Færsla ráðuneyta á Hafnartorg ekki rædd í ríkisstjórn

Mögu­legur samn­ingur um flutn­ing ráðu­neyta í nýbygg­ingu á Hafn­ar­torgi, og mögu­leik­inn á því að skipta á lóð rík­is­ins við Skúla­götu og lóð­inni á Hafn­ar­torgi, hafa ekki verið rædd í rík­is­stjórn Íslands. „Það er ekki komið neitt mál til þess að sam­þykkja í rík­is­stjórn,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son um málið.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, spurði Sigmund Davíð um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún minnti á það að sam­kvæmt for­seta­úr­skurði fari fjár­mála­ráð­herra með ráð­stöfun eigna rík­is­ins. Þá sé engin heim­ild til að ráð­stafa lóð rík­is­ins á nokkurn hátt í fjár­lögum. „Vil ég spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra, hvaða laga­heim­ildir styðst hann við þegar hann ráð­stafar rík­is­eignum á stjórn­ar­ráðs­reit?“

Sig­mundur Davíð sagði að það eina sem gerst hefði væri að for­sæt­is­ráðu­neytið sam­þykkti að eiga við­ræður um aðkomu að mál­inu, en það væri allt opið. Hins vegar væri ekki óeðli­legt að skoða málið, og það væri ekki í fyrsta skipti sem það væri gert í ljósi hús­næð­is­þarfa stjórn­ar­ráðs­ins. „Sú þörf er orðin mjög knýj­andi núna, vegna þess að að minnsta kosti for­sæt­is­ráðu­neytið er að missa hús­næðið sem megnið af ráðu­neyt­inu hefur haft aðsetur í og þar að leið­andi óhjá­kvæmi­legt að leita leiða til þess að leysa úr því.“

Ef til samn­inga um maka­skipti á lóðum, eða leigu­samn­ings, kæmi myndi það fara eftir þeim reglum „sem almennt gildi um slíkt.“

Svandís sagði þá vænt­an­lega rétt skilið hjá henni að málið hefði ekki verið rætt í rík­is­stjórn og ekki hefði verið rætt við ráðu­neytið sem á að fara með eignir rík­is­ins. Auk þess sé ekki heim­ild í fjár­lögum. Sig­mundur sagði hins vegar að álykt­anir Svan­dísar væru alrangar, því haft hefði verið sam­ráð við fjár­mála­ráðu­neytið um hús­næð­is­mál stjórn­ar­ráðs­ins á und­an­förnum árum og einnig núna. Hann ítrek­aði að ef til samn­inga kæmi myndi það ger­ast eftir reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár