Fimm talmeinafræðingar til grunnskóla borgarinnar

Reykja­vík­ur­borg hefur ráðið fimm nýút­skrif­aða tal­meina­fræð­inga til að þjón­usta skóla borg­ar­innar. Ráðning þeirra á að stór­bæta þjón­ustu við börn með tal- og mál­þroska­vanda og gera hana mark­viss­ari.

Reykja­vík­ur­borg hefur ráðið fimm nýút­skrif­aða tal­meina­fræð­inga til að þjón­usta skóla borg­ar­innar. Ráðning þeirra á að stór­bæta þjón­ustu við börn með tal- og mál­þroska­vanda og gera hana mark­viss­ari. Algeng­asta ástæða þess að leitað er til tal­meina­fræð­inga er seinkun á mál­þroska eða fram­burð­ar­frá­vik.

Á árinu 2017 var sam­þykkt fjár­veit­ing til að ráða tal­meina­fræð­inga í öll hverfi borg­ar­innar og einnig hegð­un­ar­ráð­gjafa á grunn­skóla­stigi með fyr­ir­mynd í því sem gert hefur verið á leik­skóla­stig­inu.

Fyrsta árið verður lögð áhersla á að styðja þá með hand­leiðslu og skipu­leggja hvernig þeir muni gagn­ast skóla­kerf­inu sem best. Þeir munu fyrst um sinn hafa starfs­að­stöðu í Þjón­ustu­mið­stöð Vestu­bæjar, Mið­borgar og Hlíða en vera í nánu sam­bandi við skóla­þjón­ustu í þeim hverfum sem þeir sinna. Eftir ár verða verk­efni og stað­setn­ing þeirra end­ur­metin.

Skotur hefur verið á tal­meina­fræð­ingum í gegnum tíð­ina á land­inu og eitt af umkvört­un­ar­efnum bæði kenn­ara og leik­skóla­kenn­ara að hafa ekki nægt aðgengi að slíkum fyrir skóla­börn. For­eldrar hafa einnig getað þurft að bíða fleiri mán­uði eða upp undir ár eftir tíma hjá tal­meina­fræð­ingi fyrir börn sín. Slík töf er af sér­fræð­ingum sögð geta haft áhrif á lestr­ar­nám og félags­færni, reyndar á grunn fyrir allt nám barna sem eiga við vanda að etja.

Á heima­síðu Félags tal­meina­fræð­inga á Íslandi kemur fram að erf­ið­leikar í sam­bandi við mál, tal og tjá­skipti geti komið fram hjá fólki á öllum aldri. Tal­meina­fræð­ingar vinna við grein­ingu og íhlutun á mál- og tal­meinum, auk kyng­ing­ar­tregðu. Dæmi um vanda sem tal­meina­fræð­ingar sinna eru mál­þroska­röskun, fram­burðar- og hljóð­kerf­is­rask­anir, stam, radd­veilur, tján­ing­ar­erf­ið­leika eftir heila­blóð­fall og kyng­ing­ar­tregða. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefð­bundnum tjá­skipta­leiðum. Ráðgjöf er mik­il­vægur þáttur í starfi tal­meina­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólastarf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár