Trump til rannsóknar

Banda­ríkja­for­seti er til rann­sóknar vegna gruns um að hafa hindrað fram­gang rétt­vís­innar.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Robert S. Mueller III, sak­sókn­ari sem fer með rann­sókn á tengslum Rússa við fram­boð Donalds J. Trump Banda­ríkja­for­seta sem og rann­sókn á meintum afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum, er nú að rann­saka hvort Trump hafi hindrað fram­gang rétt­vís­innar.

Þetta kemur á vef Washington Post, en vitnað er til emb­ætt­is­manna sem blaðið fékk upp­lýs­ingar sínar frá.

Til þessa hefur ekki verið litið svo á að Trump sjálfur sé til rann­sóknar, en James Comey, sem Trump rak úr for­stjóra­stóli FBI, sagði eið­svar­inn frammi fyrir þing­nefnd að hann vissi ekki til þess að Trump sjálfur hefði verið til rann­sóknar. Staðan hefði ekki verið þannig, þegar hann hætti sem for­stjóri.

Rannsókn Muellers hóf að bein­ast að for­set­anum sjálfum, skömmu eftir að Trump rak Comey, og var þar sér­stak­lega til skoð­unar hvort for­set­inn hefði hindrað fram­gang rétt­vís­innar en stað­fest hefur verið að FBI var með tengsl Rússa við fram­boð Trumps til rann­sóknar þegar Comey var rek­inn.

Rannsókn Muellers bein­ist meðal ann­ars að aðilum innan Þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unar Banda­ríkj­anna, NSA, vegna rann­sókn­ar­innar á Trump, en sú stofnun er sögð búa yfir nákvæmum gögnum um hvernig Rússa beittu tölvu­árásum í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber í fyrra. Skýrslu­tök­urnar þykja benda til þess að Mueller líti málið alvar­legum augum og að það sé meira en eitt­hvað orða­skak á milli for­set­ans og for­stjór­ans sem hann rak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár