Skýrslur Seðlabankans og Hannesar verða báðar birtar í janúar

Tvær skýrslur sem fjalla um hrunið og eft­ir­mála þess verða birtar í jan­úar. Önnur er eftir Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son en hin er unnin af Seðla­banka Íslands. Báðar munu fjalla, að minnsta kosti að hluta, um sömu atburði en með mjög ólíkum hætti.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur lokið við gerð skýrslu sinnar. Hún verður þó ekki birt fyrr en 16. janúar.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son hefur lokið við gerð skýrslu sinnar. Hún verður þó ekki birt fyrr en 16. jan­úar. Mynd: Skjáskot

Seðla­banki Íslands ætlar að birta skýrslu um neyð­ar­lán­veit­ing­una til Kaup­þings í miðju banka­hrun­inu í jan­úar næst­kom­andi, komi ekk­ert óvænt upp í verk­efna­stöðu bank­ans. Þetta kemur fram í svari Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[links]Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri greindi frá því í febr­úar 2015 að hann ætl­aði að láta taka saman skýrslu um til­drög þess að Kaupþing fékk neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra frá bank­anum 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi. Það eru því næstum þrjú ár liðin frá því að skýrslan var boðuð.

Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir um skýrslu­gerð­ina í júlí síð­ast­liðnum feng­ust þau svör að gert væri ráð fyrir að hún myndi verða kynnt í banka­ráði hans „á næstu mán­uðum“. Þá kom einnig fram að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að bæta sölu­ferli FIH bank­ans – en sá danski banki var tek­inn sem veð fyrir lán­inu – við skýrsl­una. „Sá hluti er mjög umfangs­mik­ill og snertir m.a. þróun efna­hags- og banka­mála í Danmörku. Vegna mik­illa anna starfs­manna við önnur verk hefur verið erf­ið­leikum bundið að tryggja næga krafta í þetta verk – en það er sem sagt langt á veg komið,“ sagði í svari bank­ans.

Skoðun á birtingunni framundan

Nú er ljóst að skýrslan mun ekki verða birt fyrr en í fyrsta lagi rúmum sex mán­uðum eftir að upp­haf­leg fyr­ir­spurn Kjarnans barst Seðla­bank­anum.

Morg­un­blaðið birti á laug­ar­dag afrit af sím­tali Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi seðla­banka­stjóra, frá 6. októ­ber 2008 þar sem neyð­ar­lán­veit­ingin var ákveðin. Seðla­bank­inn hefur ætið neitað að afhenda fjöl­miðlum þetta afrit og borið fyrir sig þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um bank­ann. Kjarninn stefndi Seðla­banka Íslands vegna þessa í síð­asta mán­uði og bank­inn hefur ákveðið að taka til varna í því máli til að verja rétt sinn til að neita fjöl­miðlum um aðgengi að sím­tal­inu eða afriti af því.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í gær að Seðla­bank­inn muni taka birt­ingu Morg­un­blaðs­ins, þar sem Davíð Oddsson er rit­stjóri, á afrit­inu á sím­tal­inu til skoð­unar í vik­unni. Í þeirri skoðun verður farið yfir atriði tengd birt­ing­unni á laug­ar­dag.

Hannes frestar fram í janúar

Önnur skýrsla er vænt­an­leg þar sem fjallað verður meðal ann­ars um sölu­ferli FIH. Sú er skrifuð af stjórn­mála­fræði­pró­fess­ornum Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni, en honum var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á erlendum áhrifa­þáttum hruns­ins í júlí 2014. Áætl­aður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok voru í byrjun sept­em­ber 2015.

Ráðn­ing Hann­esar til verks­ins var afar umdeild sökum mik­illa tengsla hans við áhrifa­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sér­stak­lega fyrr­ver­andi seðla­banka­stjór­ann, og núver­andi rit­stjór­ann, Davíð.

Skýrslu Hannesar hefur enn ekki verið skilað en greint var frá því í júní að hún sé nú í yfir­lestri. Til stóð að kynna skýrsl­una 8. októ­ber næst­kom­andi, eða rúmum tveimur árum eftir upp­haf­leg áætluð verk­lok og rúmum þremur árum eftir að Hannesi var falið verk­efnið. Þeirri kynn­ingu var svo enn frestað og til stóð að hún færi fram í dag, 20. nóv­em­ber. Hannes skrif­aði hins vegar pistil á vef­inn Pressuna fyrir helgi og til­kynnti að þótt skýrslu­gerð­inni væri lokið ætl­aði hann að fresta skilum til að „gefa þeim, sem minnst er á í henni, kost á að skýra mál sitt, leið­rétta og gera athuga­semdir.“ Hannes ætlar nú að birta sína skýrslu 16. jan­úar. Birting á skýrslu Seðla­bank­ans ætti því að eiga sér stað á nán­ast sama tíma og Hannes birtir sínar nið­ur­stöður.

Þess má geta að Davíð Oddsson á afmæli, verður sjö­tugur, þann 17. jan­úar 2018, eða dag­inn eftir að Hannes ætlar að birta sína skýrslu.

Fjallað um FIH með mismunandi hætti

Í báðum skýrsl­unum verður fjallað um neyð­ar­lánsveit­ingu Seðla­banka Íslands til Kaup­þings og veð­töku hans í hlutafé FIH-bank­ans.

Hannes skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 21. apríl 2015 þar sem hann opin­ber­aði í fyrsta sinn hluta af því sem hann er að skrifa um í skýrslu sinni. Í grein­inn fjall­aði hann í löngu máli um söl­una á FIH-­bank­an­um, sem tekin var sem veð fyrir neyð­ar­láni Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Odds­son stýrði enn Seðla­bank­an­um. Kjarn­inn greindi frá því 2. októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna FIH væri 35 millj­arðar króna.

Hannes komst að þeirri nið­ur­stöðu að FIH hafi verið gott veð. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hafi hins vegar verið plat­aður í mál­inu með þeim afleið­ingum að Ísland varð af 60 millj­arða króna ágóða vegna FIH, og sat þess í stað uppi með ofan­greint tap.

Már svar­aði grein Hannesar skömmu síðar. Hann sagði Hannes mis­skilja margt í mál­inu og full­yrti að ef Seðla­bank­inn hefði knúið FIH bank­ann í slita­með­ferð haustið 2010 hefði allt neyð­ar­lánið sem bank­inn veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008 tap­ast. Með því að selja bank­ann tak­ist Seðla­bank­anum að inn­heimta lið­lega helm­ing láns­ins, sem var upp á 500 millj­ónir evra.

Sölu­ferli FIH verður á meðal þess sem fjallað verður um í vænt­an­legri skýrslu Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár