segir að Norður-Kórea fordæmi harðlega þá ákvörðun bandarískra stjórn­valda að senda flota­deild til hafsvæðisins við Kóreu­skagann.

Carl Vinson-flota­deildinni var í fyrr í vikunni snúið af leið sinni í heimsókn til Ástralíu og stefnt til Kóreu­skagans, vegna vaxandi ógnar frá Norður-Kóreu. Deildinni fylgir flug­móðurskip, þyrlu­sveit, flugskeyta­skotpallar og fleiri vopn sem hægt er að beita með litlum fyrirvara.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu segja að Banda­ríkin séu með framferði sínu að ganga of langt, og nú sé spennan milli landanna komin á alvarlegt stig.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur sagt að Banda­ríkin séu tilbúin að grípa til aðgerða, án aðstoðar frá öðrum, til að draga úr hættunni af lang­drægum flaugum Norður-Kóreu og kjarnorku­vopna­ógninni sem stafar frá landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár