Harry Potter-hagkerfið

Áttunda bókin um Harry Potter – Harry Potter and The Cursed Child – er nýkomin út. Hún mun koma út á íslensku síðar í októ­ber og þýð­ist sem Harry Potter og bann­færða barnið. Samnefnt leik­rit var gefið út sam­hliða, 31. júlí, en það byggir á sögu J.K. Rowling en er skrifað af Jack Thorne og John Tiffany, í sam­vinnu við Rowling.

Harry Potter bæk­urnar hafa veitt les­endum inn­sýn í stór­kost­legan heim galdra­stráks­ins, frá því fyrsta bókin kom út, 26. júní 1997, en það var Harry Potter and The Philosopher‘s Stone.

Á nítján árum hefur mikið vatn runnið til sjávar, og hefur Harry Potter orðið að efna­hags­legu stór­veldi.

Kjarninn tók saman nokkrar tölu­legar stað­reyndir um útgáfu­sögu Harry Potter, og virði vöru­merk­is­ins sem hefur haft mikil áhrif í kvik­mynda­iðn­aði, leik­list og sölu á varn­ingi. Rowling er fædd 31. júlí 1965.

J.K. Rowling, sem eitt sem var fátæk ein­stæð móðir, er nú sögð eiga ríf­lega 1 millj­arð Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 120 millj­örðum króna.

Áður en fyrsta bókin kom út sendi Rowling hand­rit af bók­inni á 12 útgef­endur í Bret­landi, sem allir sögðu nei, áður en Já-ið kom loks­ins út.

Harry Potter vöru­merkið er metið á 16 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um tvö þús­und millj­arða króna.

Harry Potter kvik­mynd­irnar hafa halað inn tæp­lega 8 millj­arða Banda­ríkjala, ríf­lega þús­und millj­arða.

Samtals hafa 480 millj­ónir ein­taka af Harry Potter bókum selst á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár