Komdu fagnandi, Birgitte Nyborg!

Hún er mætt aftur, hin metn­að­ar­fulla og sjar­mer­andi stjórn­mála­kona Birgitte Nyborg í fjórðu þátta­röð­inni af Borgen. Nú er það Grænland sem er í brennid­epli og bar­áttan um norð­ur­slóðir.

Birgitte Nyborg tekst á við stór verkefni í nýjustu þáttaröðinni af Borgen.
Birgitte Nyborg tekst á við stór verk­efni í nýj­ustu þátta­röð­inni af Borgen. Mynd: DR

„Allt þetta getur orðið þitt! En vald er sann­ar­lega ekki sætur, lít­ill hvolpur sem stekkur upp í kjöltu þína og leggst niður. Það þarf að taka sér vald og halda því fast!“

Þessi orð sagði helsti ráð­gjafi Birgitte Nyborg við hana er hún var um það bil að verða fyrsti kven­kyns for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Með því tíma­bili í ævi hinnar metn­að­ar­fullu Nyborg fylgd­umst við með í þremur fyrstu þátta­röð­unum af hinum geysi­vin­sælu dönsku sjón­varps­þáttum, Borgen. Valda­bar­áttan, hrossa­kaupin, bakstung­urnar og bak­tjalda­makkið sem hún átti í fyrstu erfitt með að taka þátt í, konan sem vildi breyta stjórn­mál­unum, ein­kenndu sögu­þráð­inn og svo hennar einka­líf sem varð flókn­ara eftir því sem á leið.

Þessi flétta heill­aði ekki aðeins Dani heldur áhorf­endur víða um heim, ekki síst á Íslandi, og er Nyborg hvarf af skjánum fyrir ára­tug, þá for­maður flokks­ins sem hún stofn­aði, Nýja demókra­ta­flokks­ins, sem hlaut að end­ingu stór­sigur í þing­kosn­ingum, syrgðu það margir. Hví var ekki hægt að gera að minnsta kosti eina seríu til við­bótar?

Og nú er hún loks komin: Fjórða þátta­röðin af Borgen sem heitir Ríkið, valdið og sæmdin (Riget, mag­ten og æren). Fyrsti þátt­ur­inn var frum­sýndur í Danska rík­is­sjón­varp­inu í gær­kvöldi og eins og nafnið gefur til kynna er valdið enn meg­in­stefið – enda jú enn verið að fjalla um drama­tík­ina í dönskum stjórn­málum. Því miður verður þátta­röðin ekki sýnd á RÚV líkt og hinar fyrri þar sem streym­isveitan Netflix tryggði sér sýn­ing­ar­rétt­inn.

Birgitte Nyborg er enn for­maður Nýja demókra­ta­flokks­ins og eftir nokkur ár í stjórn­ar­and­stöðu er hún orðin utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn með Verka­manna­flokknum. Sú sem stjórn­ina leiðir er tíu árum yngri en Nyborg, orðin unga, sjar­mer­andi og metn­að­ar­fulla konan í augum dönsku þjóð­ar­innar sem Nyborg hafði eitt sinn verið.

Sidse Babett Knudsen fer sem fyrr með hlut­verk Nyborg og fleiri kunn­ug­leg and­lit munu áfram birt­ast á skjánum, m.a. Lars Mikk­el­sen og Birgitte Hjort Sørensen en ein­hverjir munu eflaust sakna Pilou Asbæk sem lék spuna­meist­ar­ann Kasper Juul en hann hefur nú sagt skilið við þátta­röð­ina.

Núna er Nyborg eldri og reynd­ari og líf hennar hefur breyst mikið. Börnin hennar tvö eru upp­komin. Stóra verk­efnið sem við blasir í upp­hafi nýju þáttar­að­ar­innar er olíufundur á Græn­landi sem gæti orðið lyk­ill­inn að sjálf­stæði þess. Þetta eru gleði­tíð­indi fyrir marga en utan­rík­is­ráð­herr­ann Nyborg er ekki par hrifin þar sem hún hefur lagt áherslu á lofts­lags­málin í sinni póli­tík. Upphefst því bar­átta um fram­tíð norð­ur­slóða, rétt eins og við þekkjum vel úr raun­veru­leik­anum.

Greinin heldur áfram fyrir neðan stikl­una.

For­sæt­is­ráð­herr­ann ungi, Signe Kragh, ætlar ekki að láta segja sér fyrir verkum og sömu sögu er að segja um utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, Hans Eliassen.

Það er því alþjóð­legri bragur á Borgen í þetta skiptið þótt hið danska yfir­bragð sé að sjálf­stöðu enn til staðar.

„Vin­sældir fyrri þáttarað­anna á alþjóða­vísu komu á óvart,“ segir Eva Redvall, aðstoð­ar­pró­fessor við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla og sér­fræð­ingur í skand­in­av­ískri kvik­mynda­gerð. En dönsk inn­an­rík­is­póli­tík og áherslan á einka­líf per­són­anna féll vel í kramið hjá fólki víða um heim.

Þegar fyrsta þátta­röðin af Borgen var frum­sýnd árið 2010 þótti það nokkuð fram­andi að kona, móðir tveggja ungra barna, yrði for­sæt­is­ráð­herra. Það var m.a. fram­andi fyrir Dani enda var það ekki fyrr en ári síðar að fyrsta konan tók raun­veru­lega við stjórn lands­ins. Fyrsta konan varð for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar árið 2021 og árið 2017 varð Jacinda Ardern fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands sem eign­að­ist barn í emb­ætti.

Borgen var sýnd í sjón­varpi í tugum landa á sínum tíma og er hún var tekin til sýn­inga á Netflix árið 2020 hóf ný kyn­slóð að horfa. Fjórða þátta­röðin verður einnig sýnd á Netflix en þó ekki fyrr en allir átta þætt­irnir hafa verið sýndir í danska rík­is­sjón­varp­inu.

Það var því fólk á öllum aldri sem sett­ist við sjón­varps­skjá­inn í gær til að sjá fyrsta þátt­inn. Og við­brögðin eru góð ef marka má umfjöllun í dönskum fjöl­miðlum. Jyllands-Posten gefur fjórar stjörnur af sex mögu­legum og byggir þá ein­kunna­gjöf á áhorfi á fyrstu þrjá þætt­ina.

Blaða­maður Berl­inske er enn örlát­ari og gefur fyrsta þætt­inum fimm stjörnur af sex mögu­legum.

Fyrsti þátt­ur­inn hefur svo þegar fengið ein­kunn­ina 8,1 á IMDB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár