Þórólfur: Ekki senda okkur póst til að reyna að komast framar í röðina

Veiran er ennþá þarna úti, segir sótt­varna­læknir. Í lok mars á að hafa borist hingað til lands bólu­efni fyrir um 30 þús­und manns. Frekari dreif­ing­ar­á­ætl­anir lyfja­fyr­ir­tækj­anna hafa ekki verið gefnar út.

Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Ég biðla til fólks að láta vera að senda okkur pósta sem ætlað er að koma því fram­ar­lega í for­gangs­röð bólu­setn­inga,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Ef við yrðum við öllum þessum beiðnum myndi okkar við­kvæm­asta fólk fær­ast neðar í for­gangs­röð­ina.“

Fjórir greindust með veiruna inn­an­lands í gær og voru tveir þeirra í sótt­kví. Þórólfur sagði ánægju­legt að áfram væru að grein­ast til­tölu­lega fáir inn­an­lands og að flestir þeirra væru í sótt­kví við grein­ingu. „Enn erum við þó að greina ein­stak­linga utan sótt­kvíar sem hefur komið svo­lítið á óvart og segir okkur að veiran er enn þá úti í sam­fé­lag­inu og við þurfum að hafa það í huga.“

Tak­mörk­unum var aflétta að hluta inn­an­lands fyrir rúmri viku. Þórólfur sagði enn ekki tíma­bært að taka ákvörðun um frek­ari aflétt­ingar þar sem lengri tími þyrfti að líða til að sjá árangur af síð­ustu til­slök­unum. Núver­andi sam­komu­tak­mark­anir gilda til 17. febr­úar.

Í þess­ari viku fá tæp­lega 5.000 íbúar öldr­un­ar­heim­ila og fram­línu­starfs­menn sína seinni bólu­setn­ingu. Jafn­framt fá um 3.000 ein­stak­lingar í elstu ald­urs­hóp­unum sína fyrstu sprautu.

Færri skammtar tímabundið

Samkvæmt upp­færðri dreif­ing­ar­á­ætlun Pfizer munu færri skammtar ber­ast af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins næstu vik­urnar en gert var ráð fyrir. Það helg­ast af tíma­bund­inni minnk­aðri fram­leiðslu­getu á meðan verið að er að end­ur­bæta fram­leiðslu­línur. Heild­ar­magn bólu­efnis í mars­lok verður þó óbreytt miðað við fyrri áætl­anir eða um 50 þús­und skammtar.

Þórólfur fór yfir for­gangs­röðun bólu­setn­inga og ítrek­aði að í for­gangi væru ann­ars vegar þeir sem eru í mestri áhættu að smit­ast af veirunni og hins vegar þeir sem eru eldri en 70 ára og lík­leg­astir til að fá alvar­legar afleið­ingar af sýk­ing­unni. Í þessum for­gangs­hópi eru sam­an­lagt um 40 þús­und manns.

Í mars­lok er áætlað að bólu­efni fyrir 30 þús­und manns verði komið til lands­ins. Því er ekki hægt að fara í aðra fram­gangs­hópa fyrr en að þeim tíma loknum.

Mögulega hraður vöxtur í afhendingu

„Þannig þýðir lítið að vera að krefja okkur um nákvæma tíma­setn­ingu á bólu­setn­ingu ann­arra for­gangs­hópa á þess­ari stundu,“ sagði Þórólfur. Tímara­mm­inn helgist af því hvenær og hversu mikið af bólu­efni kemur hingað til lands.

Fyrsti skammtur af Moderna-bólu­efn­inu er þegar kom­inn til lands­ins. Þá er von á mark­aðs­leyfi tveggja bólu­efna til við­bótar, frá AstraZeneca og Jansen, á næstu dögum eða vikum. Þá er að sögn Þórólfs hægt að von­ast til að bólu­setn­ingar geti gengið hraðar fyrir sig. Engar dreif­ing­ar­á­ætl­anir lyfja­fyr­ir­tækj­anna liggja enn fyrir eftir mars­mánuð.

Þórólfur á enn í við­ræðum við Pfizer um rann­sókn­ar­verk­efni hér á landi hvað bólu­setn­ingar og hjarð­ó­næmi varðar. Hann greindi frá því á fund­inum að hann hefði einnig nefnt sam­bæri­legt rann­sókn­ar­verk­efni við aðra lyfja­fram­leið­endur. Engar ákvarð­anir hafi þó verið teknar í þessum efnum. „Við vitum ekki hversu marga þarf að bólu­setja til að ná hjarð­ó­næmi,“ sagði Þórólfur. Talað sé um að bólu­setja þurfi um 60-70 pró­sent sam­fé­lags til að ná því. Hvenær það hlut­fall bólu­settra næst hér á landi er ómögu­legt að segja til um á þess­ari stundu.

Fáum ekki forgang út á fámennið

Spurður hvers vegna það taki svo langan tíma að fá bólu­efni fyrir svo fámenna þjóð minnti Þórólfur á að fámennið séu ekki rök fyrir því að við ættum að fá hlut­falls­lega meira en aðrir. Eftir því sem fleiri fyr­ir­tæki fá mark­aðs­leyfi fyrir sín bólu­efni er lík­legt að afhend­ing þeirra fari hratt vax­andi þó ekk­ert sé enn hægt að segja til um það með vissu.

Sigríður Dóra Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, var gestur fundar dags­ins og sagði að búið væri að gera sviðs­myndir um við­brögð við því ef miklar bólu­setn­ingar geta haf­ist á skömmum tíma. „Ef það kemur mikið bólu­efni á stuttum tíma þá munum við vera til­búin að koma því út,“ sagði hún en heilsu­gæslan ber ábyrgð á fram­kvæmd bólu­setn­inga. „Það kemur röðin á öllum – það verður eng­inn skil­inn út undan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár