Samfélagið vill þennan ástarkraft – en þolir hann ekki

Sumir ljós­myndarar flækjast um mannlífið og sjá það sem aðrir sjá ekki. Og fangar það til að sýna okkur hinum. Svo við fáum séð það. Alda Lóa Leifs­dóttir er þannig ljós­myndari – sem fangar viðbrögð íslenskra kvenna við þjóðar­morði í Palestínu.

Mist, Melkorka, Sigríður, Snúlla, Gunnlöð, Rowen Lilja, Tristan Raine og Maryam Hrund.
Mist, Melkorka, Sigríður, Snúlla, Gunnlöð, Rowen Lilja, Tristan Raine og Maryam Hrund. Mynd: Alda Lóa Leifsdóttir

„Ég var bara allt í einu byrjuð á þessu,“ sagði Alda Lóa um þá reisu sína að byrja að fanga íslenskar konur sem höfðu fundið upp hjá sjálfri sér að berjast gegn þjóðar­morði í Palestínu. Henni fannst merkilegt að uppgötva í fyrstu mótmælunum eftir 7. október síðastliðinn að það voru aðallega konur sem stóðu fyrir þeim og tóku þátt.

„Þetta stakk í augun og ég var svo hissa. Hvar eru karlarnir?“ spurði Alda Lóa sjálfa sig og fannst þetta mjög áhugavert: „... þó að það séu líka margir góðir karlar þarna og strákar, ég ætla ekki að taka það frá þeim. En þessi barátta fyrir friði í Palestínu og barátta gegn þjóðar­morði hefur aðallega verið í höndum kvenna. Þær sem hafa rekið þetta áfram, af krafti sem er einstak­lega fagur,“ segir hún og síðan að henni þyki það vera algjör forréttindi að hafa …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt skrifaði
    Takk Auður Jónsdóttir fyrir þessa tæru snilld.
    Við erum fámennar í íslenska hópnum í IWSP (International Women Support for Palestine) undir forystu Bjarkar Vilhelms. Okkur finnst samt við gera gagn við að lesa ólífur í lundum Vesturbakkans með bændum og búaliði og taka þátt í mótmælum á föstudögum🇵🇸🇵🇸🇵🇸
    0
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Sterkar og fallegar myndir sem eiga erindi á stóra sýningu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár