Rósa Björk: Þjóðin hefur gott að fá frí frá spillingarmálum og hagsmunapólitík

Þing­maður Vinstri grænna segir erfitt að horfa fram hjá sið­ferð­is­bresti Sjálf­stæð­is­flokks á und­an­förnum árum í fjöl­mörgum málum og telur að þjóðin hafi „gott af því að fá frí frá spill­ing­ar­málum og gam­al­dags hags­munapóli­tík.“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, annar þeirra þing­manna Vinstri grænna sem greiddu atkvæði gegn yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum, segir að van­traust sitt í garð Sjálf­stæð­is­flokks­ins byggi á því hvernig for­ystu­fólk í þeim flokki hafi hand­leikið upp­reist-æru málið. „Sem femínisti og þing­maður flokks sem kennir sig við femín­isma, á ég mjög erfitt með að horfa fram hjá því erf­iða máli. Van­traustið byggir líka á spill­ing­ar­mál­unum sem upp komu fyrir aðeins ári síðan vegna Panama­skjal­anna og fleiri við­skipta­tengdra mála sem umlykja for­mann Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ég get ekki sann­fær­ingar minnar vegna stutt það að fara í form­legar við­ræður við flokk sem hefur sýnt alvar­legan sið­ferð­is­brest á und­an­förnum árum í fjöl­mörgum málum. Það er erfitt að horfa fram­hjá því og ég held að þjóðin hefði gott af því að fá frí frá spill­ing­ar­málum og gam­al­dags hags­munapóli­tík.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þing­flokkur Vinstri grænna sam­þykkti í gær að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Sú ákvörðun var sam­þykkt með níu atkvæðum gegn tveimur. Auk Rósu Bjarkar lagð­ist Andrés Ingi Jónsson gegn við­ræð­unum.

Rósa Björk segir að hún vilji að Vinstri græn hafi áhrif og að hún muni taka afstöðu til mál­efna­samn­ings þegar hann liggi fyrir. „ Ég er ekki sann­færð um að með þessa við­mæl­endur við borðið, nái VG nægi­lega góðum mál­efna­samn­ingi fyrir sitt leyti og fyrir sína skýru stefnu í umhverf­is­málum, jafn­rétt­is­málum eða í stjórn­ar­skrár­breyt­ingum. Mál­efna­samn­ingi sem tryggir nægj­an­lega inn­spýt­ingu inn í heil­brigð­is­kerfið, mann­eskju­legri áherslur á lífs­gæði öryrkja og aldr­aðra, sem tryggir víð­sýnni stefnu í útlend­inga­málum og ábyrgum áherslum okkar í tekju­öflun. En ég vona það sann­ar­lega og ítreka að ég treysti Katrínu Jak­obs­dóttur full­kom­lega til að reyna sitt allra besta til þess að ná góðum samn­ingi, enda frá­bær stjórn­mála­kona sem á að sjálf­sögðu að leiða nú þegar þessar form­legu við­ræður.“

Andrés Ingi tjáði sig einnig um sína ákvörðun á Facebook í dag. Þar segir ann að það hafi ekki verið auð­veld ákvörðun að greiða atkvæði gegn til­lögu um stjórn­ar­myndun. „En eftir óform­legar við­ræður milli Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar fannst mér ekki nóg fast í hendi til að ég treysti mér til að styðja áfram­hald­andi við­ræður. Á þeim tíma sem er lið­inn hef ég styrkst í þeirri trú minni að þetta hafi verið rétt ákvörðun.“

Andrés Ingi seg­ist þó bera fullt traust til þeirra sem taki þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fyrir hönd Vinstri grænna til að halda mál­efnum flokks­ins hátt á lofti og ná sem bestum samn­ingi. „Þegar upp er staðið snýst verk­efnið um að tryggja stefnu Vinstri grænna fram­gang, sam­fé­lag­inu til góða - og þar er ég á sömu síðu og allir aðrir í þing­flokknum. Það fer hins vegar eftir því hversu mót­tæki­legir við­semj­end­urnir eru hvort mál­efna­samn­ing­ur­inn verði ásætt­an­legur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár