Óttarr Proppé hættur sem formaður Bjartrar framtíðar

Formaður Bjartar fram­tíðar, sem beið afhroð í nýliðnum kosn­ingum, er hættur. Hann axlar ábyrgð á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna með þessu.

Óttarr Proppé er hættur sem for­maður Bjartrar fram­tíðar. Hann til­kynnti flokks­mönnum þetta í bréfi sem hann sendi þeim fyrr í dag. Þar segir hann að úrslitin í nýliðnum kosn­ingum hafi verið ömur­leg fyrir Bjarta fram­tíð og að honum finn­ist eðli­legt að axla ábyrgð á þeim með því að segja af sér for­mennsku. Björt fram­tíð fékk ein­ungis 1,2 pró­sent atkvæða um helg­ina og féll út af þingi.

Óttar tók við for­mennsku í Bjartri fram­tíð fyrir tveimur árum síðan þegar Guð­mundur Stein­gríms­son hætti sem for­maður. Hann leiddi Bjarta fram­tíð í gegnum kosn­ing­arnar í fyrr aþar sem flokk­ur­inn náði fjórum mönnum á þing. Sú nið­ur­staða skil­aði flokknum á end­anum í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Sú rík­is­stjórn sat ein­ungis í um átta mán­uði. Björt fram­tíð sprengdi stjórn­ar­sam­starfið um miðjan sept­em­ber í kjöl­far upp­reist-æru máls­ins. Sú ákvörðun leiddi til kosn­inga sem þurrk­aði Bjarta fram­tíð út af þingi. Óttarr segir í bréf­inu að ákvörðun að sú ákvörðun hafi verið rétt. „Það var brotið blað í íslenskum stjórn­málum þegar við ákváðum að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi vegna leynd­ar­hyggju sam­starfs­fólks og trún­að­ar­brests tengdum kyn­bundnu ofbeldi. Það for­dæmi mun hafa áhrif til lang­frama.“

Bréf Óttarrs í heild sinni:

Kæru félagar.

Úrslit alþing­is­kosn­inga á laug­ar­dag voru sér­stak­lega ömur­leg fyrir flokk­inn okkar og þá umhverf­is­vænu frjáls­lyndispóli­tík sem við stöndum fyrir. Mér finnst eðli­legt að axla ábyrgð á þess­ari stöðu og segja af mér emb­ætti for­manns Bjartrar fram­tíðar. Verk­efnin framundan eru stór og mik­il­væg. Það fer betur á því að aðrir leiði þá end­ur­skoðun og upp­bygg­ingu sem framundan er.

Síðustu tvö ár hafa verið við­burða­rík og sögu­leg. Björt fram­tíð hefur fengið tæki­færi til þess að hafa tölu­verð áhrif í gegnum störf á Alþingi og í rík­is­stjórn. Það var brotið blað í íslenskum stjórn­málum þegar við ákváðum að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi vegna leynd­ar­hyggju sam­starfs­fólks og trún­að­ar­brests tengdum kyn­bundnu ofbeldi. Það for­dæmi mun hafa áhrif til lang­frama.

Pói­tískar áherslur Bjartrar fram­tíðar og gildi hafa haft mikil áhrif á stuttum tíma. Við höfum áorkað ýmsu í því yfir­lýsta mark­miði okkar að breyta stjórn­mál­unum. Það hefur verið mik­ill heiður að njóta trausts og fá tæki­færi til að taka þátt í því.

Það er aug­ljóst að þátt­taka í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hafði mikil nei­kvæð áhrif á traust til Bjartar fram­tíðar. Það var nær ómögu­legt að vekja athygli á mál­efnum og áherslum flokks­ins í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Það er miður.

Það er auð­velt að vera vitur eftir á. Augljóst er að rót­tæk nafla­skoðun er framundan. Ég hóf þátt­töku í stjórn­málum til að gera gagn. Það er hægt að gera á ýmsa vegu. Í þessum kosn­ingum gerði for­mennska mín flokknum ekki gagn. Við slíkar aðstæður gerir það hug­sjón­unum ógagn að remb­ast eins og rjúpa við staur. Þá er betra að rétta keflið áfram og hjálpa til á annan hátt.

Úrslit kosn­inga eru áhyggju­efni og ekki bara fyrir okkar flokk. Það eru grund­vall­ar­breyt­ingar í loft­inu og ekki allar jákvæðar. Gildi og áherslur Bjartrar fram­tíðar skipta máli fyrir sam­fé­lagið.

Ég þakka ykkur öllum stuðn­ing­inn og sam­ferð­ina. Þetta hefur verið mikið tripp og lyg­inni lík­ast á köflum. Hjartað ólm­ast af þakk­læti og líka af spenn­ingi fyrir fram­tíð­inni. Það er allt hægt ;)

ást og virð­ing,
Óttarr

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár