Róbert H. Haraldsson nýr forseti kennslusviðs HÍ

Heim­spek­ing­ur­inn Róbert H. Har­alds­son hefur víð­tæka reynslu úr starfi háskól­ans og hefur einnig gegnt trún­að­ar­störfum utan hans, meðal ann­ars fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið.

Róbert H. Har­alds­son hefur verið ráð­inn nýr sviðs­stjóri kennslu­sviðs Háskóla Íslands frá 15. apríl 2017. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands.

Róbert lauk BA-prófi í heim­speki og sál­ar­fræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og dokt­ors­prófi í heim­speki frá Háskól­anum í Pitts­burgh árið 1997.

Róbert hefur kennt við Háskóla Íslands frá árinu 1992 og verið pró­fessor í heim­speki frá árinu 2007.

Á árunum 2015-2016 sinnti Róbert stöðu gesta­pró­fess­ors við Colgate-háskóla í New York-fylki í Banda­ríkj­unum (NEH dist­ingu­is­hed pro­fessor of philosophy). Hann hefur einnig sinnt kennslu á grunn- og fram­halds­skóla­stigi.

„Róbert hefur sinnt marg­vís­legum trún­aðar- og stjórn­un­ar­störfum innan Háskóla Íslands. Hann var for­maður kennslu­mála­nefndar háskóla­ráðs árin 2008-2014 og hefur einnig setið í fjár­mála­nefnd og vís­inda­nefnd háskóla­ráðs. Hann tók virkan þátt í mótun heild­ar­stefnu Háskóla Íslands 2006-2011 og 2011-2016 og hefur verið for­maður ýmissa tíma­bund­inna nefnda við háskól­ann sem lúta að kennslu, svo sem nefndar um brott­hvarf nem­enda (2007), og setið í starfs­hópi um þróun A-prófs­ins (2012-2014). Róbert hefur verið for­maður náms­brautar í heim­speki, for­stöðu­maður Heim­speki­stofn­unar, vara­deild­ar­for­seti Hug­vís­inda­deildar og for­maður Félags háskóla­kenn­ara,“ segir í til­kynn­ingu frá HÍ.

Róbert hefur einnig starfað sem ráð­gjafi með ýmsum fag­fé­lögum, fyr­ir­tækjum og stofn­unum á Íslandi, m.a. var hann for­maður ráð­gjaf­ar­nefndar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um hæfi stjórn­ar­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, vátrygg­inga­fé­laga og líf­eyr­is­sjóða (2013-2015). Hann var meðrit­stjóri tíma­rits­ins Skírnis árin 1995-2000 og nor­ræna heim­speki­tíma­rits­ins SATS árin 2001-2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólastarf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár