Starfshópur endurskoði lög um kaup útlendinga á bújörðum

Gunnar Bragi Sveins­son, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur ákveðið að setja á lagg­irnar starfs­hóp sem á að end­ur­skoða lög og reglur um kaup erlendra aðila á bújörðum hér á landi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

„Nokkur umræða hefur verið í þjóð­fé­lag­inu um ára­bil varð­andi kaup erlendra aðila á bújörðum hér á landi. Dæmi eru um það að sami aðili hafi keypt margar jarðir á stóru svæði án þess að þar sé fyr­ir­huguð búseta eða að rækt­an­legt land sé nýtt,“ segir í til­kynn­ing­unni, og að vegna þess­arar umræðu hafi Gunnar Bragi ákveðið að skipa þriggja manna starfs­hóp til að leggja mat á það hvaða tak­mark­anir komi helst til greina til að „við­halda rækt­an­legu land­bún­að­ar­landi og búsetu í sveitum lands­ins.“

Hópurinn á einnig að skoða tak­mark­anir sem er að finna í lög­gjöf nágranna­landa Íslands. Í dönsku jarða­lög­unum sé meðal ann­ars eign­ar­hald á land­bún­að­ar­landi tak­markað og skil­yrði sett fyrir kaupum erlendra rík­is­borg­ara.

Einn full­trúi í þessum hóp verður til­nefndur af inn­an­rík­is­ráð­herra, einn frá Bænda­sam­tökum Íslands og for­mað­ur­inn verður skip­aður af sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hópurinn er sagður eiga að skila til­lögum sínum eigi síðar en í júní.

Greint var frá því fyrir jól að breski millj­arða­mær­ing­ur­inn Jim Ratcliffe hefði keypt meiri­hlut­ann í jörð­inni Gríms­stöðum á fjöllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár