Rektorar þriggja virtra bandarískra háskóla sátu í fimm klukkustundir undir spurningum þingnefndar sem leiddi til afsagnar tveggja þeirra.
Rektorar þriggja virtra banda­rískra háskóla sátu í fimm klukku­stundir undir spurn­ingum þing­nefndar sem leiddi til afsagnar tveggja þeirra. Mynd: AFP

Stríð magna upp menningarátök

Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austur­landa í Banda­ríkjunum, lýsir því hvernig menningar­átökin hafa stig­magnast þar í landi, samhliða stig­mögnun stríðsins fyrir botni Miðjarðar­hafs. Í Banda­ríkjunum snúast deilurnar meðal annars um að gagnrýni á Ísrael sé lögð að jöfnu við gyðinga­hatur, eins og í Þýska­landi og víðar í Evrópu. Hér er umræðan svipuð, um að mótmælin gegn stríðs­átökunum hafi gengið of langt þótt deilan snúist helst um hvernig tekið sé á útlendinga­málum.

Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Mið-Austur­landa við virtan bandarískan háskóla, elítu­skóla, eins og hann lýsir honum sjálfur í samtali við Heimildina. Í skólanum þar sem hann kennir, Williams College í Massachusetts, eru bæði nemendur og starfs­fólk skólans hrætt. Samkvæmt Magnúsi einskorðast hræðslan ekki við hans skóla eða það fólk sem þar starfar heldur ríki ótti og spenna í bandarísku háskóla­samfélagi, sérstak­lega eftir að þrjár konur, þrír forsetar áberandi og virtra menningar­stofnana, hafa setið undir árásum þingmanna, fjölmiðla, fjárfesta og almennings sem neyddi tvær þeirra til að segja upp störfum. Óvíst er hvort eða hvenær sú þriðja muni segja upp störfum, en það sem Magnús Þorkell veit fyrir víst er að afsögn þessara kvenna „mun draga dilk á eftir sér“ eins og hann orðar það.

Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa

Það var á öðrum degi nýs árs sem Claudine Gay …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GE
    Gísli Einarsson skrifaði
    Mjög góð grein eins og vænta mátti þegar Magnús Þorkell á í hlut! Yfirburða þekking hans a sögu og menningu Mið-Austurlanda rennir ávallt góðum stoðum undir það sem hann segir! Magnús ólst upp á svæðinu og lærði Arabísku snemma. Fyrir alla sem vilja læra meira er bók hans “Mið-Austurlönd - Fortíð, Nútíð og Framtíð”: (Mál og Menning 2018), afburða góður grunnur að skilningi á flókinni stöðu mála. Gísli Einarsson
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár