25 milljarðar í atvinnuleysissjóðum

ASÍ segir tíma til kom­inn að hækka atvinnu­leys­is­bætur í takt við lág­marks­laun. Eig­in­fjár­staða Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs er sterk.

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafnaði því að tryggja að hámarksbætur myndu haldast í hendur við lágmarkslaun.
Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hafn­aði því að tryggja að hámarks­bætur myndu hald­ast í hendur við lág­marks­laun. Mynd: Birgir Þór

Eig­in­fjár­staða Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs stefnir í að verða jákvæð um 25 millj­arða króna á þessu ári. Alþýðu­sam­band Íslands, ASÍ, segir sjóð­inn þess vegna vel í stakk búinn til þess að standa undir hækkun atvinnu­leys­is­bóta. Atvinnu­leys­is­bætur sem hlut­fall af lág­marks­launum er nú 78 pró­sent og hefur hlut­fallið aldrei verið lægra.

„Alþýðu­sam­bands Íslands mót­mælir harð­lega þeirri ákvörðun stjórn­valda að láta atvinnu­leys­is­bætur ekki fylgja þróun lægstu launa og krefst þess að atvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar til sam­ræmis við lægstu laun,“ segir í frétt á vef ASÍ.

ASÍ samdi um þrepa­skiptar hækk­anir á lægstu launum í land­inu í kjara­samn­ingum árið 2015. Í árs­lok 2018 eiga lág­marks­laun þess vegna að vera 300.000 krónur á mán­uði. ASÍ seg­ist hafa farið fram á að bætur almanna­trygg­inga og atvinnu­leys­is­bætur myndu hald­ast í hendur við lág­marks­laun, en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hafn­aði því. Alþingi ákvað síðar að tryggja að hámarks­bætur almanna­trygg­inga vegna árs­ins 2017 myndu fylgja þróun lág­marks­launa. Slík hækkun hefur ekki verið ákveðin um atvinnu­leys­is­bætur.

„Í lögum er skýrt kveðið á um að atvinnu­leys­is­bætur eigi að fylgja þróun kaup­gjalds í land­inu,“ segir í frétt ASÍ. „Ráðherra vinnu­mark­aðs­mála og rík­is­stjórnin fer því á svig við lög og heggur þar sem síst skyldi í árferði sem hefur verið kallað lengsta góð­ær­is­skeið í manna minnum.“

„Mið­stjórnin áréttar jafn­framt að Alþýðu­sam­bandið hefur verið þeirrar skoð­unar að aðlaga beri trygg­ing­ar­gjaldið að fjár­hags­stöðu vinnu­mark­aðstengdu sjóð­anna, þ.e. atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs, fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs og ábyrgð­ar­sjóðs launa, að því gefnu að áður en til breyt­inga á iðgjaldi atvinnu­lífs­ins kemur verði að treysta rétt­indi sjóð­fé­lag­anna. Því mun fyrr­greind lækkun bóta­réttar m.v. lægstu laun eða áform stjórn­valda um stytt­ingu bóta­tíma­bils­ins úr 30 mán­uðum í 24 ekki verða grunnur að neinni sátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár