Tón­list­ar­menn Hugsuðir hátíð­ar­innar: Bjarni Frímann Bjarna­son, Sverrir Páll Sverr­is­son og Magnús Jóhann Ragn­ars­son. Á mynd­ina vantar Berg Þórisson. Mynd: Golli

Sjúkir í barokk geta líka mætt

„Hljómar tónlist öðruvísi þegar hún er sett í nýtt samhengi?“ spyrja aðstand­endur tónlistar­hátíðarinnar State of Art – Hátíðin fer fram hér og þar í Reykjavík dagana 8.–13. október og meginstef hennar er samtíminn.

H

átíðin State of Art skartar óvenju skapandi dagskrá, mögnuðu tónlistar­fólki og leik sem sprúðlar.

Á hátíðinni mun Bjarni Frímann Bjarnason flytja flygil inn á bifreiða­verkstæðið Highland Trucks á Smiðju­vegi 4a og spila þar einleiks­konsert fyrir píanó. Hann hefur verið staðar­hljóm­sveitar­stjóri Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands, tónlistar­stjóri Íslensku óperunnar og væflast um veröldina með Björk sem hljóm­sveitar­stjóri en er nú listrænn stjórn­andi hjá Bit20 hljóm­sveitinni í Bergen.

Stofnaði bara hátíð með strákunum

Eitthvað við þennan stráks­lega píanó­leikara tendrar hughrif við bókar­titil Charles Bukowski: Play the piano drunk like a percussion instrument until the fingers begin to bleed a bit.

Raunar á það við um hina aðstand­endur hátíðarinnar líka og hátíðina sem slíka. Þeir tala eins og ólgandi djass­spuni spurðir um hátíðina og Bjarni segir: „Við vorum upphaf­lega að tala um að skipuleggja einn eða tvo tónleika í litlum sal. Vorum með hugmyndir um [hljóð­gervil] sem Maggi …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár