Þangað fer flóttafólkið frá Úkraínu

Rúmlega milljón Úkra­ínu­manna hefur nú flúið heima­land sitt vegna inn­rásar Rússa og talið er að allt að fjórar millj­ónir muni yfir­gefa landið áður en yfir lýkur. Evr­ópu­sam­bandið hyggst taka flótta­fólki frá Úkraínu opnum örmum.

Úkraínskt flóttafólk hefur þurft að bíða í tugi klukkustunda til að komast yfir landamærin til Póllands.
Úkra­ínskt flótta­fólk hefur þurft að bíða í tugi klukku­stunda til að kom­ast yfir landa­mærin til Póllands. Mynd: EPA

Samkvæmt tölum sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar gáfu út fyrir helgi hafa milljón manns yfir­gefið Úkraínu síðan inn­rás Rússa hófst fyrir rúm­lega viku síðan og hefur Evr­ópu­sam­bandið skuld­bundið sig til þess að taka við öllum þeim sem þaðan flýja. Talið er að allt að fjórar millj­ónir muni yfir­gefa heima­landið.

Flótta­fólk frá Úkraínu flykk­ist nú yfir landa­mærin til nágranna­ríkja sinna á borð við Pólland, Slóvakíu, Ung­verja­land og Moldóvu, auk þess sem nokkur fjöldi hefur brugðið á það ráð að halda til Rúss­lands og örfáir til Hvíta-Rúss­lands.

Fjöldi úkraínsks flóttafólks sem leitað hefur til ákveðinna nágrannaríkja samkvæmt SÞ:

Pólland 505,582

Ungverjaland 139,686

Moldóva 97,827

Slóvakía 72,200

Rúmenía 51,261

Rússland 47,800

Hvíta-Rússland 357

Þá er talið að um 90.000 flótta­menn hafi þegar lagt leið sína þaðan til ann­arra ríkja í Evrópu.

[adspot]Flestir þeir sem flúið hafa Úkraínu það sem af er hafa lagt leið sína til Póllands, þar sem rað­irnar við landamæra­stöðvar eru svo langar að fólk bíður í allt að 60 klukku­stundir úti í kuld­anum eftir að kom­ast yfir landa­mærin, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Þeir sem hafa freistað þess að leita skjóls í Rúmeníu hafa þurft að bíða allt að 20 klukku­stundir. Þá eru fjöl­margir sem ekki hefur tek­ist að koma sér burt frá úkra­ínskum borgum og að landa­mær­unum.

Þrátt fyrir að flótta­fólk­inu sé ekki skilt að hafa með sér papp­íra er mælst er til þess að, hafi það tök á, það hafi með sér vega­bréf eða önnur skil­ríki og fæð­ing­ar­vott­orð barna sem með þeim ferð­ast, auk heil­brigð­is­vott­orða. Til þess að fá stöðu flótta­fólks verður það að hafa úkra­ínskan rík­is­borg­ara­rétt eða lög­heim­ili í Úkraínu. Talsvert hefur verið gagn­rýnt hvernig komið hefur verið fram við erlenda rík­is­borg­ara í Úkraínu síðan inn­rás Rússa hófst, en inn­flytj­endum, sér­stak­lega inn­flytj­endum frá Afríku, hefur verið mein­aður aðgangur að almenn­ings­sam­göngum sem flytja borg­ara í burtu frá átaka­svæðum, auk þess sem þeir hafa lent í vand­ræðum þegar þeir reyna að kom­ast yfir landa­mærin til ann­arra ríkja.

[links]Í Póllandi, sem og öðrum nágranna­ríkjum Úkraínu, getur flótta­fólk svo haft aðsetur í sér­stökum mót­töku­stöðvum hafi það ekki ætt­ingja eða vini til að leita húsa­skjóls hjá. Þar fá þeir mat og heil­brigð­is­þjón­ustu. Í Ung­verja­landi og Rúmeníu fær flótta­fólkið fjár­hags­að­stoð til mat­ar­inn­kaupa, auk þess sem börn á flótta frá Úkraínu kom­ast í skóla á svæð­inu. Í Tékk­landi fær flótta­fólk frá Úkraínu sér­staka vega­bréfs­á­ritun sem gefur þeim land­vist­ar­leyfi.

Pólland og Slóvakía hafa þegar biðlað til Evr­ópu­sam­bands­ins um aðstoð vegna þess fjölda flótta­fólks sem þangað streymir. Þýska­land og Grikk­land hafa þegar brugð­ist við með því að senda tjöld, teppi og grímur til Slóvakíu, auk þess sem Frakk­land hefur sent lyf og annan heil­brigð­is­búnað til Póllands.

Fjöldavernd

Evr­ópu­sam­bandið und­ir­býr nú reglu­gerð sem mun gefa öllum Úkra­ínu­mönnum sem flýja Úkraínu sér­staka fjölda­vernd þar sem þeir fá rétt­indi til að búa og starfa innan aðild­ar­ríkj­anna 27 í allt að þrjú ár. Þá hljóti þeir jafn­framt rétt­indi til fram­færslu­styrkja, hús­næð­is­að­stoðar, heil­brigð­is­þjón­ustu og mennt­unar barna. Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra Íslands, ætl­ar að fylgja í fót­spor Evr­ópu­sam­bands­ins með því að virkja 44. grein út­lend­inga­laga, sem heim­il­ar fjölda­vernd flótta­manna frá til­tekn­um svæðum, að því er fram kom í sam­tali hans við mbl.is í vik­unni.

Þá ætla Banda­ríkin einnig að veita flótta­fólki frá Úkraínu sams­konar vernd til 18 mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár