Nefnd um búvörusamninga kom aldrei saman

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var skipuð í nefnd um búvöru­samn­inga fyrir hönd flokks­ins, en segir að nefndin hafi aldrei komið saman.

Nefnd sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skip­aði um búvöru­samn­inga í októ­ber 2014 var aldrei kölluð saman. Þetta kom fram í máli Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur, þing­flokks­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í þætt­inum á Sprengisandi í morgun.

„Ef ég man rétt þá, í októ­ber 2014, fengu allir þing­flokkar bréf frá ráð­herra um að skipa full­trúa sína í nefnd um búvöru­samn­inga. Að minnsta kom sú til­laga inn til okkar þing­flokks sjálf­stæð­is­manna og flokk­ur­inn skip­aði Harald Bene­dikts­son og Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur í þá nefnd. En sú nefnd var aldrei kölluð saman og ekki get ég svarað af hverju,“ sagði Ragn­heiður.

Ragn­heiður sagði einnig að í sam­fé­lag­inu væri uppi krafa um gagn­sæi og aukið sam­ráð og fram­kvæmd búvöru­samn­inga væri ekki í anda þess.

Hún sagði engan vera að tala um að hafna búvöru­samn­ingnum, en það þyrfti að gera á honum breyt­ingar. Hún muni ekki sam­þykkja hann óbreyttan í þing­inu.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, var einnig í þætt­inum. Hún sagð­ist ekki muna hvort þing­flokkur VG hefði einnig fengið skip­un­ar­bréf um nefnd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár