Æskilegt að birt verði skrá yfir vinnuveitendur hagsmunavarða

For­sæt­is­ráðu­neytið vinnur nú að laga­frum­varpi til varnar hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins. Þar á meðal er fyr­ir­hugað að gera öllum aðilum sem sinna hags­muna­vörslu skylt að til­kynna sig til stjórn­valda.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, telur að æski­legt sé að opin­ber skrá um hags­muna­verði (e. lobby­ists) inni­haldi upp­lýs­ingar um verk­kaupa og vinnu­veit­endur þeirra. Hún segir að ekki sé hins vegar til skoð­unar að hags­muna­verðir skrái hags­muni sína í sama skiln­ingi og nú gildir um hags­muna­skrán­ingu ráð­herra og alþing­is­manna.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi um skrán­ingu hags­muna almanna­tengla en unnið er að und­ir­bún­ingi laga­setn­ingar til varnar hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds í ráðu­neyt­inu um þessar mundir.

Opinber skrá um þá sem tala máli einkaaðila gagnvart stjórnvöldum

Í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um hvort að ráð­herra hyggst beita sér fyrir því að almanna­tenglum verði gert skylt að skrá hags­muni sína, kemur fram að í for­sæt­is­ráðu­neytið vinni nú að því að upp­fylla til­mæli GRECO, sam­taka ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu, sem fram komu í fimmtu úttekt sam­tak­anna á Íslandi. Meðal til­mæl­anna var að settar yrðu reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds við hags­muna­verði og aðra sem leit­ast við að hafa áhrif á störf stjórn­valda.

Í júlí síð­ast­liðnum birti for­sæt­is­ráðu­neytið áform um laga­setn­ingu þess efnis í sam­ráðs­gátt­inni. Þar kemur meðal ann­ars fram að fyr­ir­hugað sé að gera öllum aðilum sem sinna hags­munavörslu, þar að segja þá sem hafa það að aðal­starfi að tala máli einka­að­ila, eins eða fleiri, gagn­vart handhöfum ríkis­valds, skylt að til­kynna sig til stjórnvalda svo unnt sé að birta opin­ber­lega skrá yfir þá.

Gert er ráð fyrir því að skráin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda og á vef Stjórnarráðs Íslands. Jafn­framt segir að skoða þurfi hvort og þá hvaða við­urlög eigi að vera við því að van­rækja til­kynn­ing­ar­skyld­una.

Auk þess er tekið fram að fram­an­greindar reglur muni einnig taka til þeirra aðila sem sinna hags­munavörslu fyrir til­tekna hópa án þess að falla undir almenna flokkun hags­muna­varða eins og hún verður skil­greind. Hér er átt við lögmenn eða almanna­tengla sem koma fram fyrir hönd til­tek­inna aðila sem eiga sam­eig­in­lega hags­muni. Samkvæmt laga­á­form­inu er með þessu reynt að tryggja að ekki verði hægt að kom­ast hjá því að birta upplýsingar um sam­skipti ráðherra við til dæmis almanna­tengil sem vinnur fyrir nokkra aðila í ferða­þjónustu, vegna þess eins að almanna­teng­ill­inn er ekki skráður hags­munavörður.

Tímamörk á færslu úr opinberu starfi vegna hagsmunaárekstra

Enn fremur er fyr­ir­hugað að mælt verið í lögum að ráðherrar, aðstoð­ar­menn, ráðuneyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar og sendi­herrar geti ekki í til­tek­inn tíma eftir að opin­beru starfi lýkur gegnt starfi fyrir skráða hags­muna­verði. Gert er ráð fyrir þeirri meg­in­reglu að fram­an­greindir aðilar þurfi að bíða í átta mánuði frá starfs­lokum en að þó verður gert ráð fyrir því að hægt verði að óska eftir und­anþágu frá for­sæt­isráðuneyt­inu á biðtíma eða stytt­ingu biðtíma ef ljóst er að lítil eða engin hætta sé á hags­munaárekstrum til dæmis vegna mis­mun­andi eðlis starfs innan Stjórnarráðs Íslands ann­ars vegar og fyrir hags­muna­verði hins vegar.

Þá er einnig stefnt að því að ráðuneytið geti tekið til skoð­unar mál að eigin frum­kvæði, til að mynda þau til­vik þar sem aðili hefur farið úr starfi innan Stjórnarráðs Íslands í annað starf þar sem umtals­verð hætta er á hags­munaárekstrum án þess að kanna afstöðu ráðuneyt­is­ins fyr­ir­fram. Gert er ráð fyrir því að ráðuneytið geti í þeim til­vikum ann­ars vegar lagt stjórnvalds­sektir á við­kom­andi fyrir athæfið og eftir atvikum einnig dag­sektir.

SA mótfallin opinberri skráningu hagsmunavarða

Samtök Atvinnu­lífs­ins gagn­rýna þessi áform stjórn­valda í umsögn sinni í sam­ráðs­gátt­inni. Í umsögn sam­tak­anna segir að hér á landi tíðkast það ekki að spill­ing birt­ist í því að sterkir sérhags­muna­að­ilar „nái tang­ar­haldi“ á stjórnvöldum og hafi áhrif á þau með við­brögðum sínum við ein­stökum ákvörðunum, líkt og fjallað er um í fyrr­nefndri úttekt­ar­skýrslu GRECO.

Því telja sam­tökin að ekki sé þörf á því að taka upp skráningu hags­muna­að­ila hér á landi. „Aðstaðan hér er um flest frábrugðin því hvernig hún er í marg­falt stærri þjóðfélögum. Í lang­flestum til­vikum er alveg ljóst hvaða hags­munum ein­stök samtök eða starfs­menn þeirra þjóna hvort sem það eru samtök fyr­ir­tækja, verkafólks, umhverf­is­vernd­arfólks, neyt­enda, dýravina eða önnur,“ segir í umsögn­inni.

Samtökin eru einnig andvíg því að sett séu almenn yfir­grips­mikil ákvæði um „takmörkun á almennu atvinnu­frelsi“ starfs­manna stjórnarráðsins eða kjörinna full­trúa. „Það er jákvætt að einka­fyr­ir­tæki finni hæfa starfs­menn í þjónustu ríkis og sveit­arfélaga og að yfirsýn og þekk­ing þeirra sem af ein­hverjum ástæðum hætta í stjórnmálum nýtist sem víðast. Takmörkun á starfs­vali getur því ekki orðið til ann­ars en tjóns fyrir samfélagið.“

Að lokum segir í umsögn sam­tak­anna að það sé mik­il­vægt að íslenskt atvinnulíf búi við skýrar og góðar leik­reglur sem auka trúverð­ug­leika og verja gegn ólögmætri háttsemi. Aftur á móti telja sam­tökin að eft­ir­lit megi ekki vera of íþyngj­andi vegna þess að það auki kostnað fyr­ir­tækja og veiki sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnulífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár