Ísland vann Tyrkland 3-0 - HM í sjónmáli

Íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta vann Tyrki í Tyrkland 3-0 í riðla­keppni HM. Liðið er nú með Króötum á toppi riðs­ins, þegar ein umferð er eftir.

Íslenska lands­liðið í fót­bolta vann fræk­inn 3-0 sigur á Tyrkjum í und­ankeppni HM og situr nú á toppi rið­ils­ins þegar ein umferð er eftir. Ísland á eftir að mæta Kósóvó á heima­velli, sem er í neðsta sæti rið­ils­ins með 1 stig.

Jóhann Berg Guð­munds­son skor­aði fyrsta markið, Birkir Bjarna­son annað og Kári Árnason það þriðja. Jón Daði Böðv­ars­son lagði upp fyrstu tvö mörkin, en Aron Einar Gunn­ars­son lagði upp það þriðja.

Króatar gerðu 1-1 jafn­tefli við Finnland, og er Ísland því með pálmann í hönd­unum fyrir síð­ustu umferð­ina í riðl­inum.

Íslenska liðið var sem fyrr, sam­stillt og bein­skeytt, og spil­aði fram­úr­skar­andi varnar- og sókn­ar­leik. Allir leik­menn Íslands spil­uðu vel, og voru sem einn maður í öllum aðgerðum.

Farmiði á HM í Rúss­landi er í sjón­máli, en loka­keppnin fer fram á næsta á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár