Sendiherra Rússlands í Tyrklandi myrtur

Pútín Rússlandsforseti hefur kallað til neyðarfundar vegna morðsins.
Pútín Rúss­lands­for­seti hefur kallað til neyð­ar­fundar vegna morðs­ins. Mynd: RIA NOVOSTI

Sendi­herra Rúss­lands í Tyrk­landi var skot­inn til bana á lista­safni í Ankara fyrir stundu. Andrei Karlov sendi­herra var við opnun á lista­sýn­ingu og er sagður hafa verið að halda ræðu þegar byssu­maður hróp­aði "Allahu Akbar", sem þýðir Allah er mestur, og skaut á Karlov. Þetta er haft eftir ljós­mynd­ara frá AP frétta­stof­unni, sem var við­staddur.

Fregnir af mál­inu eru enn óljósar, en rúss­neskir og tyrk­neskir fjöl­miðlar greina nú frá því að Karlov sé lát­inn.

Fréttir herma að árás­armað­ur­inn hafi verið skot­inn til bana á staðnum af lög­reglu.

Guardian hefur það eftir emb­ætt­is­mönnum í Tyrk­landi að byssu­mað­ur­inn hafi kom­ist inn á lista­safnið með því að segj­ast vera lög­reglu­maður. Hann er sagður hafa skotið Karlov í bakið áður en hann skip­aði öðru fólki að yfir­gefa sal­inn og skaut Karlov aftur. Ein­hverjir við­staddra segja að mað­ur­inn hafi hrópað Aleppo á meðan á árásinni stóð, en það hefur ekki verið stað­fest.

Á mynd­unum frá AP, sem Guardian birtir, sést hvar byssu­mað­ur­inn stendur fyrir aftan Karlov á meðan hann hélt ræð­una.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti er sagður hafa kallað Sergei Lavror utan­rík­is­ráð­herra og yfir­menn leyni­þjón­ust­unnar á neyð­ar­fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár