Markmiðið að tryggja konum sjálfsforræði yfir eigin líkama og eigin framtíð

Í frum­varpi heil­brigð­is­ráð­herra um þung­un­ar­rof er lagt til að konur geti látið binda enda á þungun fram til loka 22. viku með­göngu, án tak­mark­ana. Fjöldi umsagna hefur borist um frum­varpið þar sem hækkun tíma­markanna er ýmist fagnað eða mót­mælt.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á lögum um þung­un­ar­rof. Í frum­varpi Svan­dísar er lagt til að þung­un­ar­rof verði leyft fram að 22. viku með­göngu og að ein­stak­lingar þurfi ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir þung­un­ar­rof­inu. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að ef frum­varpið verði að lögum sé um mikla breyt­ingu að ræða sem ætluð er að tryggja konum sjálfs­for­ræði yfir eigin lík­ama og eigin fram­tíð hvað barn­eignir varðar þannig að þær hafi öruggan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu óski þær eftir þung­un­ar­rofi.

Þung­un­ar­rof og heim­ildir til þess hafa ætíð valdið deilum, bæði hér á landi og erlendis og frum­varp Svan­dísar er þar engin undan­an­tekn­ing. Sendar hafa verð inn yfir 100 umsagnir um frum­varpið, yfir 50 umsagnir voru sendar inn í sam­ráðs­gátt­ina á síð­asta ári og nú hafa verið sendar inn aðrar 50 eftir að frum­varpið fór í umsagn­ar­ferli vel­ferð­ar­nefndar. Í umsögn­unum skipt­ist fólk í tvo hópa þar sem annað hvort er fólk mjög fylgj­andi að tíma­mörkin verði hækkuð eða mjög mót­fallið því.

Tímamörkin hækkuð úr 18 vikum í 22 vikur

[links]Síðasta haust lagði vel­ferð­ar­ráðu­neytið fram drög að frum­varpi um þung­un­ar­rof þar sem lagt var til að þung­un­ar­rof yrði heim­ilt fram að lokum 18. viku með­göngu. Í núgild­andi lögum er þung­un­ar­rof ein­ungis heim­ilt til loka sext­ándu viku nema miklar líkur séu á „van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs“. Frum­varps­drögin voru birt í sam­ráðs­gátt Stjórn­ar­ráðs­ins og alls bár­ust 51 umsögn um frum­varps­drögin.

Félag íslenskra fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna var eitt þeirra sam­taka sem gagn­rýndi að í frum­varps­drög­unum væri þung­un­ar­rof aðeins heim­ilt fram að lokum 18. viku þung­unar. Var það afstaða félags­ins að slíkt væri ekki til þess að auka rétt kvenna heldur þvert á móti væri lagt til að réttur kvenna til þung­un­ar­rofs vegna mjög alvar­legra fóst­ur­vanda­mála þar sem fóstur væri líf­væn­legt væri tak­mark­aður miðað við núgild­andi lög. Í því sam­hengi nefndi félagið fóst­ur­vanda­mál eins og vatns­höfuð, klof­inn hrygg, litn­inga­frá­vik og hjarta­galla þar sem börn geti lifað af en væru með mjög alvar­lega lík­am­lega eða and­lega fötlun. Þá taldi félagið litlu breyta að færa tíma­markið frá 16. viku til loka 18. viku þar sem fátítt væri að sjúk­dómar kæmu fram á þessum tveimur vikum.

Land­læknir fagn­aði frum­varp­inu í umsögn sinni og sagði það vera skref í átt til auk­ins sjálfs­for­ræðis kvenna. Í umsögn sinni vakti land­læknir athygli á að við sam­an­burð á nor­rænni töl­fræði um þung­un­ar­rof væri ekki að sjá að víð­ari tímara­mmi hefði haft í för með sér að aðgerðir væru frekar fram­kvæmdar síðar á með­göng­unni og í því sam­hengi benti emb­ættið á að árið 2015 hafi hlut­fall þung­un­ar­rofa sem fram­kvæmd voru innan 9 vikna verið hærra í Svíþjóð en þar í landi gildir rýmri réttur en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Í umsögn land­læknis segir jafn­framt að 90 pró­sent þung­un­ar­rofa hefðu verið fram­kvæmd fyrir lok 12. viku þung­unar á öllum Norð­ur­lönd­unum..

Mikilvægt fyrir konur í erfiðum aðstæðum

Önnur umsögn, sem barst einnig frá heil­brigð­is­starfs­manni, benti á að þær örfáu konur sem sækja um þung­un­ar­rof eftir 18. viku án þess að ástæðan sé vegna sjúk­dóms fóst­urs eða móður séu þær konur sem eru í allra verstu félags­legu aðstæð­unum. Þar á meðal konur í fíkni­efna­neyslu, konur sem búa við hót­anir um ofbeldi, fórn­ar­lömb mögu­legra heið­urs­glæpa, fórn­ar­lömb mansals, fórn­ar­lömb nauð­gana eða fatl­aðar konur, auk stúlkna undir 16 ára aldri.

Í umsögn­inni var fjallað um að þetta væru konur sem ekki hefðu sömu getu og félags­lega sterk­ari ein­stak­lingar til að átta sig á að um þungun væri að ræða og hefðu tak­mark­aða mögu­leika á að leita hjálpar til að rjúfa þungun vegna sinna félags­legu aðstæðna. Í umsögn­inni kom fram að það væri fag­leg skoðun við­kom­andi að þessi hópur væri í mestri þörf á að fá hjálp við öruggt þung­un­ar­rof allt að viku 22, óski þær þess, án tak­mark­ana eða leyfis nefndar.

Í kjöl­far fjölda umsagna frá sam­tökum, stofn­unum og heil­brigð­is­starfs­mönnum, þar sem kallað var eftir því að þung­un­ar­rof yrði gert heim­ilt að beiðni konu fram að lokum 22. viku þung­unar, var tekin ákvörðun um að gera þá breyt­ingu á frum­varp­inu að í stað þess að heim­ila þung­un­ar­rof fram að lokum 18.viku þung­unar yrði þung­un­ar­rofið heim­ilt að beiðni konu fram að lokum 22. viku þung­unar án tak­mark­ana. Í frum­varp­inu var því einnig breyt að nú stendur stúlkum sem ekki eru orðnar ólög­ráða að binda enda á með­göngu án þess að fá sam­þykki for­eldra eða for­sjárað­ila.

Færa ákvörðunarvaldið til kvenna

Fyrstu lög Íslands um þung­ur­rof voru sett árið 1935 og voru eftir því sem næst verður kom­ist þau fyrstu í heim­inum sem heim­il­uðu þung­un­ar­rof á grund­velli félags­legra aðstæðna. Nú eru hins­vegar tæp­lega 44 ár síðan núgild­andi lög um þung­una­rof voru sam­þykkt. Áður en þau lög voru sam­þykkt árið 1976 hafði verið samið frum­varp með sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna að leið­ar­ljósi en það frum­varp mætti mik­illi and­stöðu. Í stað­inn var skipuð nefnd til að vinna nýtt frum­varp en sú nefnd var skipuð þremur karl­mönnum. Í því frum­varpi var dregið tals­vert úr heim­ildum kvenna til að taka sjálfar ákvörðun um þung­un­ar­rof og tak­mark­anir settar fyrir heim­ild­unum, auk þess var vald til ákvarð­ana­töku var fært að hluta til í hendur tveggja lækna eða læknis og félags­ráð­gjafa.

Í dag þurfa konur rök­studda grein­ar­gerð tveggja lækna og félags­ráð­gjaf áður en þeim er heim­ilt að fara í þung­un­ar­rof. Sú krafa hefur sætt mik­illi gagn­rýni und­an­farin ár en þetta er talið hindrun fyrir konur og end­ur­spegla van­traust í garð kvenna til að taka umræddar ákvarð­anir. Því hefur þessu nú verið breytt í frum­varpi Svan­dísar og segir i grein­ar­gerð­inni að meg­in­mark­mið frum­varps­ins sé að tryggja konum aukið sjálfs­for­ræði í ákvörð­unum um barn­eignir og færa ákvörð­un­ar­valdið til kvenna innan þeirra heim­ilda sem lagðar eru til í frum­varp­inu.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að við gerð frum­varps­ins hafi einnig verið skoðað hvort að bæta ætti í lögin almennt bann við mis­munun á grund­velli kyns og fötl­unar vegna sam­eig­in­legrar umsagnar Félags áhuga­fólks um Downs-heil­kenni og Lands­sam­taka Þroska­þjálfar um til­efni væri til að skoða hvort ekki ætti að setja í lögin almennt bann við mis­munun, til dæmis á grund­velli kyns og fötl­unar. Nið­ur­staðan var hins vegar sú að slíkt bann yrði ill­fram­kvæm­an­legt þar sem lög­unum er ætlað að færa sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt að fullu til kon­unnar án þess að í því felist nein krafa um að konan gefi upp þær ástæður sem hún hefur fyrir þeirri ákvörðun sinni að fá þungun sína rofna.

Frum­varpið gagn­rýnt fyrir að skipta ekki orðinu kona út fyrir einstaklingur

Gagnrýnt hefur verið að í núver­andi frum­varpi sé enn talað um þung­aða konu í stað þess að tala um þung­aðan ein­stak­ling. Í umsögn Land­spít­ala og Félags­ráð­gjafa­fé­lags Íslands var meðal ann­ars vakin athygli á að í sam­fé­lag­inu væru ein­stak­lingar með æxl­un­ar­færi kvenna sem upp­lifðu sig ekki sem konur og því væri vert að huga að orða­notkun í lög­unum. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að þetta sjón­ar­mið hafi verið tekið til mjög ítar­legrar skoð­unar við gerð frum­varps og ákvörðun tekin um að halda orða­notkun óbreyttri frá núgild­andi lögum frá 1975 og því er enn fjallað um þung­aða konu í frum­varp­inu í stað þess að fjalla um þung­aðan ein­stak­ling.

Einnig var vakin athygli á stöðu hæl­is­leit­anda í einni umsögn­inni. Í frum­varp­inu segir að heil­brigð­is­þjón­usta skuli vera gjald­frjáls fyrir allar sjúkra­tryggðar konur. Hæl­is­leit­endur eru aftur á móti ekki allir sjúkra­tryggðir hér á landi og myndu því ekki allir njóta þeirra rétt­inda sem lögin fjalla um hvað gjald varðar. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að ákvörðun um breyt­ingar á rétt­indum hæl­is­leit­enda í tengslum við sjúkra­trygg­ingar þyki ekki eiga heima innan þess­arar lög­gjafar og því hafi umrædd athuga­semd ekki verið tekin til greina við vinnu frum­varps­ins.

Tugir umsagnarbeiðna voru sendar á trúfélög

Frum­varpið er nú í umsagn­ar­ferli hjá vel­ferð­ar­nefnd eftir að frum­varpið var sam­þykkt í fyrstu umræðu á Alþingi. Nefndin óskaði eftir umsögnum í des­em­ber en frestur til að senda inn umsögn áður en nefndin fjall­aði um frum­varpið var til 24. jan­úar síð­ast­lið­ins. Yfir 50 umsagnir hafa borist um þetta frum­varp, margar hverjar frá trú­ar­söfn­uðum. Nefndin sendi út 61 umsagn­ar­beiðnir, þar af voru 37 til lífs­skoð­unar- og trú­fé­laga. Umsagn­ar­beiðnir voru einnig sendar til 12 rík­is­stofn­ana, 7 voru sendar til sam­taka launa­fólks og atvinnu­lífs og aðeins 5 til almanna­heilla­sam­taka, þar af aðeins ein til sam­taka innan kvenna­hreyf­ing­ar­innar, Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

Fríða Rós Valdi­mars­dóttir, for­maður Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands, er ein þeirra sem gagn­rýnt hefur að óskað hafi verið eftir umsögnum þrjá­tíu og fimm trú­fé­laga um frum­varp um þung­un­ar­rof. „Og Kven­rétt­inda­fé­lagið var eina fem­iníska félagið sem fékk þetta. Hvers vegna lítur Alþingi þannig á að trú­fé­lög séu hags­muna­að­ilar í þessu máli? Það eru fyrst og fremst þær mann­eskjur sem ætla ekki að klára þessa þungun,“ sagði Fríða Rós í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 í síð­ustu viku.

Öll þau trú­fé­lög sem hafa skilað inn umsögn um frum­varp um þung­un­ar­rof leggj­ast gegn því. Ásamt því höfðu áður Kaþólska kirkjan á Íslandi og Samfélag trú­aðra lagst gegn frum­varp­inu. Vert er að nefna að þegar frum­varps­drögin voru í sam­ráðs­gátt­inni var í 16 umsögnum lögð áhersla á að sett yrði bann við þung­un­ar­rofi, fyrst og fremst byggt á sjón­ar­miðum um rétt­indi fóst­urs til lífs.

Frumvarpið stórt skref til að tryggja kynfrelsi og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama

Kven­rétt­inda­fé­lagið hóf und­ir­skrifta­söfnun til að styðja við frum­varpið og skrif­uðu 728 mann­eskjur undir. Umsögnin var svohljóð­andi: „Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands styður nýtt frum­varp til laga um þung­un­ar­rof. Þetta frum­varp er stórt skref í að tryggja kyn­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna yfir eigin lík­ama. Víðtæk sam­fé­lags­sátt ríkir á Íslandi um nauð­syn þess að tryggja að konur geti rofið þungun að eigin ósk. Þessi lög­gjöf er heilla­spor í átt til kven­frelsis og jafn­réttis kynj­anna. Við hvetjum Alþingi að sam­þykkja þetta frum­varp til laga um þung­un­ar­rof.“

Silja Bára Ómars­dóttir og Steinunn Rögn­valds­dóttir, kynja­fræð­ingur, voru á sömu skoðun í sinni umsögn en þær skrif­uðu bók­ina Rof: Frá­sagnir kvenna af fóst­ur­eyð­ingum. Þær segja það mik­ils virði að Ísland taki þetta löngu tíma­bæra skref í átt að kven­frelsi „á tímum þar sem bakslag gegn kven­frelsi og tak­mark­anir á frjó­sem­is­rétt­indum kvenna hafa gert vart við sig víða um heim.“ Þær fagna því sér­stak­lega að til standi að afnema kröfu um að konur þarfn­ist leyfi til að binda endi á þungun. „Þar er um mikið fram­fara­skref að ræða enda eru það grund­vall­ar­mann­rétt­indi að ráða yfir lík­ama sínum og ákveða hvort og hvenær fólk ráð­ist í barn­eignir.“

Ólína Þor­varðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður, er hins vegar ekki á sama máli og segir að ef frum­varpið fari óbreytt í gegn sé hætt á því að sú sátt sem hafi verið um fóst­ur­eyð­ingar verði rofin. „Það yrði óbæt­an­legur skaði fyrir íslensk kven­rétt­indi og mann­rétt­indi í víð­ara sam­hengi,“ segir Ólína. Hún segir að ekki sé með neinu móti hægt að halda því fram að þung­un­ar­rof sé rétt­nefni yfir það sem ger­ist ef með­ganga sé rofin í 22. viku. Ekki sé sið­ferð­is­lega verj­andi að rjúfa með­göngu svo seint. „Ekki er heldur for­svar­an­legt af sið­ferði­legum ástæðum og með til­liti til til­finn­inga og hugs­an­legrar lífs­af­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks að skylda það til þess að fram­kvæma slíka aðgerð.“

Telur það mikilvægt að nefndin ákvarði þetta ekki bara út frá tilfinningum fólks

Nú mun vel­ferð­ar­nefnd fara yfir þær 52 umsagnir sem bár­ust og gera athuga­semdir við frum­varpið ef nefndin telur þess þörf. Halldóra Mogensen er fram­sögu­maður máls­ins og málið er á hennar for­ræði í nefnd­inni. Hún sagði að mik­il­vægt sé að taka ákvarðnir út frá góðum gögnum en ekki út frá til­finn­ingum fólks í sam­tali við Frétta­blaðið í gær.

„Mér finnst mik­il­vægt að við tökum ákvarð­anir út frá góðum gögnum, að við fáum fag­að­ila til okkar til að leið­beina okkur og að við horfum til landa sem hafa verið með rýmri lög um þung­un­ar­rof, hvernig gengið hefur þar og tökum það inn í okkar ákvörðun en ákvörðum þetta ekki bara út frá til­finn­ingum fólks,“ sagði Halldóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár