Gunnar Bragi: Engin sanngirni að taka sérstakt gjald af sjávarútvegi

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir ósann­gjarnt að taka gjald af sjáv­ar­út­vegi en ekki öðrum atvinnu­greinum sem nota auð­lindir lands­ins.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að það sé engin sann­girni í því að taka sér­stakt gjald af einni atvinnu­grein eins og sjáv­ar­út­vegi. Það væri skyn­sam­legt að gera ekki upp á milli atvinnu­greina sem nýti auð­lindir lands­ins og best væri að nota skatt­kerfið til að fá auð­linda­gjald í rík­is­sjóð.

Gunnar Bragi svar­aði fyr­ir­spurn frá Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, um sjáv­ar­út­vegs­mál í þing­inu í dag. Oddný spurði hann um veiði­gjöld. „Við Íslend­ingar erum rík af auð­lindum en við erum ekki góð í að semja um verð fyrir nýt­ingu þeirra. Útgerð­ar­fyr­ir­tæki greiða til dæmis veiði­gjald sem er langt undir mark­aðs­verði. Ég tel að opin­bert útboð sé skil­virkasta leiðin til að skila arð­inum af fisk­veiði­auð­lind­inni til þjóð­ar­innar,“ sagði Oddný meðal ann­ars.

„Við notum nú þegar útboð á útblást­urs­heim­ildum, fjar­skipta­tíðnisviðum og sér­leyfum í sam­göngum með góðum árangri. Útboð myndi draga fram sann­gjarna sam­keppni á milli sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og tryggja minni fyr­ir­tækjum aðgang að kvóta. Verðið yrði það sem fyr­ir­tæki væru reiðu­búin að greiða fyrir afla­heim­ild­irnar og yrði um leið það veiði­gjald sem rynni í rík­is­sjóð,“ sagði Oddný. Hún spurði Gunnar Braga hvort hann teldi það ekki rétt­læt­is­mál að í rík­is­sjóð renni stærri hluti af fisk­veiði­auð­lind­inni en nú sé.

„Ég hef nú gjarnan litið á að veiði­gjöldin séu fyrst og fremst auka­skattur á lands­hluta, og sér í lagi lands­byggð­ina. Þetta er gjald sem leggst hvað þyngst á fyr­ir­tæki sem eru úti á landi,“ sagði sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herr­ann. „Ég velti því fyrir mér, af hverju tökum við út eina atvinnu­grein, sem er að nota auð­lindir lands­ins? Hvers vegna reiknum við ekki ein­hvers konar afnota­gjald á aðrar atvinnu­greinar líka sem eru að nýta auð­lindir lands­ins? Hvort sem það er nú raf­orka eða þess vegna loft­bylgjur, vatn, hvað sem er, ferða­þjón­usta þess vegna. Af hverju er ein grein tekin út?“

Oddný spurði Gunnar Braga einnig að því hvort til greina kæmi að bjóða við­bót­arafla­heim­ildir, sem útlit sé fyrir að Haf­rann­sókn­ar­stofnun leggi til í sumar, út til hæst­bjóð­anda. Þannig feng­ist reynsla á upp­boðs­að­ferð­ina. „Nei ég sé það ekki ger­ast að við förum með það á upp­boð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár