Ritari Sjálfstæðisflokks segir ótækt að Sigmundur Davíð sitji áfram á þingi

Einn for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki sam­þykkt að Sigurður Ingi Jóhanns­son verði for­sæt­is­ráð­herra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, situr í forystu Sjálfstæðisflokksins.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, situr í for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki sam­þykkt að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, verði næsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hún segir enn­fremur að sér þyki það per­sónu­lega ótækt að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem steig til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra í gær, sitji áfram á þingi. Þessum skoð­unum hafi hún komið á fram­færi á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær. Það sé hins vegar lítið sem Sjál­stæð­is­flokk­ur­inn geti gert í þeirri ákvörðun hans. Þetta kom fram í Twitterfærslum Áslaugar Örnu í gær­kvöldi.

Sig­mundur Davíð lagði til­lögu fyrir þing­flokk sinn síð­degis í gær um að hann myndi stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og að Sigurður Ingi myndi taka við. Ástæðan er sú staða sem Sig­mundur Davíð var kom­inn í eftir að fjöl­miðlar út um allan heim sögðu fréttir af aflandseign for­sæt­is­ráð­herr­ans og birtu síend­ur­tekið við­tal sem sænska rík­is­sjón­varpið og Reykja­vík Media tóku við hann. Í við­tal­inu segir Sig­mundur Davíð ósatt um aðkomu sína að aflands­fé­lag­inu Wintris og rýkur síðan út. Einn þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins var á móti til­lögu Sig­mundar Davíðs, sem ætlar að sitja áfram sem for­maður flokks­ins og þing­maður. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sagt að hann og Sigurður Ingi muni ræða saman næstu daga um myndun nýrrar rík­is­stjórnar flokk­anna. Ekki er úti­lokað að kosið verði fyrr en áætlað var, en kosn­ingar eiga að fara fram í apríl á næsta ári.

[adspot]

Í gær­kvöldi skap­að­ist raunar mikil óvissa um hvort Sig­mundur Davíð hefði raun­veru­lega vikið úr starfi. Í yfir­lýs­ingu sem Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sendi á erlenda fjöl­miðla sagði að Sig­mundur Davíð hefði aðeins lagt til að Sigurður Ingi Jóhanns­son tæki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í „óákveð­inn tíma.“ Hann hafi ekki sagt af sér og muni halda áfram sem for­maður flokks­ins. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, sagði við RÚV að ekk­ert væri óljóst í þess­ari til­kynn­ingu. Sigurður Ingi væri for­sæt­is­ráð­herra í ótil­greindan tíma, sem geti þýtt fram að næstu kosn­ingum. Það að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki sagt af sér sé líka rétt, hann sé enn starf­andi for­sæt­is­ráð­herra þangað til hann skili umboði sínu til for­seta Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár