Ef loforðin yrðu efnd væri hægt að „stöðva faraldurinn fljótt“

Veikustu hag­kerfi ver­aldar þurfa lengst að búa við tak­mark­anir vegna COVID-19. Ástæðan: Ríkustu þjóð­irnar fengu for­gang við bólu­efna­kaup og hafa ekki staðið við lof­orð um að deila jafnt. Og hafa svo nú í ofaná­lag hafið örvun bólu­setn­inga.

Hver einasti skammtur er dýrmætur og getur bjargað mannslífi, segir Moeti.
Hver ein­asti skammtur er dýr­mætur og getur bjargað manns­lífi, segir Moeti. Mynd: EPA

„Við höfum séð íbúa ríku þjóð­anna flykkj­ast aftur á fót­bolta­leiki, á veit­inga­hús og list­við­burði. Þar er fólk jafn­vel að mót­mæla því að þurfa að fram­vísa bólu­efna­skír­teini áður en það fer inn á við­burð. Það sýnir að lífið er öðru­vísi þar. Þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið er hátt höfum við líka séð dán­ar­tíðni lækka stór­kost­lega. En við, íbúar Afríku, þurfum að hafa tak­mark­anir áfram og leggja mikið á okkur til að fá aðgang að bólu­efni. Við þurfum að berj­ast fyrir því að staðið verði við þau lof­orð sem efn­aðri þjóðir hafa gefið.“

[links]Þetta sagði Mats­hi­diso Moeti, læknir, sér­fræð­ingur í lýð­heilsu og yfir­maður Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) í Afríku, á blaða­manna­fundi sem fram fór á net­inu í morgun. Blaða­maður Kjarnans fylgd­ist með og heyrði helstu sér­fræð­inga álf­unnar segja frá stöð­unni – ekki aðeins á far­aldri COVID-19 heldur einnig far­aldri heila­himnu­bólgu sem blossað hefur upp í Austur-Kongó og til­felli ebólu á Fíla­beins­strönd­inni sem vakið hefur upp skelfi­legar minn­ingar um far­aldur þess ban­væna sjúk­dóms fyrir nokkrum árum. „Á hverjum ein­asta degi erum við að berj­ast við hóp­sýk­ingar af völdum alls konar sjúk­dóma í Afríku,“ sagði Moeti.

[adspot]

Gjáin sem ein­kennt hefur skipt­ingu bólu­efna milli heims­hluta frá því að þau urðu aðgengi­leg hefur lítið grynnkað. Það er engu lík­ara en að sér­fræð­ingar WHO séu að hrópa út í tómið. Lítil við­brögð urðu við ákalli fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­innar á dög­unum sem biðl­aði til efn­aðri þjóða, sem vel væru komin á veg í bólu­setn­ingum, að bíða með að gefa örv­un­ar­skammta þar til í októ­ber. Hann gefst þó ekki upp og segir nú áríð­andi að örvun bólu­setn­inga verði frestað til næsta árs og að umfram­skammtar verði settir til þeirra sem meira þurfi á því að halda: Við­kvæmum hópum í fátæk­ustu ríkjum heims.

COVAX-sam­starfið, sem þjóðir heims gengu flestar inn í fyrir ári síðan með stórum lof­orðum um jafna dreif­ingu bólu­efna, sendi frá sér dap­ur­lega til­kynn­ingu í gær. Mark­miðið um að ná að bólu­setja 40 pró­sent allra jarð­ar­búa fyrir árs­lok myndi ekki nást. Millj­arður skammta sem efn­aðri ríki hétu að gefa þeim fátæk­ari væri langt utan seil­ingar. Að ná tíu pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­falli í Afríku fyrir lok sept­em­ber er enn­fremur út úr mynd­inni. COVAX, sem ekki aðeins dreifir gjafa­skömmtum heldur hefur einnig fjár­magnað mikil bólu­efna­kaup biðl­aði til þjóða sem von ættu á stórum bólu­efna­skömmtum sam­kvæmt samn­ingum við fram­leið­endur að gefa eftir sæti sitt í röð­inni. Hleypa COVAX fram­fyrir. Og bjarga manns­lífum.

Moeti tók undir þess áskorun COVAX á fund­inum í morgun og ítrek­aði, líkt og sér­hver sér­fræð­ingur sem hefur tjáð sig um málið, að það sé allra hagur, líka Vest­ur­land­anna, að sem flestir verði bólu­settir sem fyrst – alls staðar. Sú stað­reynd að bólu­setn­ing­ar­mark­miðin náist ekki í Afríku þýðir ein­fald­lega, að hennar sögn, að fram­lengja þurfi sam­fé­lags­legar tak­mark­anir, bæði ein­stak­lings­bundnar, s.s. grímunotkun og nálægð­ar­reglum, og í stærra sam­hengi, s.s. með fjölda- og ferða­tak­mörk­unum.

Bóluefni hent

Í síð­ustu viku dreifði COVAX fimm millj­ónum skammta til Afr­íku­ríkja. „Þrefalt fleiri skömmtum hefur verið hent í Banda­ríkj­unum einum saman,“ segir Moeti. „Þeir skammtar hefðu dugað til að bólu­setja alla yfir átján ára aldri í Líberíu, Márit­aníu og Gambíu. Hver ein­asti skammtur er dýr­mætur og getur bjargað manns­lífi. Ef þau lönd sem fram­leiða bólu­efni og fyr­ir­tækin sem það gera myndu for­gangs­raða með jöfnuð að leið­ar­ljósi væri hægt að stöðva far­ald­ur­inn fljótt.“

[adspot]

Fyrr í vik­unni ítrek­uðu leið­togar G20-ríkj­anna, sam­bands tutt­ugu efn­uð­ustu ríkja heims, stuðn­ing sinn við það mark­mið að bólu­setja 40 pró­sent íbúa allra þjóða. „Þessum góðu áformum þurfa að fylgja skýrar aðgerðir og fjár­mögnun til bar­átt­unnar gegn COVID-19,“ segir Moeti.

Yfir 40 pró­sent jarð­ar­búa hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni. En aðeins 5,5 pró­sent allra Afr­íku­búa hafa fengið einn skammt og aðeins 3,2 pró­sent þeirra eru full­bólu­settir.

Meira en áríðandi

Til að ná því að bólu­setja tíu pró­sent allra Afr­íku­þjóða þarf 240 millj­ónir skammta af bólu­efni. Bjart­sýn­asta spáin er sú að 50 millj­ónir skammta muni vanta upp á. „Þetta er meira en áríð­andi,“ sagði Richard Mihigo, sér­fræð­ingur í ónæm­is­fræðum hjá WHO í Afríku á fund­inum í morgun. „Við verðum að tryggja að við­kvæm­ustu hóp­arnir okkar verði bólu­settir fyrir árs­lok.“

Að minnsta kosti 200 þús­und manns hafa dáið úr COVID-19 í álf­unni hingað til. Heil­brigð­is­upp­lýs­ingar eru oft ekki áreið­an­legar í löndum Afríku og því ber að taka slíkri töl­fræði með ákveðnum fyr­ir­vara. Líklega er alvar­leik­inn meiri.

Delta-afbrigðið er langút­breidd­ast en þar sem fæst lönd hafa aðstöðu til að rað­greina veir­urnar er útbreiðsla þess og ann­arra afbrigða ekki að fullu ljós. „Að vita hvaða afbrigði eru að breið­ast út og hvar er nauð­syn­legt til að meta hvaða við­bragða er þörf,“ segir Moeti og til­kynnti að WHO hefði ákveðið að setja fjár­muni og tækni­þekk­ingu til upp­bygg­ingar rað­grein­ing­ar­mið­stöðvar í Suður-Afríku sem myndi þjóna allri álf­unni.

Spurð um and­stöðu fólks við að láta bólu­setja sig segir hún hana miklu minna vanda­mál en skort á bólu­efnum. And­staðan hafi verið áber­andi í ein­stökum löndum, til dæmis í Austur-Kongó. Þar hafi hún verið svo mikil að stjórn­völd hafi ákveðið að láta af hendi bólu­efni til ann­arra ríkja svo þau færu ekki til spillis. En við­snún­ingur hefur orðið hvað þetta varðar í flestum ríkjum álf­unnar. Það sýna nýlegar kann­anir. Flestir vilja þiggja bólu­efni. Moeti segir að lyk­il­at­riði sé að fræða fólk um mik­il­vægi bólu­setn­inga og koma til þess réttum upp­lýs­ingum og reyna að hefta útbreiðslu fals­frétta. „Stóra vanda­málið er að fá bólu­efni.“

Í þriðju bylgj­unni sem gekk yfir Afríku í sumar, sem er sú skæð­asta frá upp­hafi far­ald­urs­ins, stóð­ust heil­brigð­is­stofn­anir margra land­anna ekki álagið. Þær voru veikar fyrir, að berj­ast við slæman aðbúnað á alla þá vegu sem hugs­ast getur: Það er skortur á mennt­uðu starfs­fólki. Grund­vallar tækja­bún­aði. Súrefni. Hlífð­ar­fatn­aði. Og svo fram­vegis og svo fram­vegis.

Hvað skýrir niðursveiflu?

Þessi bylgja virð­ist nú almennt í rénun. Nýgreindum til­fellum hefur fækkað um fjórð­ung á einni viku. „Þetta er upp­örvandi,“ segir Moeti en minnir á að staðan núna sé þó enn verri en á hápunkti fyrri tveggja bylgj­anna. „Við erum að sjá nið­ur­sveiflu núna almennt í álf­unni en hún telur 54 ríki og í sumum þeirra er far­ald­ur­inn í vexti.“

Kjarninn spurði Moeti hvað gæti helst skýrt nið­ur­sveifl­una og nefndi hún tvennt: Bólu­setn­ingar, þótt þær væru vissu­lega skammt á veg komnar í flestum ríkjum, og svo sam­fé­lags­legar aðgerðir sem gripið var til innan ein­stakra landa. Þar má nefna útgöngu­bann að kvöldi og nóttu, lokun þjón­ustu­fyr­ir­tækja á borð við veit­inga­staði og bann við fjölda­sam­komum. Fólk hafi einnig þurft að ástunda ítar­legar, per­sónu­bundnar sótt­varnir. „En það er far­sótt­ar­þreyta, fólk er þreytt á því að þurfa að bera grímur, halda fjar­lægð. Það þráir eðli­legt líf á ný. Og þess vegna þarf stöðugt að minna fólk á til að halda því við efnið. Því miður þá þurfum við að halda þessum aðgerðum áfram lengur en ef við hefðum fengið bólu­efni fyrr til Afríku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár